Vikan - 26.06.1975, Blaðsíða 13
leysisköst, en ég hnupla hér orð-
um skáldsins og bendi á aö „ég
ræðst alltaf á þaö sem mér er um
megn, og þess vegna get ég aldrei
frelsað heiminn.”
Með kveöju frá húsmóður i
dreifbýlinu.
Frímerki.
Ó elsku Póstur!
Ég vona að þetta bréf lendi ekki
i þinni frægu ruslakörfu. Nokkrar
spurningar.
1. Hvar getur maður gengið i
Frimerkjasafnarafélag tslands?
2. Hvað kostar það?
3. Nýtur maður nokkurra sér-
réttinda?
Vertu sæll eða sæl, Björn 13.
Félagið heitir nú reyndar Félag
frlmerkjasafnara og utanáskrift
þess er Pósthólf 171, Reykjavik.
Ársgjald félagsmanna er 200—300
krónur, en sú þjónusta, sem
félagið lætur einkum af hendi við
félagsmenn er fólgin i fundar-
höldum, en félagið kemur
frimerkjasöfnurum i samband
hvern við annan og heldur með
þeim fundi, þar sem þeir ræða sin
máiefni.
Post scriptum:
Ég gleymdi öllu þessu, sem
maður sér venjulega skrifað i
Vikunni, svo sem stjörnumerkja
fyrirspurnum o.s.frv. En vitið
þið, hvar er hægt að finna
stjörnuglóp, sem gerir hóróskóp?
Ég veit, hver og hvar Astró er, en
segið mér eitthvað um aðra
stjörnuspekinga. Og um Amy
Engilberts. Með efni Vikunnar er
ég harðánægð, kannski óþarflega
margar auglýsingar en þó allt i
lagi, ef verð fylgir auglýstri vöru.
Ég þægi fleiri smásögur
innlendra höfunda. Annars er
Vikan i minum augum afbragð
annarra blaða, utan eitt atriði. Ég
get ekki keypt hana eins oft og
mig langar til, hún er svo dýr
fyrir minn efnahag. Fint hjá ykk-
ur að hafa tiskusiðu. Bilasiðurnar
eru fyrirtak. Mig langar lika til að
þið fáið viötal viö konur á öllum
aldri t.d. einu sinni i mánuði. Svo
langar mig, ef þið sjáið ykkur
fært, að hafa fréttapistil úr sitt
hverju byggöarlagi annaö veifið,
gjarnan meö myndum, þar sem
væru þá viötöl við ýmsa af
staöarbúum, gæti verið tilbreyt-
ing fyrir blaðamann að skreppa.
Og svo er ég svo veiklynd að
spyrja. Hvað lestu úr skriftinni,
og er réttritun mjög ábótavant?
Ég veitum hroðvirknina og kæru-
leysið. Já, eitt enn, gætuð þið sýnt
mér inn i hljóðfæraverslanir, til-
greint verö á hljóöfærum og tekiö
viötal við Braga Hliðberg, Garðar
Jóhannesson, Magnús Ingimars-
son, Eyþór Þorláksson og aðra
góða menn?
Svo bið ég forláts á tilætlunar-
seminni, óvönduðu bréfsefni og
glórulausum vaðli úr einu i ann-
að.
Með vinsemd og virðingu B.G.
Þetta er reyndar óvenju Iangt
bréf til birtingar i Póstinum, en
það er óvenjulegt um fleira en
iengdina, og Pósturinn þakkar
bréfiö, hann hefur ekkert á móti
ritræpu af þessu tagi. Ekki er
vist, aö Vikan geti uppfyllt allar
óskir þinar varðandi efni, en þær
vcrða allar teknar til athugunar.
Skriftin er lagleg og bendir til
þess, að þú sért sjálfstæð og
ákveöin bæði við sjálfa þig og
aöra og auk þess gædd skopskyni,
sem er mikilsverður eiginleiki.
Og þú færð ágætiseinkunn fyrir
stafsetninguna.
Skulda 20 þús.
Kæri Póstur.
Þannig er mál meö vexti að ég
skulda vinkonu minni 20 þúsund
krónur, og ég hef enga vinnu og
engan pening. Kæri Póstur, viltu
segja mér hvað ég á að gera ann-
ars drepst ég næst þegar vinkona
min sér mig vegna þess að hún er
alveg óö i þá (peningana). Vilt þú
svara mér, annars kemst ég
aldrei lifandi út úr þessu. Hvað
heldur þú að ég sé gömul?
Ein, sem deyr næst þegar hún
sér vinkonu sina.
Ég fé ekki betur séð en aö þú
hljótir aö biöja vinkonu þina um
gjaldfrest. Það kann aldrei góðri
lukku að stýra að taka lán ncma
maður sé viss um að vera
borgunarmaöur fyrir þeim pen-
ingum, sem fengnir eru að láni.
Hitt er ég viss um að ef vinkona
þin er vinur i raun, þá mun hún
sjá I gcgn um fingur sér i þetta
sinn. Þetta þýðir þó ekki að alltaf
sé hægt að treysta þvi að vinir
haldist ef komiö er fram við þá af
óheiöarleika og að góður vinur
fyrirgcfi allt. Einatt er happasæl-
ast að ástunda heiðarleika en
steypa sér ekki út i skuldir án
þess að geta endurgreitt. Ætli þú
sért ckki 14 ára.
Pennavinir
Gunnhildur Konráðsdóttir,
Hamrahlið 14, Ýopnafirði vill
skrifast á við stráka og stelpur á
aldrinum 12—13 ára. Svarar öll-
um bréfum en óskar eftir mynd
með fyrsta bréfi. Hefur fullt af
áhugamálum.
-Svona, e'lskan, nú getum við kreist
þinn vinnuclap: uon í átta tíma op minn
niður í fimmtán op háLfan'
26. TBL. VIKAN 13