Vikan - 17.01.1974, Qupperneq 5
brag&að sopa af vini, og þegar
þau reykja, hef ég einhverja
minnimáttarkennd, og mér finnst
ég vera útundan. Hvað á ég að
gera? A ég að hætta að vera meö
þeim eða fara að reykja? Kæri
Póstur, láttu þetta bréf nú ekki
lenda i hinni frægu ruslakörfu, og
ég vonast eftir hjálp. Kærar
þakkir.
G.Þ.
Það er lieldur öfuguggalegt, að
þú skulir vera meö minnimáttar-
kennd út af þvi, scm þú ættir að
vera hreykin af. En svona er það
nú einmitt á þessum árum, þá er
svo mikið atriði að vera eins I
háttum og félagarnir, og mjög
margir krakkar leiðast eingöngu
þess vegna út i reykingar og
drykkju. Stattu fast á þinni bind-
indissemi, þú sérð áreiðanlega
ckki eftir þvi. Það er hins vegar
óæskilegt, að þú veröir aö segja
skiliö við kunningja þína af þeiin
sökum. Þú átt fullan rétt á þvi, að
þeir Virði afstöðu þina.
Hvað geta strákar not-
að?
Sæll og blessaður Póstu!
Mig langar að spyrja þig
nokkurra spurninga.
1. Hvað geta strákar notaö til aö1
gera ekki stelpur óléttar? Þvi ég
er of ung til aö nota pilluna.
2. Ég er með strák, sem er 3 ár-
um eldri en ég, og hann hefur
þrisvar beðið mig um það, en ég
hef ekki viljað það. Og þess vegna
er hann búinn að missa allan á-
hnga á mér.
3. Hvernig er stafsetningin og
skriftin, og hvað heldur þú, að ég
sé gömul?
Ég vona, að bréfiö lendi ekki i
ruslinu, þvi að ég verð aö fá svar
viö þessu.
Elin
1. Það er aðeins til cin tegund af
getnaðarverjum fyrir karlmenn,
nefnist hún smokkur og fæst i
hverju apóteki.
2. Þessi strákur heföi að öllum
likindum misst á þér áhugann
hvort eð er fyrr eða siðar, svo að
þú skalt ekkert vera að gráta
hann. Þú geröir rétt að ncita hon-
um um það. Engin stúlka ætti að
fara að vilja stráks i þessum efn-
um, nema hún vilji það raunveru-
lega sjálf og sé alveg örugg um,
að nauösynlegar varúöarráðstaf-
anir séu geröar. Þetta cr eina
ráðið, scm hægt er að gefa ungum
stúlkum i þessum efnum.
3. Skriftin cr heldur subbuleg,
stafsetning ekki nógu góð og þú
ert i mesta lagi 14 ára. En þú
verður að afsaka, að ég sleppti úr
tveimur spurniiigum þinum. Það
cr sérstakur poppþáttur hér i
blaðinu, og þú verður að snúa þér
þangaö.
Vill ekki skemma á milli
Kæri Póstur?
Ég þakka þér allt gamalt og
gott, sérstaklega fyrir Póstinn.
En tilefni þessa bréfs var að biðja
þig um ráð. Ég er hrifin af strák,
sem er jafngamall mér, og hann
veit það. Ég hef einu sinni verið
með honum ,enég vilekki vera með
honum, vegna þess að hann er
með stelpu. Ég vildi ekki vera
með honum vegna þess, en hafði
enga afsökun. Ef ég mundi segja
að hann væri með stelpu, þá
mundi hann fatta, hver sagði mér
það og gengi frá vinkonu minni,
og það vil ég ekki, þvi þau eru
vinir. Hún er oft að spyrja hann,
hvort hann sé hrifinn af mér, og
hann segir já. Þá spyr hún, hvort
hann sé' hrifinn af stelpunni, en
hann segir ég veit það ekki. Ég
veit ekki, hvað ég á að gera til
þess aö ná i hann, án þess að
skemma á milli hans og stelpunn-
ar. Ég vona, að þetta lendi ekki i
körfunni eins og öll min bréf.
Hvernig er skriftin og stafsetn-
ingin, og hvað lestu úr henni? Ög
hvað álitur þú, að ég sé gömul?
Hvernig eiga vatnsberinn
(stelpa) og Bogmaðurinn (strák-
ur) saman?
Ein sem vonast eftir svari.
Þetta er nú dálltið ruglingslegt,
Ijúfan, og ég veit ekki frekar en
þú, hvernig þú átt aö fara að þvi
að ná i þennan pilt, án þess áð
skemma á milli hans og stelpunn-
ar. Vatnsbera og bogmanni er
ekki spáð sérlega góöu saman. En
svo er það skriftin þin og stafsetn-
ingin. Ég varð nú að leiörétta
nokkrar stafsetningarvillur, en
ég lét stilinn að mestu halda sér,
þó hann sé órökréttur I meira
lagi. Hvað veit t.d. strákurinn?
Að hann er jafngamall þér, eða að
þú erthrifin af honum? Og veiztu,
að það má skilja orð þin svo, að
pilturinn mundi drepa vinkonu
þína, ef þú létir vitneskju þina
uppi? Að ganga frá éinhverjum
þýöir nefnilcga að drepa hann. Og
úr hverju viltu, að ég lesi, skrift-
inni eða stafsetningunni? Að visu
veit ég vel, við hvað þú átt, en þú
heföir gott af þvi að hugsa betur
uin það, sem þú skrifar. Vertu
bara dugleg að læra og vanda þig,
þú gætir t.d. hugsað pinulitiö
ininna um stráka I staðinn. Það er
nógur timi fyrir svoleiðis, þú ert
greinilcga kornung ennþá.
PÉKiKvöVA'á'.’. V ov.
IIIM
PRlITIJi
Látiö prenta alls konar aðgöngumiða,
kontrolnúmer, afgreiðslumiða og
fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðj-
an á landinu, sem prentar slíka miða.
Höfum einnig fyrirliggjandi og útveg-
um með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
Hilmir M.
SIÐUMULA 12 - SIMI 35320
3 . TBL. VIKAN 5