Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 41
,,Ég ætlaði nú ekki að taka yður í
dýrlingatölu mina kæra, en mér
geðjast ákaflega vel að yður. Líka
brestum yðar.”
Gróa eldroðnar og van Gorek
hlær.
Hitt fólkið er niðursokkið í bók-
ina og umræður um hana, og van
Gorek situr hljóður og heldur um
hendur Gróu. Hún finnur ylinn frá
höndum hans streyma um sig alla
og með henni kvikna tilfinningar,
sem hún hefur ekki áður þekkt að
neinu marki.
Snemma á jóladagsmorgni hóp-
ast allir saman í dagstofunni á
Sundale og taka upp jólagjafirnar.
Börnin eru í sjöunda himni yfir
öllu fallega dótinu, sem þeim
áskotnast. Það eru finustu leikföng
og fallegustu föt, sem hugsast geta.
Cora May fær bunka af hljómplöt-
um. Hún biður Gróu að koma með
sér inn í litlu stofuna, þar sem
grammófónninn er, og hjálpa sér að-
spila einhver af fallegu lögunum.
Careen er orðin mikil vinkpna
Jollys og situr með hana í fanginu
og skoðar bók, svo Gróa fer með
Coru May, án þess að gera hinum
aðvart.
Þær koma sér vel fyrir hjá
grammófóninum og hlusta ó tónlist-
ina fylla loftið.
Cora May situr þétt hjá Gróu og
hallar sér upp að henni, Gróa
strýkur létt yfir hár litlu stúlkunnar
Henni þykir innilega vænt um litlu,
blindu stúlkuna og gleðst yfir hve
góðan árangur kennsla hennar ber.
Framhald í næsta blaöi.
Einstök þjónusta fyrir Stór-Reykjavík.
Við maeium flötinn og gerum fast verðtilboð.
Þér komið og veljið gerðina, við mælum og gefum yður upp endan
legt verð - án nokkurra skuldbindinga.
Athugið, að þetta gildir bæði um smáa og stóra fleti.
Þér getið valiö efni af 70 stórum rúllum eða úr 200 mismunandi gerðum
af WESTON teppum. Við bjóðum mesta teppaúrval landsins í öllum
verðflokkum: Kr. 1.180.- til 13.000.- m2
aWpð'- J||
cs 10 ú” ni s l3 rnI..ITTD
B - .. JI 1 I J-í 1
■ illi ii
J | i
Jón Loftsson hf. i JHSEEEII
Hringbraut 121 Simi 10600
dag. Þau aka í hestvagni, því herra
Palmer hefur farið til Hazelhurst í
,,kari” sínu. Hann er einn þeirra
efnuðu manna, sem eiga slíkt
undratæki þar um slóðir.
Gróa hefur sjaldan lifað skemmti-
legri dagstund en þetta ferðalag til
Brookhaven. Van Gorek er
skemmtilegur ferðafélagi, veðrið er
gott og vagninn þægilegur. Gróa er
í nýrri kápu, sem frú Palmer færði
henni frá New York og hún veit, að
hún gefur velættuðum og efnuðum
hefðarmeyjum ekkert eftir. í útliti,
þar sem hún situr í vagninum og
hallar sér upp að hægindinu.
Á jórnbrautarstöðinni í Brook-
haven verða mikiir fagnaðarfundir.
Careen er glæsilegri en nokkru sinni
fyrr og augu hennar ljóma af nýrri
gleði. Gróa þykist sjá, að vinstúlka
hennar sé oröin ástfangin. Og ó
heimleiðinni trúir hún Gróu fyrir
leyndarmáli. Ungur læknir i Ever-
green hefur beðið hennar. Hann
heitir Douglas Cramer og er alveg
dásamlegur segir Careen.
Gróa óskar henni innilega til
hamingju og samgleðst henni af öllu
hjarta.
Um kvöldið, þegar börnin eru
háttuð, hjálpast fullorðna fólkið að
við að skreyta jólatréð og koma
fyrir gjöfum. Gróa hefur aldrei séð
annað eins gjafaflóð. Fleiri hlaðar af
pökkum nó langleiðina til lofts.
Er þessu er lokið bjóða Palmers-
hjónin ungu stúlkunum og van
Gorek púns i bókaherbergi hússins
jg þar sitja þau í mjúkum stólum
við arineld og spjalla saman, meðan
kyirð og friður fellur á stóra húsið.
Frú Hamilton er gengin til náða,
svo þau eru þarna aðeins fimm.
Palmerhjónin eru að sýna Careen
nýútkomna bók, sem mikla athygli
hefur vakið, skáldsögu er nefnist
Main Street eftir mann Sinclair
Lewis að nafni.
Gróa er þreytt svo hún blandar
sér ekki í umræðurnar, en situr við
glugga og lætur sér líða vel, meðan
hugurinn reikar víða.
Skyndilega finnur hún, að hönd
er lögð á öxl hennar og lítur upp.
Van Gorek spyr, hvort hann megi
setjast hjá henni og hún játar þvi
brosandi. Hann sest á bekkinn hjá
henni og tekur báðar hendur hennar
i sínar.
,,Kæra, litla fröken Olson,” segir
hann. „Hvernig stendur á því, að
það er alltaf svona mikil ró og friður
yfir yður?”
Gróu verður svarafátt, hún held-
ur helst, að hún hafi alltaf verið
svona. Van Gorek segir henni þá, að
sér finnist það eins og að koma i
helgidóm að vera i nóvist hennar.
,,Ó, herra van Gorek, þetta
megið þér ekki halda. Ég er svo
ósköp hversdagsleg, með slæma
bresti eins og allir aörir.”
4. TBL. VIKAN 41