Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 20
/-----;------
Fáum nýja sendingu af
SUBARU
fyrir miðjan janúar
VINSAMLEGAST ENDURNÝIÐ PANTANIR
fjórhjóladrifsbíllinn, sem klifrar eins og geit,
vinnur eins og hestur en er
þurftalítill eins og fugl.
VERÐ CA. KR. 1,950 ÞÚSUND
fjórhjóladrifsbíll mes einu
handtaki inni í bílnum —
sem þýðir að þú kemst
nærri hvert sem er á
hvaða vegi sem er.
BÍLLINN — SEM ALLIR
TALA UM
framhjóladrifsbíll
sem verður
SUBARU
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v'Sogoveg — Simar 84510 og 8451 1
,,Þú sömuleiðis.” Hið eina sem
hún hafði getað komið niður var
einn súpudiskur.
,,En ég fékk mér morgunverð
fyrir næstum því fjórum klukku-
stundum.”
„Kaffi og ristað brauð, eða bara
kaffi?” Hann brosti til hennar til
þess að draga aðeins úr áhyggjum
hennar. En það var enn einkenni-
legur dapurleiki i augnaráði hennar.
„Hvernig hljóða hin skeytin, Web-
er?”
„Við skulum sleppa því þangað
til við höfum borðað,” sagði Jo.
Weber hafði sett hin skeytin í
vasa sinn og hóaði í þjónustu-
stúlkuna. „Morgun- eða hádegis-
verð?”
„Ég byrja daginn á morgun-
verði,” sagði David. „En hann má
gjarnan vera vel útilátinn. Egg,
skinka og bjúgu. Allt sem því'
fylgir.”
„Öjá, að Lundúnarsið. Ég kann
ágætlega við það.” Weber pantaði
það sama fyrir öll þrjú. „Við höfum
þetta einfalt, þá fáum við matinn
fljótt. Fallegt útsýni, finnst yður
ekki? Þetta er svissneski þjóðgarð-
urinn þarna fyrir handan. Þessi
fjöll...”
„Látið mig heyra slæmu frétt-
irnar,” sagði David. „Eru þær frá
Krieger eða Golay?”
„Ekki frá Krieger, en um hann,”
sagði Weber. „Á ég að segja yður
það eða viljið þér lesa frönskuna
mína. Ég skrifaði það niður þegar
McCulloch hringdi til mín i morgun.
Það var eftir að ég hafði fengið
hin...”
„Jájá. Hvað um Krieger?”
„Þeim tókst næstum því að
myrða hann,” sagði Jo og leit
undan.
„En hann er á lífi,” sagði Weber.
„Hann er hraustmenni og mun ná
sér aftur. Eftir einn eða tvo daga
getur hann yfirgefið sjúkrahúsið.”
„í Merano?” Hann hefur þá
aldrei fengið skilaboð mín, hugsaði
David. Hann teygði sig og tók um
hönd Jos. Hún var köld og stirð.
„Nei i Samaden,” sagði Weber.
„Það var ráðist á hann á flugvell-
inum þar."
„Hvernig?”
„Hann fékk innspýtingu aftan i
hálsinn. Það var notað meðal sem
getur leitt til dauða, ef ekki er gefið
rétt móteitur í tæka tíð. Vandræðin
eru þau að sjúklingurinn kemst ekki
nógu mikið til meðvitundar til þess
að tala og hefur kannski ekki
hugmynd um hvað hefur komið
fyrir hann, þannig að læknarnir vita
ekki hvað gera skal. Einkennin eru
þau að hann virðist hafa fengið
hjartaslag. En Krieger tókst að
komast til meðvitundar og segja
hvað gerðist.” Weber þagnaði og
hristi höfuðið. „Eftir það var aðeins
um það að ræða að hann fengi rétta
meðferð.”
„Þannig er það ávallt,” sagði Jo
og rödd hennar var hrjúf. „En fær
Hrádek rétta.meðferð? Æ, því send-
irðu ekki kúlu í gegnum hausinn á
honum á meðan færi gafst?” Hún
reyndi að draga til sín höndina.
Þeir litu báðir á hana. Svar
Davids var að halda þétt um hönd
hennar. „Það verður hlutverk
annarra,” sagði Weber, „og ef til
vill fyrr en þér haldið. Golay...”
Weber hikaði.
„Hafið þér heyrt frá honum?”
spurði David snöggt.
„Hann hringdi til mín fyrir einni
klukkustundu, vildi einfaldlega láta
okkur vita að þróun mála væri
hagstæð. Það getur haft tvöfalda
merkingu.”
David kinkaði kolli. Hvað eina
sem hann kynni að segja gæti virst
einum of gróft. Þróun mála hag-
stæð. Diplómatískt orðalag, en það
var ekki nóg. Hvenær átti að senda
ljósmyndirnar af Hrádek til Prag?
Hvenær ætluðu svisslendingar að
bera fram mótmæli sín? Það eitt
skipti máli.
Weber tók eftir þessari óræðu
þögn Davids, en hann lét sem
ekkert væri og hélt áfram að tala
um Golay höfuðsmann. „Auk þess
var minnst á einhver skjöl, sem
hefðu borist í hendur Kusaks.”
„Minnisbækumar? Hvað um
þær?”
Weber hleypti brúnum og var
bæði undrandi og áhugasamur.
„Minnisbækur?”
„Hvað um þær?” endurtók
David.
„Jaromir Kusak hefur fallist á
að láta gera afrit af vissum blað-
síðum, þannig að hægt sé að koma
þeim til Prag.”
David jafnaði sig eftir áfallið. í
kjölfar undrunarinnar fylgdi
dásamlegur léttir, en því næst náði
kvíðinn aftur undirtökunum.
„Hvenær?”
„Strax.” Það var þá þetta, sem
hafði verið að angra hann, hugsaði
Weber. Hann hélt að við værum
ekki nógu snarir í snúningum.
„Auðvitað verður farið mjög fint i
þetta. Fáeinar upplýsingar varð-
andi Hrádek verða látnar fylgja
harðorðum mótmælum.”
„Strax?” sagði David.
„Mótmælin koma seinna. Þau
þarf að orða vandlega. En aðalsönn-
unargögnin og upplýsingar Kusaks
er þegar búið að senda.” Weber
brosti. „Hraði er nauðsynlegur.
Eruð þér ekki sammála?”
David jánkaði þessu með augna-
tilliti sínu.
„Ég fylgist alls ekki með,” sagði
Jo.
David heyrði ekki einu sinni til
hennar. „En hver fékk Kusak til
20 VIKAN 4. TBL.