Vikan - 26.06.1975, Blaðsíða 2
Vastúlka
Vikunnar 1975
Keppni VIKUNNAR og tisku-
verslunarinnar EVU um titilinn
Vorstúlka Vikunnar 1975 hefur
sannarlega mælst vel fyrir, það
sýnir hin ágæta þátttaka lesenda
i vali þeirra, sem efstu sætin
hrepptu.
A ritstjórn Vikunnar var reglu-
legt kosningaandrúmsloft, meðan
verið var að telja upp úr kassan-
um. Lengi framan af virtust at-
kvæðin skiptast svo jafnt, að úr-
slit hlytu að verða tvisýn, en
smám saman skyrðust linurnar,
og endanlegt val lesenda var.ótvi-
rætt.
Þorgerður Kristjánsdóttir hlaut
flest atkvæði og samtals 2370 stig,
en gefin voru 3 stig fyrir atkvæði i
fyrsta sæti, 2 fyrir atkvæði i ann-
að sæti og 1 fyrir atkvæði i þriðja
sæti. Þorgerður hreppti þvi titil-
inn og ttaliuferð með ferðaskrif-
stofunni SUNNU.
Næstar að stigum urðu Ingveld-
ur Hrönn Björnsdóttir með 2250
stig og Kristin Hafsteinsdóttir
með 1902stig. Ingveldur Hrönn og
Kristin hljóta að launum fatnað
að eigin vali frá EVU fyrir 25 og
15 þúsund krónur.
Raanheiður Hermannsdóttir,
Sigriður Guðjónsdóttir, Rannveig
Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðar-
dóttir og Svanborg Jónsdóttir
fengu einnig allar mörg atkvæði i
sinn hlut, enda vorum við á
VIKUNNI fegin að láta lesendum
eftir að velja á milli þessara
elskulegu stúlkna. VIKAN og
EVA þakka öllum átta stúlkunum
fyrir þátttöku i þessari jöfnu og
skemmtilegu keppni og lesendum
fyrir þeirra hlut.
Dregið hefur verið um, hverjir
hljóti hálfsársáskrift að launum
fyrir þátttöku i vali á Vorstúlku
Vikunnar, og eftirfarandi nöfn
voru dregin út:
Hrefna Stefánsdóttir, Ljós-
vallagötu 10, Reykjavík.
Lilja Ástvaldsdóttir, Aðalgötu
22, Siglufirði.
Friðbjörn Marteinsson,
Hafnarbyggð 35, Vopnafirði.
Hermann Þ. Guðmundsson,
Aðalstræti 14 Patreksfirði.
Laufey Þorsteinsdóttir,
Langholtsvegi 159, Reykjavik.
Æ
2 VIKAN 26. TBL
Þorgerður Kristjánsdóttir hafði
nýlokið prófum i Lindargötuskól-
anum, þegar hún fékk að vita úr-
slitin. Hún brást glöð við og sagð-
ist vitanlega hafa vonast ef tir ein-
hverju af éfstu sætunum. — En
mér fannst við allar hafa jafna
möguleika, sagði hún.
Vikan spurði Þorgerði, hvers
vegna hún hefði tekið þátt i þess-
ari keppni. — Ég var litið spennt
fyrir þessu til að byrja með, þvi
ég er á móti fegurðarsamkeppni
yfirleitt, sagði hún. En við nánari
umhugsun fannst mér þetta allt
annað, nánast bara leikur.
— Hvenær ætlarðu að notfæra
þér verðlaunin?
— Ég hef bara ekkert hugsað
um það, en það verður að minnsta
kosti eitthvað að biða, þvi ég er á
i'örum til Noregs, þar sem ég vinn
á sjúkrahúsi i Osló næstu þrjá
mánuði, og i haust fer ég i
Hjúkrunarskólann. En vonandi
verða einhver ráð með að njóta
vinningsins.
— UtanlaDdsferð er vitanlega
ekkert framandi ungu fólki nú ;i
dögum. Heldur þú, að unga fólkið
hafi það ef til vill ol gott núna'.'
— Sumir hafa áreiðanlega of
mikið l'é á milli handanna og
kunna svo ekki með það að fara.
Annars hef ég engar sérstakar
skoðanir á vandamálum ungs
fólks.
— Finnst þér stúlkur hafa
sömu réttindi og möguleika i lif-
inu eins og piltarnir?
— Ég hef ekki rekið mig á ann-
að sjálf, og ég er engin kvenrétt-
indakona. En mér finnst til dæmis
alveg ófært, að konur fái ekki
sömu laun fyrir sömu störf og
karlar. Jafnrétti kynjanna er
vissulega ekki ennþá i reynd, en
allt er þetta i áttina. Og mér
finnst sjálfsagt, að konur mennti