Vikan - 17.01.1974, Page 15
Prinsessan gerist teiknari
Hún er orðin 52ja ára og var áður gift
Faruk Egyptalandskonungi. Nú er hún
komin til Parisar og hyggst geta sér frægð
sem teiknari og málari. Hún merkir lista-
verk sin með nafninu Farida.
LIZA MINELLI
á systur, sem sumir segja að eigi eftir að
ná enn lengra en bæöi hún og þeirra fræga
móðir Judy Garland. Garland heitin átti
Lorna Luft með Sidney Luft, en faðir Lizu
er Vincnet Minelli. Þaö virðist fara vel á
með þeim hálfsystrunum á þessari mynd,
en skyldi Liza brosa svona breitt, ef syst-
irin á eftir að skjóta henni ref fyrir rass.
Nora
Um þessar mundir er Guðrún
Asmundsdóttir að leika Noru i Brúðu-
heimili Ibsens i Þjóðleikhúsinu. Hér á
myndinni sjáum við aðra Noru. Þetta er
Jane Fonda i hlutverki Noru i mynd
Josephs Losey, sem byggð er á leikriti Ib-
sens, en hefur hlotið nafnið Nora.