Vikan - 17.01.1974, Blaðsíða 48
migdreymdiB
Fjórir draumar.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig eftir-
farandi drauma.
Fyrir u.þ.b. þremur árum dreymdi mig, að ég væri
stödd á þriðju hæð í húsi og vera að horfa út um glugg-
ann. Fyrir f raman húsið var f lugvöllur og þar var litil
silf urlituð flugvél að taka sig á loft og aftur úr henni
stóð reykstrókur eins og úr þotu.
Hún flaug beint upp og myndaði tölustafinn 8 með
reyknum og i kringum hann þrjár stjörnum, en siðan
hrapaði hún niður á flugvöllinn og varð af mikil
sprenging og eldur. í draumnum var alveg heiðskírt.
Næsti draumur var á þessa leið:
Mér fannst ég aka í hestvagni, sem fjórir brúnir
hestar voru spenntir fyrir. Snjór var yfir öllu svo
langt sem augað eygði. Allt i einu veltur vagninn með
mig, en ég stend upp ómeidd og tek hestana og teymi
þá áfram.
Á leið minni rekst ég á tvo hesta til viðbótar. Annar
þeirra var grár en hinn hvítur. Ég var orðin nokkuð lú-
in, svo að ég fer á bak gráa hestinum og kemur þá sá
hvíti á bak fyrir aftan mig og aftastir allir þeir brúnu.
Sat ég þá á hálsi hestsins, en hann gekk þungum
skref um með okkur öll á baki sér og var mjög af hon
um dregið. Þá fannst mér hviti hesturinn tala til min
og segja: ,,Þér tekst þetta ekki", og ég svara honum
og segi: ,,Ég veit það!" Um leið datt ég at baki hestin
um og niður í snjóinn og horf i a ef tir hestunum, þar til
þeir hurfu mér.
Þriðji draumurinn var svona:
Mér fannst litla dóttir mín hafa dvalið um tima uppi
í sveit og eg var að fara þangað akandi til að sækja
hana. Ég var að verða komin á leiðarenda og ók með-
fram vatni. Þá verður mér litið til hægri og sé þá prest
standa fremst á lítilli bryggju, sem stóð út í vatnið, og
var hann klæddur svartri hempu. Mér fannst prestur
inn vera að slæða lík upp úr vatninu og þóttist viss um
að það væri lik dóttur minnar. Þó sá ég aldrei neitt lík.
i f jarska var litil kirkja og var hún mjög illa farin,
veðurbarin og öll málning flögnuð af henni.
Mér var illa brugðið og sný við heim á leið án þess að
tala við nokkurn og f innst alveg nauðsynlegt að ná tali
af manninum mínum sem allra fyrst.
Þegar ég er.að verða komin heim aftur, bilar bíll
inn, en í því sé ég hvar maðurinn minn kemur akandi á
móti mér og gef ég honum merki um að nema staðar.
Þegar hann stigur út úr bílnum, kemur annar bill á
f ullri ferð og ekur yf ir hann og fannst mér hann deyja
af völdum slyssins.
Allt í einu var ég komin heim og leið af skaplega illa.
Þá fannst mér maðurinn minn koma inn og vera
klæddur gráum frakka. Eg vissi i draumnum, að
hann var dáinn. Hann gekk til mín og tók utan um
mig og fannst mér stafa frá honum mjög mikilli góð-
semi og blíðu. Þá fór ég að gráta og bað hann um að
fara ekki frá mér, en hann leit brosandi á mig og
sagði: ,,Ég verð að gera það, en þetta verður allt í
lagi".
Síðan hvarf hann mér sjónum.
Síðasti draumurinn var á þessa leið:
Mér fannst ég líta í spegil og sjá að ég var komin
méð tveggja til þriggja daga daga gamalt skegg. Ég
fór að hlæja að þessu og segi: ,,Þetta er ekki hægt. Ég
verð að raka mig". Síðan fór ég inn í baðherbergið og
rakaði af mér skeggið með áhöldum mannsins míns.
Með fyrirfram þakklæti fyrir ráðninguna.
K.L.F.
Þessir draumar eru ærið margslungnir og langt er
frá þvi að þeir séu auðráðnir, þó aö ýmis tákn í þeim
séu mjög skýr og óvéfengjanleg. Lik er til að mynda
oft fyrir láti þess, sem það er af, en þar sem þú sást
aldrei lík dóttur þinnar í draumnum, er þér óhætt að
reiða þig á að sú merking á ekki við í þessum draumi.
Líklegra er að samband ykkar mæðgnanna verði nán-
ara i framtiðinni og þið trúið hver annarri fyrir ykkar
hjartans málum, en til þess hafið þið ekki verið eins
opinskáar hvor við aðra og æskilegt væri. Sama er að
segja um slys það, sem maðurinn þinn varð fyrir í
draumnum. Hjónaband ykkar verður enn betra í
framtiöinni en það hefur verið til þessa.
l fyrsta draumnum er talan 3 mjög áberandi og lík-
lega merkir hún þrjú mismunandi störf, sem þú rækir
af frábærri hæfni og atorku.
Hestadraumurinn er þá sömuleiöis fyrir gæfu, þar
sem þú losnar auðveldlega og eins og óafvitandi við
hina leiöu förunauta svörtu hestana, en þeir eru oftast
fyrir slæmu i draumum, en atburðarrásin í þessum
draumi gerir það að verkum, að draumurinn i heild
sinni boðar þér hamingju.
Skeggdraumurinn er fyrir þvi, að þú hafnar visvit-
andi f jármunum, sem þú sérð í hendi þinni, að myndu
færa þér litla gæfu.
Tennur
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi draum i nótt, sem mér finnst nokkuð
skrítinn og bið ég þig þess vegna að ráða hann.
Mér fannst elzta systir min vera að útvega mér og
annarri systur minni vinnu, þar sem hún vann. i
draumnum var hún enn að vinna þar. Hin systir mín
var byrjuð að vinna, en ég átti að byrja daginn eftir
Systrum mínum fannst, að ég yrði að vera með
falskan tanngóm, sem eldri systir mín átti í draumn-
um, en hún er með sinar tennur ennþá í raunveruleik-
anum. i draumnum var ég nefnilega með skemmd í
einni framfönninni, sem er alveg heil í rauninni.
Tanngómurinn passaði ekki upp í mig, en tennurnar í
honum voru mjög fallegar.
Vonast eftir skjótri birtingu.
Með fyrirfram þökk.
E.B.S.
Þú verður eitthvað smávegis veik, en alls ekki al-
varlega. Systir þin hins vegar, sú sem átti góminn í
draumnum, verður fyrir óvæntu happi.
48
VIK.AN
3 . TBL.