Vikan - 17.01.1974, Page 31
Umhverfismál eru mjög á döfinni og ekki
seinna vænna fyrir margar þjóðir aö fara að
gera róttækar áætlanir um varnir gegn
mengun. bó að við fslendingar séum kannski
öðrum betur settir hvað mengun og önnur
umhverfisvandamál snertir, er okkur trú-
lega hollast að gæta að okkur fyrr en seinna.
bess vegna gerum við hér samanburð á
tveimur borgum.
Borgin
sem okkur
langar til
aöbúaí
er þvi miður hvergi til. Sælurikisins verður
stöku sinnum vart i eitt andartak en svo ekki
meir. bað gæti litið út eitthvað svipað þessu:
1. Gömul falleg hús eru ekki rifin, heldur lag-
færð og endurnýjuð. 2. Tré, grasflatir og
blóm, sem bæta andrúmsloftið á tvennan
hátt. '3. Gangstigar og stéttir eru aðskildir frá
akbrautum á greinilegan hátt og gert eins
hátt undir höfði og akbrautunum. 4. Við gel-
um notað undirgöngin til að forðast umferð-
ina...,5.... eða notað litla rafknúna bila, sem
hvorki eru hávaðasamir né menga
íindrúmsloltið. fi. Ströng umhverfisvernd-
arlög halda loftinu tæru og himninum bláum.
7. Fleiri götukaffihús og færri bankahallir
gera miðbæinn viðkunnanlegri. 8. Grónir
skemmtigarðar með bekkjum og gosbrunn-
um bjóða upp á notalegar samræðustundir. 9.
Barnanna er gætt á fallegum og skemmtileg-
um leikvöllum meðan loreldrarnir verzla. 10.
Ávaxta og issalar og blómsölukonur lifga upp
á bæjarbraginn. 11. 1 stað risavaxinna vöru-
markaða og verzlunarhúsa eru komnar
nokkrar litlar verzlanir og ljöldinn allur af
vingjarnlegum örlitlum búðarkompum. 12. Á
jarðhæðinni i öllum verzlunarhúsum eru bar-
ir, krár og litil handverksmannaverkstæði.
13. Ný lög um húsaleigu hafa gert fólki kleift
að búa aftur i miðbænum gegn sanngjarnri
loigu 14 Lilið verður fagurt i húsum, þar
sem uppi á þaki eru sölbaðsskýli og aðstaða
til að hafa barnagæzlu.