Vikan - 17.01.1974, Page 40
gátu ekki einu sinni snúið sér við,
þar sem þau voru nauðbeygð til
að halda áfram lengra og lengra,
unz þau að lokum voru komin inn
i sjálfa grafhvelfinguna.
Hún snýr sér að honum. Honum
er ekki ljóst, hverju hann hafði
búizt viö, hvort hann hafði átt von
á, að hún hefði breytzt i útliti,
tekið á sig harðneskjulegt og frá-
hrindandi yfirbragð. En litla
freknótta andlitið hennar er ná-
kvæmlega eins og það er vant að
vera — og honum til undrunar
vekur þaö með honum sömu til-
finningar of það hefur alltaf gert
Hún nálgagast hann, og þá sér
hann fyrirlitningardrættina við
litla nefið og sjálfsánægju-
hrukkurnar við munnvikin. Þær
hafa alltaf verið þarna, hann
hafði bara ekki vitað, hvernig
hann átti að skilja þær. Hann
haföi litið fram hjá þeim, hann
hafði imyndað sér, að hann
elskaði hana, af þvi að hún var
svo ffn, svo gáfuð, svo gallalaus.
Hún var það ekki.
En smám saman rann . það upp
fyrir honum, að hann elskaði
hana samt sem áður. Þrátt fyrir
það, að einmitt núna hafði hann
svo mikið á móti henni, þrátt fyrir
vonbrigöi sín, þrátt fyrir biturleik
sinn fyrir aðeins andartaki, þrátt
fyrir að hann veit, aö hann muni
halda áfram að uppgötva galla
hennar — og hún hjá honum — þá
voru þau jafn óaðskiljanlega
tengd hvort öðru eins og fara-
oarnir og drottningar þeirra á
veggjum hofanna i Karnak. Hann
veit ekki hvers vegna, skilur ekki
ástæðuna fyrir ást sinni, veit
bara, aö ef einhver væri þess virði
að vera elskaður, þá fengi enginn
að njóta ástar, —ekki hann, ekki
hún, ekki Amal, enginn.
Myrkrið, sem umlykur þau, er
algjört, þögnin er algjör. Hann
gleymir, að þau eru stödd á hótel-
herbergi í Luxor, gleymir brúð-
kaupsferöinni þeirra, gleymir
peningaáhyggjum þeirra.
Einhvers staðar i eilifðinni
..tekur hann hana i faöm sér.
BETLARI BISKUPSINS
Framhald af bls. 14
gjarn og syndugur sonur ranglæt-
isins — og að ég skuli bera ábyrgð
á þér! sagði biskupinn, en sem
betur fór sagði hann það ekki
upphátt. Þögull rétti hann fram
hringinn sinn og Luigi kyssti hann
með svo sakleysislegri auðmykt,
að biskupinn freistaðist gegn vilja
sinum til að veita honum blessun-
ina, þrátt fyrir allt. En megin-
reglur hans uröu þó yfirsterkari
og hann gekk burt þegjandi.
Biskupinn svaf illa næstu nótt
og átti vonda drauma um Luigi.
Hann dreymdi, að vegna synda
sinna yrði hann að bera Luigi upp
dómkirkjutröppurnar. Og með
hverri tröppu þyngdist byrðin á
baki honum og loks vaknaði hann
óendurnærður.
Næsta dag gekk hann til dóm-
kirkjunnar með mikilli viðhöfn
enda þótt þetta væri bara venju-
legur sunnudagur. Samt fannst
honum sem þessi viðhöfn væri sér
dálitil vernd. Þegar hann kom að
tröppunum upphófu betlararnir
sina venjulegu kveinstafi. Hann
sendi ölmusustjórann sinn til
þeirra — og þessu var fyrr lokið
en hann hafði búizt við. Hann
svipaðist ekkert um eftir Luigi,
en fann, að augu Luigis hvildu á
honum, þar sem hann stanzaði
snöggvast i skrautkápunni og
með mitrið. En svo var þetta af
staðið.
