Vikan - 26.06.1975, Blaðsíða 28
Veður á
gataspjöldum
VeBurfarsdelld veöurstofunnar
vinnur úr flestum þeim gögnum,
sem veðurstofunni berast um
veðurfar. A veðurfarsdeildinni
eru veðurskeytin sett á gata-
spjöld, sem Skýrsluvélar rikisins
og Reykjavikurborgar vinna
siðan úr. Skýrslur veöurfars- og
úrkomumælingastöðvanna úti um
landiö berast beint til veðurfars-
deildar, sem vinnur úr þeim við
mánaðar- og langtimayfirlit um
veðurfar. Meginniöurstöður
þessara rannsökna eru prentaðar
I átta blaðsiðna riti mánaðarlega,
og auk þess er gefið út ársyfirlit
um veðurfar. Þær niðurstöður,
sem prentaðar eru, eru aðeins
örlitið brot af þeirri úrvinnslu, sem
fram fer á veðurfarsdeild, en öll
gögn um veðurfar eru varðveitt i
skjalasafni veðurstofunnar, sem
er i umsjá veðurfarsdeildar.
Veðurfarsdeild gefur einnig út
veðurvottorð, en þeirra er iðulega
þörf vegna málarekstrar vegna
slysa og annarra óhappa, sem
veður kann að hafa haft áhrif á.
Deildarstjóri veðurfarsdeildar
er Adda Bára Sigfúsdóttir.
Tról.
Guðmundur Hafsteinsson veðurfræöingur greinir veðurkort, og
Markús A. Einarsson veitir upplýsingar um veöriö á Snæfellsnesi I
sima.
Veöurfregnum útvarpaö klukkan 10.10. Þegar viö heimsóttum
veöurstofuna, kom þaö I hlut Hrafns Karlssonar aö flytja útvarpshlust-
endum nýjustu fregnir af veörinu.
28 VIKAN 26 TBL.