Vikan - 17.01.1974, Side 22
Kaupmannahöfn. Við íslending-
arnir, sem þá vorum i Kaup-
mannahöfn, sáum ýmislegt sam-
an, þvi að stundum átti ég fri
klukkan tvö á daginn til klukkan
átta á kvöldin, þegar óg byrjaði á
næturvakt og á þeim tima var
hægt aö fara i stuttar ferð-
ir. En ég lét prófessorinn heyra
það á mér, að ég hefði gjarnan
viljaö hafa svolítið meiri tima til
að skoða mig um og eftir þetta ár,
var farið að gefa nemunum meiri
fri en áður, enda var námið þá
lengt um eitt ár og var tvö ár eftir
það.
— Hvaða íslendingar eru þér
minnisstæðastir frá þessu ári i
Kaupmannahöfn?
— Ég var i ágætum félagsskap
þar. Með mér voru meðal ann-
arra Jakob Benediktsson orða-
bókarhöfundur, Gisli Gestsson,
Sigurkarl Stefánsson og frú Sig-
riður kona hans, Gróa Sigmunds-
jóttir og þau systkinin Steinþór og
Guðrún. Við skemmtum okkur oft
reglulega vel saman, en við vor-
um ekki rikari en það, að við gen-
gum oft alla leið frá Ráðhústorgi
og inn á Rikisspitala, en það er
röskur hálftima gangur.
— 1 september var útskrifað úr
skólanum og þá fékk ég fyrstu
verðlaun fyrir námsárangur frá
Rikisspitalanum. Það var verð-
launaskjal og ljósmóðurtaska,
sem mér var færð að gjöf með öll-
um áhöldum og hana hef ég notað
viö yfirsetur siðan. Ég átti ekki
von á þvi, að mér yrði sýndur
þessi heiður og hafði meira að
segja ekki ætlað að vera við
skólaslitin. Ég var búin að vaka
alla nóttina áður og hafði hugsað
mér að leggja mig i einn eða tvo
klukkutima, en herbergisfélagi
minn, sem var dönsk kona, bað
mig endilega að fara og vera við
uppsögnina.
— Eftir að ég lauk námi við
Rikisspitalann, fór ég til Stokk-
hólms. Prófessor Erik Hach
komst að þvi, að ég hafði hug á að
fara þangað og kynna mér starf-
semi fæðingardeildarinnar þar og
hann bauð mér að gefa mér „ér-
stakt meðmælabréf. Og það var
eins og þetta bréf hefði töframátt,
þvi að það opnaði fyrir mér allar
dyr og mátti litlu muna, að ljós-
mæður og læknar sýndumér
ekki sérstaka virðingu, þegar þau
sáu það. Prófessor Hach var alls
staðar i miklum metum og það
var mikill vinargreiði af honum
að gefa mér þetta meðmælabréf.
A fæðingardeildinni i Stokkhólmi
var Ellen Erup nýtekin við starfi
yfirljosmóður og með okkur tókst
mikil vinátta,stm helztenn.Ellen
er núna hætt störfum, en hún hef-
ur unnið mikið starf i þágu ljós-
mæðrastéttarinnar og fæðingar-
hjálpar og fyrir þau störf var hún
sæmd gullmerki á alþjóðamóti
ljósmæöra i Washington i fyrra.
Þarna i Stokkhólmi sá ég i fyrsta
skipti „lystgas”, sem konurnar
fengu við fæðingar. Ellen sagði
við mig, þegar ég var rétt að
segja nýkomin: „Helga, komdu
og seztu hérna i stólinn”. Svo gaf
hún mér þennan maska og mig
fór strax að svima. „Lystgas”
hafði ekki verið notað á Rikisspit-
alanum og ég vissi tæpast hvað
þetta var. Konurnar fengu að
skammta sér þessa deyfingu
mikið til sjálfar.
— Ég var i heimsókn i Stokk-
hólmi i mánuð og mér fannst mik-
ið til fæðingarhjálparinnar þar
koma. Allt var gert fyrir konurn-
ar, sem mögulegt var. Frá Stokk-
hólmi fór ég til Oslóar og þar
kynntist ég litill. prófessor Brant,
en fyrsta ljósmóðurfræðin, sem
við lærðum hérna heima, var eftir
hann. Mér geðjaðist á engan hátt
að honum. Mig minnir að ég hafi
verið i hálfan mánuð i Osló i þetta
skipti og þaðan fór ég til Bergen.
Yfirljósmóöirin þar hét fröken
Henriksen og hún fjargviðraðist
mikið yfir þvi, að islenzk stúlka
skyldi hafa farið til náms i Dan-
mörku eftir að Danir væru búnir
aðkúga Islendinga öldum saman.
Ég sagði henni, að ég hefði ekki
orðiö vör við neina kúgun á Rikis-
spitalanum og bætti þvi viðvað ég
efaðist um að íslendingar og
Norðmenn hefðu verið eins
höföinglegir og réttlátir gagnvart
Dana og Danir voru gagnvart
mér, þegar þeir völdu mig, eina
Islendinginn úr hópnum, til að
veita verðlaun. Fröken Henriksen
gat alveg fallizt á þá skoðun mina
og það fór ágætlega á með okkur.
Ég borðaði hjá henni saltkjöt og
baunir meöan við spjölluðum
saman og mér fannst gott að
bragða aftur islenzkan mat. Þetta
var islenzkt saltkjöt, þvi að á
þessum árum var það flutt til
Noregs.
Frá Bergen lagði ég svo af stað
heim með Liru. Meðal farþega,
sem mér voru samskipa, var frú
Skúlason, kona Skúla Skúlasonar
ritstjóra og litil yndisleg dóttir
hennar, sem nú er gift Karli Ei-
rikssyni forstjóra. Við vorum
ekki nema rúma viku i hafi, svo
ab þetta var miklu minna ferða-
lag en siglingin frá Akureyri til
Reykjavikur á sinum tima. Þegar
heim kom, fór ég aö praktisera og
fékk strax nóg aö gera.
— Ariö 1928 sat ég yfir og
stundaöi 68 konur og árið eftir 116
konur. Við ljósmæðurnar fórum
tvisvar á dag til kvennanna fyrstu
sex dagana eftir fæðinguna og
einu sinni á dag næstu sex daga.
30. maf árib 1945 fæddist minnsta
barn, sem Helga hefur tekið á
móti. Það var drengur, sem vó
aðeins 700 grömm (tæpar þrjár
merkur) og var 40 sentimetrar á
lengd. Eftir tvo og hálfan mánuð
var hann orðinn 10 merkur. Hér á
myndinni er móðir hans, Sigriður
Oddsdóttir, mcö hann þriggja og
hálfsmánaðar gamlan.
Þessa mynd af Ilelgu tók Jón
Kaldal skömmu eftir að hún kom
heim frá námi slnu við Rlkis-
spltalann í Kaupmannahöfn.
22 VIKAN 3 . TBL.