Þann sama dag predikaði hann
i kirkjunni af miklum ofsa, gegn
syndum eins og iðjuleysi og
kæruleysi. Sjaldan haföi hann
verið svona hrærandi — hann
fann það á söfnuðinum. Eftir
messu fór hann til hallar sinnar
kúguppgefinn. Samt hafði hann
ánægju af að ganga um höllina og
vita, að Luigi var þar ekki.
Það var rétt eftir kvöldsöng, aö
ritari hans kom til hans og
tilkynnti honum, að maöur að
nafni Jósep, sjálfkjörinn forustu-
maöur betlarahópsins, æskti á-
heyrnar. Biskupinn andvarpaöi
og skipaði að leiða manninn inn.
Þetta var lágvaxinn maður en
mjög kraftalegur og svipillur, þvi
að önnur hliðin á andlitinu á hon-
um var svo brunnin, að það var
rétt eins og hann væri með tvö
andlit — annað algjörlega ó-
mennskt. Auk þess endaði annar
handleggur hans i járnkrók.
— Þetta er hann Jósep betlari,
yðar herradómur, sagði ritarinn
dræmt.
— Jósep — að auknefni Tvi-
smetti eða stundum Krókur —
forstöðumaður heiðarlags hóps
betlara i Remo, sagði Jósep meö
ryðgaðri rödd og féll á kné.
Biskupinn lét hann upp standa
og innti eftir erindi hans.
— Já, yðar herradómur, það er
þessi nýi náungi, sagði Jósep. —
Þessi Luigi Lamengs. Ég hef
enga persónulega óvild gegn hon-
um — og hann setti upp hræðilegt
glott, — ég mundi ekki gera flugu
mein af persónulegum ástæðum,
en það er góður staður þarna á
tröppunum og þjónarnir yðar
settu hann þar. Náttúrlega er
ekkert við þviað segja, ef hann er
betlari yðar herradóms — þá
verður hann samt að gjalda sinn
skerf, þvi aö það er föst regla. En
að hann er ekki betlari yðar
herradóms — og þér skiptuð yður
ekkert af honum i morgun....^
— Þegiðu! sagði biskupinn og
var nú reiður. Er það alvara að
ætla að segja mér að stæðin á
tröþpunum séu seld og leigð ykk-
ar i milli? Þetta er guölast — sala
á trúarlegum verðmætum.
— Yðar herradómur getur
kallað þaö hvaða ljótum nöfnum
sem vera vill, sagði Jósep
þrjózkulega, — en þetta hefur við-
gengizt alla þá stund sem betlar-
ar hafa verið til i Remo. Sjálfur
greiddi ég tuttugu krónur fyrir
mitt stæöi, og keppti um þaö við
hann Maco gamla. En það er nú
önnur saga. Yðar herradómur á
auövitað rétt á einum betlara, ef
þér kærið yður um — um það
erum við allir á einu máli. En
spurningin er bara: Er þessi
maður betlari yðar herradóms,
eða er hann það ekki?
— Og ef ég nú segi, að hann sé
ekki minn betlari, sagði biskup-
inn sjálfandi.
— Það er nú einmitt það, sem
við viljum vita, sagði Jósep. — Og
ég þakka yðar herradómi kær-
lega fyrir. Ég hafði mina skoðun
á þessum manni frá fyrstu byrj-
un. En við erum nú komin með
hann niður að ánni — Carlo og
Benito og hún Marta gamla
blinda, hún lætur ekki aö sér
hæða, hún Marta biinda — og þeg-
ar við erum búin að ganga frá
honum, ónáðar hann ekki yðar
herradóm framar. Og siðan
framdi hann klunnalega hreyf-
ingu i kveðjuskyni og sneri sér til
að fara.
— Biddu við, sagði biskupinn.
— Viljið þið kannski hafa morö á
samvizkunni?
