Vikan - 31.01.1974, Blaðsíða 14
Kinverskar konur, sem voru af sæmilegum ættum, urBu lengi að
þjást óbærilega vegna þess aö fætur þeirra voru reirðir, svo aö þeir
yröu ekki stórir og grófir. Fótanett kona var tekin fram yfir aörar og
oft gengu foreldrarnir svo langt I þvi aö reira fætur dætra sinna, að þær
hlutu varanleg örkuml af. Mýmörg dæmi voru þess, að þær voru ófærar
til gangs, en það kom ekki aö sök — fæturnir voru smáir og álitnir mikil
prýöi. Nú mun þessi illi og ómannuölegi siöur aflagöur austur i Kina og
er þaö vel.
En viö þurfum ekki aö fara austur i riki Maos formanns til þess að
horfa upp á illa meöfarna fætur. Þeir blasa hvarvetna viö á götunni.
Tizkan er haröur húsbóndi og hún hefur undanfarnar aldir lagt miklar
andlegar og likamlegar þjáningar á mannfólkiö. Konurnar ganga með
pilsin upp á miöjum lærum eöa niöur á kálfa, ýmist á flatbotna skóm,
tituprjonshælum eða þykksóla skóm — allt eftir þvi, hvaö tizkan krefst
hverju sinni. Við liggur, að hvaö sem er sé lagt i sölurnar. Til þessa
hafa karlmennirnir kannski ekki verið alveg eins leiöitamir I tizkunni
Rómverskir glerskór frá 3. og 4. öld.
Feneyskur kvenskór frá 14. öld.
italskur tréskór frá endur
reisnartimabilinu á 14. öld.
Gotneskur ranaskór
frá 15. öld.
Itanaskór meö undirskó
frá 15. öld.
Rokokoskór frá 18. öld.
Ballskór Metternich furstaynju
frá 1860.
Reiöstigvél Elisabetar 1.
Englandsdrottningar frá 16. öld.
10 VIKAN 5. TBL.