Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 11
um? Er rétt að neita öllu slíku og
bíða, þar til einhver kynni hafa
orðið? Ég myndi óttast, að strák-
urinn vildi ekki bíða. Er pillan
raunverulega hættuleg stúlkum
eða ekki? Viltu segja mér eitthvað
varðandi notkun hennar. Er hægt
að nota aðeins skamman tíma,
t.d. 4—6 mánuði og hætta síðan?
Verða tíðir þá óreglulegar?
Geturðu skilið, hvers vegna
strákar njóta þess að stríða mér á
því, að ég reyki ekki og hef aldrei
tekið ,,smók" og drekk ekki
heldur, nema með foreldrum mín-
um (og hef jú gaman af).
Hvað gæti ég gert til þess að
sigrast á hinni áköfu ályktun
minni, að ég sé öðruvísi en aðrar
stelpur og frábrugðin þeim að
einhverju leyti. Ég þjáist t.d.
sífellt af því, að mér finnst ég hafa
feitan rass, lítil brjóst og bólótt
andlit (ég hef það raunar). Ég vil
3Ó bæta því við, að enginn strákur
hefur nokkru sinni sagt orð um
neitt af þessu.
Ég kvíði nefnilega svo hræði-
lega fyrir þeim degi, sem þaö (þú
veist) verður fyrst, því að þá þarf
ég víst að opinbera allt, sem ég
þjáist mest fyrir.
Að lokum langar mig að spyrja
þig, hvenær þú telur mögulegt, að
ég losni við unglingabólurnar. Ég
hef haft þær í tvö ár og er alveg að
missa þolinmæðina. Ég hef nefni-
lega komist á þá skoðun, að
ekkert tjói að gera. Læknar geta
ekki hjálpað mér, ekki snyrtivörur
og ekki fullkomið hreinlæti. Fari
það og veri!
Vertu nú svo elskulegur að
hjálpa mér og svara þessum
spurningum mínum eins vel og þú
mögulega getur.
Með kveðju,
Adda.
Ég he/d, að réttast væri fyrir þig
að bíða róieg og æða ekki út í
neitt, sem þú gætir átt eftir að sjá
eftir síðar meir. Þér liggur ekkert
á, og ef strákurinn getur ekki
beöið, er hann einskis viröi fyrir
þig. Það eru mjög skiptar skoðanir
um það, hvort pillan sé hættuleg.
Fieiri munu þó telja hana hættu-
/ausa. Til eru a/lmargar gerðir af
pillunni, og það yrði því of langt
mál að segja frá notkun þeirra hér.
Það er hægt að nota pilluna í
skamman tíma, og á það ekkert að
breyta gangi tíða. Það er nú alltaf
dálítið erfitt að skija þessa stráka,
sem hafa gaman af því að strlða
ste/pum. Þetta er áreiðan/ega
ekkert hættulegt, svo að þú skalt
láta alla strlðni sem vind um eyru
þjóta.
Til þess að sigrast á þessari
minnimáttarkennd, sem þú segist
vera haldin, er auðveldast að
hugsa bara skynsam/ega. Það er
engin manneskja gallalaus, og
menn eru sjá/fir a/ls ekki dómbærir
á sína galla. Hættu að hugsa um
þetta og reyndu að vera örugg
með þig. Þú ert áreiðanlega ekkert
verri en aörar stúlkur á þínum
aldri. Þaö er algjör óþarfi fyrir þig
aö kvíða fyrirþessu og hinu. Þetta
kemur allt af sjálfu sér á sínum
tíma. Þú ættir að reyna að fara á
snyrtistofu og láta hreinsa á þér
húðina. Með því móti getur þú ef
til vill losnað við bannsettar ból-
urnar.
Pennavinir
Mrs. Kati O/schewski, Zeisigweg
62, D-509 Leverkusen, West-
Germany, óskareftir pennavinum.
Hún er 50 ára og skrifar eingöngu
Dýsku. Áhugamálin eru frímerkja-
söfnun og landafræði.
Við óskum eftir pennavinum á
aldrinum 15—16 ára. Erum sjálfar
15 ára. Áhugamál allt milli himins
og jarðar. Svörum öllum bréfum.
Ingibjörg Karlsdóttir, HHdur Stein-
dórsdóttir, O/ga Gísladóttir,
Margrét Torfadóttir, Ásdís E
Sigurjónsdóttir a\\ar í Nesjaskóla A-
Skaftafel/ssýslu.
Ágústa Halldóra Pálsdóttir Þernu-
nesi 10, Garðabæ óskar eftir
pennavinumáaldrinum9 —11 ára.
Sjálf erhún 10ára. Myndfylgifyrsta
bréfi ef hægt er.
Rósa Einarsdóttir Skrúðhömrum,
Tálknafirði óskar eftir að skrifast á
við stráka á aldrinum 13—16 ára.
Áhugamál: Hestar, diskótek,
popptónlist og strákar. Mynd fylgi
fyrsta bréfi.
Alda Glsladóttir Sólbergi, Tálkna-
firði óskar eftir að skrifast á við
stráka á aldrinum 13—16 ára.
Áhugamál: Hestar, diskótek,
popptónlist og strákar. Mynd fylgi
fyrsta bréfi.
Bjarni Sæmundsson Vegamótum,
Snæfellsnesi óskar eftir penna-
vinum á aldrinum 11 — 13 ára.
Sjálfur er hann 11 ára. Áhugamál:
Íþróttir, skák og frímerki.
— Bíddu aðeins, ég ætla rétt að líta á stjörnuspána.
11