Vikan - 17.01.1974, Síða 9
Indira Gandhi fcröast mikiO um fram á útifundum og telur kjark I fátæktinni og hungrinu
meðal þjóöar sinnar og kemur fólkið, að það megi sigrast á
Mahatma Gandhi var góður vinur
Indiru.
Faöir og dóttir. Nehru og Indira
yfir sig: „Móðir min skiptir sér
meira af mér., en þú gerir af syni
þinum. Hann segir, að þú sért
alltaf að spila bridge”. Börnin
min hafa alltaf vitað, að þau eiga
mig að og þeim hefur held ég
aldrei fundizt ég vanrækja þau.
Blaðam: Voruð þér enn giftar,
þegar þér hófuð afskipti af stjórn-
málum, eða voruð þér skildar?
Indira Gandhi: Ég var alla tið
gift manninum minum meðsn
hann lifði. Það eru helberar lyg-
ar, sem sagt hefur verið um skiln-
að okkar. Sannleikurinn er sá, að
við áttum ekki skap saman og átt-
um oft i deilum. Maðurinn minn
bjó i Lucknow, þar sem við áttuir
hús. Faðir minn bjó vitaskuld i
forsætisráðherrabústaðnum i
Delhi. Ég var stöðugt á ferðinni
milli Lucknow og Delhi... Já, við
deildum ansi oft, enda vorum við
bæði stif á meiningunni. En við
elskuðum hvort annað þrátt fyrir
það. Kannski bar ég ekki eins
sterkar tilfinningar til haps og
hann til min, þegar við lofuðumst
hvort ööru. En tilfinningar minar
til hans þróuðust og urðu afar
sterkar. Lifiðmeð mér var manni
minum erfitt. Þegar ég var i
Delhi og hann bað mig um að
koma heim, varð ég alltaf viö bón
hans. En ef faðir minn hringdi og
sagði: ,,Ég þarf á þér að halda,
vertu svo væn að koma”, þá fór
ég undireins frá Lucknow og flýtti
mér á fund föður mins. Nei, lifið
var alls ekki auðvelt hjá honum.
Blaðam: Margir segja, að eftir
sigurinn yfir Pakistan, munuð
þér halda um stjórnartaumana i
minnsta kosti tuttugu ár i viðbót.
Hvað haldið þér sjálfar um það?
Indira Gandhi: Ö, guð minn
góður, ég veit ekki sjálf, hve lengi
ég verð forsætisráðherra. Ég vil
bara eitt og það er að inna af
höndum gott starf á meðan ég er
fær um það. Þann dag sem ég finn
að ég er ekki lengur fær um að
rækja starf mitt af hendi, hætti ég
störfum, áður en ég verð þvinguð
til þess. Sém stendur finnst mér
ég vera starfi minu vaxin.
3 . TBL. VIKAN 9