Vikan - 31.01.1974, Page 26
Vinsælasta hljómsveitin 1973: 1. Brimkló (111) 2. Pelican (61) - 3. Hljómar (38) 4. -5. Haukar/Roof Tops (28) Vinsælasta 2ja laga piatan: 1. Qandy Girl (138) 2. Don’t try to fool me (97) 3. Minning um mann (29) 4. I didn’t know (21) 5. Joe the mad rocker (13) Vinsæiasti lagasmiðurinn: 1. Jóhann G. Jóhannsson (126) 2. Gylfi Ægisson (98) 3. Magnús Kjartansson (56) 4. Magnús og Jóhann (33) 5. Bjarki Tryggvason (8) Vinsælasti söngvarinn: 1. Jóhann G. Jóhannsson (107) 2. Magnús Kjartansson (75) 3. Magnús og Jóhann (38) 4. Bjarki Tryggvason (33) 5. Ingvi Steinn (11)
ÚRSLIT
VINSÆLDA-
KOSNINGAR
-te
Bjartasta vonin 1974:
1. Hljómar (75)
2. Brimkló (35)
3. —4. Andrá/Change (33)
5. Júdas (29)
(Jrslit vinsældakosningar 3m
' Þá eru kunn úrslit fyrstu vin-
sældakosningar þáttarins. Þátt-
taka var mjög góö og vil ég nota
tækifærið og þakka lesendum
þáttarins fyrir. Alls bárust 326
atkvæöaseðlar og skiptust at-
kvæöin á marga. Samkvæmt fyrri
kosningum og getraunum, sem
blaöið hefur staöiö fyrir, mun láta
nærrj að um 15% lesenda taki
þátt. Þaö merkir, aö fastir les-
endur þáttarins muni vera pm
2200 talsins. Aberandi mest af
seölunum barst utan af landi.
Vinsælasta hljómsveitin 1973:
Hljómsveitin Brimkló var kjör-
in vinsælasta hljómsveitin áriö
1973. Hlaut hún alls 111 atkvæöi
eöa 34% greiddra atkvæða. Var
hljómsveitin nokkuö langt á und-
an næstu hljómsveit, sem varö
Pelican.
Pelican hlaut alls 61 atkvæöi eða
19% greiddra atkvæða. í þriðja
sæti komu nýendurvaktir
Hljómarog hlutu alls 38 atkvæöi
eöa 11% greiddra atkvæöa.
Hljómsveitirnar Roof Tops og
Haukar voru jafnar að atkvæö-
um, hlutu 28 atkvæði hvor hljóm-
sveit. Er þaö 8% greiddra at-
kvæöa. Næstu hljómsveitir voru
þessar, i réttri röö: Andrá, Júdas,
Eik, Change og Steinblóm.
Vinsælasta 2ja laga platan:
Magnús og Jóhann áttu vin-
sælustu 2ja laga plötuna árið 1973,
Candy Girl. Candy Girlhlaut alls
138 atkvæði eða 42% atkvæða. Er
það hæsta prósentutala i öllum
kosningunum. 1 öðru sæti kom Jó-
hann G. Jóhannsson með lagið
sitt Don’t try to fool me. Don’t try
to fool me hlaut alls 97 atkvæði
eöa 29% greiddra atkvæða. Minn-
ing um mann með hljómsveitinni
Logum kom f þriðja sæti og hlaut
alls 29 atkvæði eða 8% greiddra
atkvæöa. I didn’t knów
meö Magnúsi Kjartanssyni kom i
fjóröa sæti og nlaut alls 21 at-
kvæöi eöa 6% atkvæöa. Jóhann G.
Jóhannsson kom svo aftur i
fimmta sæti fneð Joe the mad
rocker.Það hlaut alls 13 atkvæði
eða 3%. Næstu fimm 12ja laga
plötur voru þessar, i réttri röð:
Jibbý Jey, Flakkarasöngurinn,
Lifið er leikur, Yakkety Yak og
Kvöld.
edvard sverrisson
músflí með meiru
Vinsælasti iagasmiðurinn 1973
Jóhann G. Jóhannsson var kos-
inn vinsælasti lagasmiðurinn.
Hann hlaut alls 126 atkvæði, sem
eru 38% atkvæða.’l öðru sæti kom
Gylfi Ægissonog hlaut hann 98 at-
kvæöi eða 30%. Magnús
Kjartansson kom i þriðja sæti,
hlaut56atkvæðieða 17%. Magnús
og Jóhann komu i fjórða sæti og
hlutu þeir alls 33 atkvæði sem eru
10% greiddra atkvæða. Bjarki
Tryggvason kom svo i fimmta
sæti og hlaut hann 8 atkvæði eða
2%. Næstu tvö sæti skipuðu
Gunnar Þórðarson og Björgvin
Gislason.
Vinsælasti söngvarinn 1973:
Jóhann G. Jóhannsson var kos-
inn vinsælasti söngvarinn. Hlaut
hann þar með tvö sæti af fímm,
sem um var keppt. Jóhann hlaut
alls 107 atkvæði eða 32% greiddra
atkvæða. Magnús Kjartansson
hlaut annað sætið og fékk hann
alls 78 atkvæði eða 23% greiddra
atkvæða. Magnús og Jóhann
hlutu þriðja sætið saman, fengu
38atkvæðisem eru 11% atkvæða.
Bjarki Tryggvason kom i fjórða
sæti, hlaut 33 atkvæði eða 10%
Ingvi Steinnkom i fimmta sæti og
fékk 11 atkvæði, sem eru 3%
greiddra atkvæða. I næstu fimm
sætum komu þessir i réttri röð:
Pétur Kristján'sson, Bjarni
össurarson, Ari Jónsson, Rúnar
Júliusson og Guðmundur Haukur.
Bjartasta vonin 1974:
Hljómar hlutu titilinn
„bjartasta Vonin 1974”. Hlutu
þeir alls 75 atkvæði, sem eru 23%
greiddra atkvæða. I öðru sæti
kom Brimkló/ékk 35 atkvæði eöa
10%. 1 þriðja og fjórða sæti komu
hljómsveitirnar Change og
Andrá, en þær hlutu 33 atkvæði
eða 9% greiddra atkvæða. 1
fimmta sæti kom svo Júdas, hlaut
29 atkvæði eða 8% greiddra at-
kvæða. 1 sjötta sæti kom hljóm-
sveitin Pelican, sem hlaut aðeins
þremur atkvæðum færra en
næsta hljómsveit á undan. Aðrar
hljómsveitir voru langt að baki
þeirra, sem nú hafa verið nefndar
og voru allar með svipað at-
kvæðamagn.
í NÆSTA
ÞÆTTI
1 næsta þætti verða lit-
myndir af Jóhanni G.
Jóhannssyni og Magnúsi og
Jóhanni. Auk þess verður
greint frá verðlaunahöfum
kösningarinnar, þ.e. hverjir
hljóta plöturnar 20, sem
veittar eru sem viöurkenn-
ing fyrir þátttöku i vinsælda-
kosningu þáttarins. 1 þar-
næsta blaði, sem er 7. tbl. og
kemur út 14. febrúar, verður
svo litmynd af Hljómum.
22 VIKAN 5. TBL,