Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 13
i mér gríp ég í tómt
— Hvaða álit hefur þú á
íslenskri hljómplötuútgáfu?
— Mér finnst alltof margir vera
að semja og gefa út hreina
söluvöru. Ég á við, að menn semji
lög til þess aö þóknast áheyrend-
um, en spyrja ekki, hvað vil ég
segja? Það er skilningsleysi gagn-
vart hugsun einstaklingsins og
verður til þess að staðla hugsun
hans. „Svona vill fólk hafa hlut-
ina", segja menn. Gróðasjónar-
miðið ræður öllu. Ef þeir, sem
hugsa svona, verða allsráðandi á
markaðnum, þá er lögö hættuleg
gildra fyrir sjálfan mig og fleiri.
Kona nokkur sagði, að sér hefði
verið skapi næst að hætta við allt
jólahald, þegar hún heyrði lítinn
snáða kalla á jólunum: „Haltu
kjafti, snúðu skafti, aurinn eins og
skot..." Mér fannst þetta góð
predikun á jólum 1976. Hugsana-
gangur manna í dag snýst bara
um peninga, aftur peninga og enn
meiri peninga.
— Af hverju hætti Spilverkið
að nota enska texta við lög sín?
— Sú tónlist, sem hafði mest
áhrif á okkur, var með enskum
textum, en í rauninni sungum við
um sömu hlutina og við syngjum
nú. Við boðum mannkærleika og
hvetjum einstaklinginn til þess að
taka afstöðu. Við berum virðingu
fyrir hugsun einstaklingsins, en nú
er ég víst farinn að taka sjálfan
mig of hátíðlega. Það er nóg að
hafa þetta í huga.
Rokkskóli á
Þingvöllum
— Mér dettur í hug, að ein-
hverntíma í fyrndinni var stungið
upp á því, að stofnaður yrði
söngskóli á Þingvöllum. Öll slík
starfsemi er nefnilega bundin við
Reykjavík. Það gæti verið mjög
sniöugt að stofna rokk-skóla á
Þingvöllum. Þetta gæti verið
sumarskóli, t.d. þriggja vikna
námskeið með dansi, söng og
fleiru, svipuð íþróttanámskeiðun-
stuðmaða r
4. TBL. VIKAN 13