Vikan - 18.09.1975, Qupperneq 22
Dapurlegum hluta I sögu Súez-
skurðar er lokið. Fagurlega
skreytt skipalest siglir „friðar-
siglingu” eftir skurðinum. Eftir
átta ára hlé er hann á ný alþjóð-
leg siglingaleið. t ræðunum, sem
haldnar voru við enduropnun
skipaskurðarins, gleymdist þó
öllum ræðumönnum að geta
mannsins, sem var miðpunktur
hátiðahaldanna við opnun
skurðarins fyrir 106 árum, Ferdi-
nands de Lesseps, sem skapaði
Súezskurðinn.
Minnismerkið um hann, sem
reist var við mynni skurðarins i
Port Said, var sprengt Moft upp
þegar árið 1956. Egyptar rifja ó-
gjarna upp nafn þessa hugsjóna-
manns, þvi að það er i hugum
þeirra órjúfanlega tengt biturri
reynslu þeirra á 87 fyrstu árum
skurðarins. En i öðrum heims-
hlutum er de Lesseps minnst sem
mikilmennis.
Samtimamenn lýsa þessum
franska diplómat, sem var af
aðalsættum og fæddist i Versölum
árið 1805, sem töfrandi manni,
frábærum dansara og áhugasöm-
um hestamanni. Það var þó
framar öðru þolinmæði hans, sem
aflaði honum frægðar. Lesseps
var auk þess gæddur framúrskar-
andi viljafestu. Hefði hann ekki
haft þann eiginleika, hefði skipa-
skurðurinn aldrei verið gerður.
Þegar Lesseps fékk þá hug-
mynd að tengja Rauða hafið Mið-
jarðarhafinu og stytta með þvi
siglingaleiðina milli hinnar
kapitalisku Evrópu og Asiu um
6000 sjómilur, voru valdhafar
þessa heims ekki ýkja hrifnir af
henni. Árum saman varð Lesseps
að vinna einn að þvi að hrinda
hugmynd sinni i framkvæmd.
Hann var tuttugu og sjö ára og
varakonsúll i egypsku hafnar-
borginni Alexandriu, þegar hann
af tilviljun fann i skjalasafni
konsúlatsins skýrslur um athug-
anir á möguleikum þess að tengja
Rauða hafið og Miðjarðarhafið
með skipaskurði. Napoleon Bona-
parte hafði látið gera þær.
Lesseps varð stórhrifinn af skjal-
inu. En það var ekki fyrr en árið
1849 — 17 árum siðar — að hann
fór að vinna að hugmyndinni. Þá
hafði hann hætt störfum i utan-
rikisþjónustunni.
Hann skrifaði skýrslu um
skurðinn á landsetri sinu i S-
Frakklandi og sendi hana Meh-
med Ali, þáverandi visikóngi I
Egyptalandi. Hann hugsaði sig
ekki lengi um og kvaðst ekkert
vilja hafa með þennan skurð að
gera, þvi að hann var sannfærður
um, að hann kæmi aðeins af stað
illdeilum stórveldanna við
strendur Egyptalands. Skynsam-
ur maður. Hann lést árið 1849.
Lesseps þóttist hafa himin
höndum tekið, þegar Mohammed
Said sonur Mehmeds Ali settist i
hásætið árið 1854, þvi að þeim
hafði orðið vel til vina, meðan
Lesseps starfaöi i Egyptalandi.
Þegar hann settist I hásætið,
sendi Lesseps honum hamingju-
óskaskeyti. Mohammed Said
endurgalt honum með þvi að
bjóða honum til Egyptalands.
Lesseps var fagnað eins og aðal-
bornum fursta, þegar hann kom
FRAKK/
EGYPTl
5. júni siðastliðinn héldu egyptar endur-
opnun Súezskurðar hátiðlega, en þann
dag voru átta ár liðin frá þvi sex daga
striðið braust út. Hér segir frá þvi, er
skurðurinn var grafinn, og saga hans er
stuttlega rakin...
til Alexandriu þann 7. nóvember
árið 1854. Viku siðar fékk hann
Mohanmed Said i hendur teikn-
ingar að Súezskurðinum. En enn
voru ljón á veginum. Visikóng-
urinn var hlekkur i valdakeðju
tyrkjavéldis og laut yfirstjórn
soldánsins i Konstantinópel.
Mohammed Said sagði, að
soldáninn yrði að lita á teikning-
arnar.
Um ieið voru fyrirhugaðar
17. nóvember 1869. Konungaskip vlgja skurðinn. A þessari samtimateikningu sést, að þá voru flest gufusk
22 VIKAN 38. TBL.