— Yðar herradómur tekur
þetta of hátiðlega, sagði Jósép og
tvisteig. Hvað er einn betlari til
eöa frá? Við erum hvorki rikt eða
lært fólk, og fáumst þvi ekki um
smámuni, eins og yðar herra-
dómur. Við timgumst og drep-
umst og svo ekki meira meö það.
Og jafnvel þegar bezt lætur, eru
dómkirkjutröppurnar ekki neinn
rósabeður.
Biskupinn langaði að segja
margt, en mundi ekki nema eitt.
— Ég tilkynni ykkur hérmeð,
aö þessi maðurer betlarinn minn,
sagði hann. — Hann er undir
minni verndarhendi.
— Nú, það er vel mælt hjá yðar
herradómi, sagði Jósep ólundar-
lega, — og þá getum við sjálfsagt
látið hann fá stæöi. En ef maður-
inn á að sleppa með heilli húð, þá
er betra, að þér komið með mér,
þvi að eitthvað var hún Marta
gamla að tala um að skera af hon-
um eyrun, þegar ég fór frá þeim.
Þeir fundu þvi Luigi, sem var
bundinn en samt hinn kátasti, i
herberginu hans niðri viö ána, i
varðveizlu þeirra, sem Jósep
hafði nefnt, en það voru
krypplingur, dvergur og blind
kona. Glugginn út að ánni var op-
Krahba-
merkið
Hrúts
merkið
21. marz —
20. aprll
Þú þarft að auka
þekkingu þlna til þess
að draumar þinir fái
rætzt. Llklega rekur á
fjörurnar hjá þér kær-
komiötækifæri til þess
og láttu ekki happ úr
hendi sleppa, þvi að
óvlst er hvenær þér
býðst ajinað sllkt.
Helgin er kjörin til
stuttra ferðalaga.
Nauts-
merkið
21. aprll —
21. mal
Þér hættir til að láta
fagurgala og smjaður
blekkja þig i þessari
viku og þess vegna
ættirðu að vera vel á
veröi gagnvart sllku.
Fjármálin eru ekki I
sem beztu lagi og þú
ættir að einbeita þér
viö aö henda reiður á
þeim, áður en i óefni
er komiö.
Tvlbura-
merkið
22. mal —
21. júni
Ekkert getur komið i
veg fyrir velgengni
þina annað en þinn
eigin klaufaskapur.
lhugaöu þvi vandíega
ráöstafanir þinar og
leitaðu ráða hjá sér-
fræðingum, áður en þú
ræðst I ný verkefni.
Liklegt er, að skyld-
menni þin leiti á náðir
þinar og þá ættir þú af
bregðast vel við.
22. júni —
23. júll
Þú mátt búast við
mörgum óvæntum
atvikum næstu daga,
en láttu það ekki raska
ró þinni, þvi að jafnvel
þótt útlitið sýnist
svart, snýst allt til
betri vegar að lokum.
Eyddu tima þinum
ekki til einskis, þvi að
þér veitir ekki af að
halda á spöðunum
þessa dagana.
Ljóns
merkið
24. júll
24. ágúst
Þér hlotnast óvænt
upphefð, sem þó hefur
staðið lengi til að veita
þér. Gamall kunningi
þinn litur inn hjá þér
og þið eigið skemmti-
lega stund saman. Ný
áhugamál og breytt
aðstaða á vinnustað og
heimili veita þér
aukinn lifsþrótt og
yndi.
Meyjar
merkið
24. ágúst —
23. sept.
Liklegt er að þú þurfir
aö standa i nokkru
stappi til að ná rétti
þínum. Gættu þess þá
að láta ekki skapiö
hlaupa meö þig i
gönur, þvi að þá er
voðinn vis og voþnin
snúast I höndunum á
þér. Með nægri gætni
og varúð áttu að
standa með pálmann i
höndunum að lokum.
40 VIKAN 3 . TBL.