Vikan

Issue

Vikan - 18.09.1975, Page 38

Vikan - 18.09.1975, Page 38
Það þarf meira en þokka- fullt útlit til þess að fá að koma nærri mönnum eins og þeim á þessari slðu. Að vísu hefur leikkonan Gina Lollobrigida komist æði langt á útliti slnu, en I þess- um sjö tilfellum tók hún myndavélina með sér. Að yfirskini? Kannsld.. Neil Armstrong hinn dularfulli. Gina varð ▲ spennt fyrir fyrsta manninum, sem steig fæti sínum á tunglið. HUn hitti hann i Mexikóborg, þar sem hann fékk engan frið fyrir aðdáendum sinum. „Mig langaði svo mikið til að taka ljósmyndir af þessum einstæða manni, sem allur heimurinn dáðist að. MENNIRNIR SJÖ, SEM LEGAST AÐ MYNDA Paul Newman hinn kynþokkafulli. Það er engin furða, þótt Newman vekti ýmsar kvenkenndir með Ginu. „Um leið og ég sá hann, varð mér hugsað: Hvílikan kynþokka hefur hann ekki til að bera. Karl- maður frá toppi til táar. Mér leið eins og feiminni skóla- stelpu. Það var auðvelt að skilja, hvernig hann fer að þvi að halda sér ungum. Hann fer I stutt gufubað og stingur sér svo beint i fskalda laugina heima hjá sér.Hannsagði við mig: Mér finnst betra að vinna með konum en körlum. Þær eru alltaf ferskar og lifandi — og finna upp á öllu mögulegu.” Sjarmörinn Evgeny Evtushenko. Gina og rUssneska ljóðskáldið Evgeny Evtushenko drógust hvort að öðru strax og þau sáust I fyrsta sinn, en það var I Moskvu. Arangurinn varð þessi skemmtilega mynd af skáldinu. Gina segir: „Það var orðið mjög áliðið, þegar við skildum. Ó, hann var alveg æðislegur! Ég tók mynd af honum, þegar hann bauð mér til há- degisverðar, en við vorum fyrir löngu búin að ákveða að borða kvöldverð saman.... Hann gaf mér bók og skrifaði á saurblaðið: Til Ginu, sem égelska, þótt vonlaust sé....” --------------------► Salvador Dali. Það varð fagnaðarfundur, þegar Gina fór til að taka myndir af Salvador Dali, enda hafa þau þekkst „alltaf” eins og Gina segir. Hún stillti myndavél. og var svo sjálf með á mynd- inni ásamt Dali. „Ég bara varð að taka mynd af hon- um. Hann er svo stórkostleg- ur. Hann var að vinna að nýrri mynd. „Gina”, kallaði hann. „Ég gaf þér einstaka mynd.” og það gerði hann, þvi hann hefur aldrei látið neinn sjá hjá sér ófullgerða mynd.” 38 VIKAN 38.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.