Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 9
★ ★ ★
Eftir æfingu í Nörrebroleikhús-
inu árið 1916 haföi hinn frægi leikari
Frederik Jensen boðið Osvald
Helmuth, sem þá var ungur leikari,
upp á morgunverð á ,,La Reine".
Þeir fengu sér bestu kræsingar,
sem veitingahúsið hafði upp á að
bjóða, en I miðjum skammti
Helmuths lá kakkalakki. Helmuth
segir sjálfur svo frá:
Ég sat og rjálaði við hann með
gafflinum til að fjarlægja hann, en
égsagði ekkineitt, þvíég varungur
og óframfærinn þá. Svo tekur
Frederik Jensen eftir því, að ég sit
þarna svona skrítinn og pikka 'í
matinn, og þar eð ekkert var að þvl
að finna, sem hann hafði fengið,
spurði hann mig, hversvegna ég
borðaði ekki. Ég bendi honum á
dýrið, sko, og þá hljóp fjandinn I
Frederik Jensen. Hann varð band-
óður og öskraöi á þjóninn. Jæja,
þjónninn kom, og Frederik heimt-
aði að fá að tala við hótelstjórann,
en hann var ekki viðlátinn.
,,En framkvæmdastjórann þá,
þrumaði Frederik Jensen yfir sig
æstur. Þjónninn skildi mikilvægi
málsins og náði í hóteleigandann,
sem var lítill, snyrtilegur maður meö
yfirskegg, sko. Hann starði spyrj-
andi á Frederik Jensen, sem svaraði
meö því að benda ögrandi á diskinn
minn og segja með miklum þjósti:
,,Hvers vegna fæ ég engan
kakkalakka...?"
★ ★ ★
— Þetta er forstjórinn. Hann
ætlar að gista...
★ ★ ★
,,Tommi", sagði móðirin,
„amma er mikiö veik, getur þú nú
ekki farið inn til hennar og hresst
hana og glatt?"
,,Jú, mamma," sagðiTommi og
fórinntil sjúklingsins. En hann kom
brátt aftur, dapur á svip. ,,Gat
ekkert gert, mamma, henni virtist
heldur versna."
,,Hvað sagðirðu við hana,
góöi?"
,,Nú, ég spurði bara, hvort henni
mundi ekki þykja gaman að hafa
heiöursvörö við jarðarförina."
V
★ ★ ★
í NÆSTU VIKU
ÚR BORGARYS í
BÚSKAPINN
Þau heita Aðalheiður Dúfa Kristinsdóttir og Kristinn
Kristjánsson, hjón um þrítugt. Þau kvöddu ys og þys
borgarlífsins, keyptu jörðina Vatnholt 2 í Villinga-
holtshreppi og hófu búskap. Dúfa hafði þá aldrei i fjós
komið og meira að segja alltaf verið hrædd við hunda
og ketti. ! næsta blaði segja þau frá þessari miklu
breytingu, sem varð á högum þeirra, í fróðlegu og
skemmtilegu viðtali, sem blaðamaður Vikunnar átti við
þau.
FRAMHALDSSAGA
EFTIR H. G. WELLS
Niðurlag framhaldssögunnar eftir Helen Maclnnes er í
þessu blaði, og eflaust kveðja margir lesenda hana með
söknuði. En höfundurinn, sem þá tekur við, er ekki
siður frægur. í næstu Viku hefst framhaldssaga eftir
þann viðkunna enska rithöfund H. G. Wells. sem uppi
var á árunum 1866—1946 og skrifaði yfir 100 bækur um
dagana. Þekktastur varð hann fyrir vísindaskáldsögur
sínar, og í þeirra hópi er ,,Eyja dr. Moreaus”,
spennandi hrollvekja frá upphafi til enda.
LITIÐ VIÐ I
LAUGASKÖLA
Mörgum leikur sjálfsagt hugur á að fræðast örlítið um
heimavistarskóla, eins og þeir eru nú á tímum. ! næsta
blaði gefst lesendum Vikunnar kostur á að kynnast
einum slíkum, Héraðsskólanum að Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu, sem er gamalgróin mennta- og
menningarstofnum. Blaðamaður var þar ó ferð i vetur
og rabbaði þá við nokkra nemendur um lifið, eins og
það gengur fyrir sig i heimavistarskóla uppi í sveit.
ÁRINU FAGNAÐ
Á SÖGU
Allir vilja gera sér dagamun um áramót, hver ó sinn
hátt. Á seinni árum hefur sá siður færst í vöxt í
Reykjavík, að fjölskyldur eru saman á gamlárskvöld og
fagna tímamótunum með tilheyrandi flugeldaskotum
cg hlaupum á milli brennustaðanna, en að kvöldi
nýórsdags búast mamma og pabbi sínu besta skarti og
arka á nýársfagnað i einhverju veitingahúsinu. I næstu
Viku birtast myndir frá síðasta nýársfagnaði á Hótel
Sögu.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson, Þórdís Árnadóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson.
Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing
i Siðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega, kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 13.650 i ársáskrift. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst.
4. TBL. VIKAN 9