Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 45
Lagt út á hinn mjóa veg.
„bát” á þurru landi. sem ég átti að
rugga, og síðast en ekki síst, þá átti.
ég að hlaupa niður úr kjallara upp á
efstu hæð og niður aftur, 20 sinnum
fyrsta daginn. 80 hæðir!!!
Ég var borinn i rúmið eftir það og
svaf eins og maður allt til morguns i
fyrsta sinn í langan tíma.
Anna Stína vissi miklu meira um
alla mína likamsbyggingu en ég
sjálfur. Þegar ég var orðinn latur,
þá átti hún það til að pota með vísi-
fingri einhvers staðar í mig og
segja: „Þessi vöðvi. Finnurðu
hann? Þú þarft að þjálfa hann bet-
ur.” Og undan því varð ekki
komist, að nú varð ég að standa á
vinstra fæti og beygja mig ofan í
gólf, þar til ég sat á hælnum, og
rétta mig siðan upp aftur. Sama
hvað ég datt oft á hausinn...ekki
mátti ég hætta, fyrr en ég gat
þetta. Fyrst hélt ég, að þetta
væri ekki hægt, en þegar hún var
orðin ánægð, þá vissi ég, að ég vissi
ekki neitt.
Einu sinni i veðri, sem ég hefði
ekkj sigað hundi út í varð ég að
gjöra svo vel að fara í kapphlaup við
hana heilan hring i kring um spít-
alann — á tánum! Ég varð annar i
mark!
Svo fékk ég að fara.heim, og það
sem mér þótti einna einkennilegast
við heimkomuna var, að ég kveið
ekkert fyrir því að þurfa að labba
upp stigana á aðra hæð.
Kannski var það þessvegna, að
ég snéri mér við, þegar ég var
kominn út á götu og veifaði i áttina
til Grensásdeildarinnar og sagði
upphátt: „Guði sé lof fyrir Grensás-
inn!”
KARLSSON.
I grein í STERN er fjallar um
börn á villigötum sáum við
nokkur atriði, sem foreldrar ættu
að hafa í huga ef þeir vilja forða
barninu frá að verða vandræða-
barn.
Hér eru fimm veigamestu
atriðin:
1. Fyrstu þrjú árin í lífi barns er
nauðsynlegt að móðir eða nán-
ustu ætcingjar séu sem sjaldnast
fjarri barninu.
2. Foreldrar ættu oftar að lesa
fyrir börnin, sýna meiri þolin-
mæði og hlusta meira á þau.
Hrós er mjög mikilvægt fyrit
barnið.
3. Foreldrar eiga ekki að krefjast
þess af börnum sínum að þau
séu ávallt fremst í flokki. Ef
gerðar eru of miklar kröfur til
barna geta þau hæglega orðið
sinnisveik.
4. Fullorðnir ættu að minnast
sinnar eigin barnæsku og þarfar-
innar fyrir ærsl, hróp og köll. Því
er nauðsynlegt, ef þröngt er
heima fyrir, að leyfa barninu að
njóta frjálsræðis á útivistar-
svæðum.
5. Hin „rafknúna bamagæsla",
sjónvarpið, má ekki hafa of mikil
áhrif á heimilislífið. Börn undir
átta ára aldri ættu ekki að horfa
ein á sjónvarp, og þegar börn
eldri en átta ára horfa á sjónvarp-
ið, þá eiga foreldrar að gefa sér
tíma til að ræða viö þau um
sjónvarpsefniö.
FRANSKUR LISTMÁLARI,
Jean Claude Biraben að nafni,
vill endilega hafa meiri húmor í
húsgógnum fólks og þessvegna
smíðaði hann þessa skúffu og
stólinn með áföstum jakka úr
tré. Býsna skemmtileg hugdetta
að tarna.
HÉR ER EINKAR SNYRTILEG
EGGJAGEYMSLA. sem þýskt
blað segir að sé aftur í tísku, þar
sem oft sé hentugt að hafa eggin
á öðrum stað en í kæliskápnum.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
4. TBL. VIKAN 45