Vikan - 27.01.1977, Blaðsíða 3
híbýla prýð i
Hér er bráðsnjöll bókahilla I hnattforni. Sá sem gerði þessa bókahillu
segir, aö hann noti 19 mm þykka spónaplötu ( grunninn og hillurnar.
Grunnplatan er 155 sm í þvermál, og hillurnar eru í þremur lengdum,
fjögur stykki ( hverri lengd. Gerðar eru raufar í hillurnar til að þær falli
saman, og hillurnar eru skrúfaðar fastar á grunnplötuna — frá
bakhliðinni. Hillurnar má að sjálfsögðu líma saman, en þá er ekki auðvelt
að ná þeim ( sundur aftur.
Hérna sést vel, að það er hægt að
nota pappahólka til margs konar
hluta — Snjöll og skemmtileg
hugmynd.
Hér er ákaflega hlýlegt og
skemmtilegt svefnherbergi, en
viðkomandi innanhúsarkitekt
leggur hér áherslu á, að svefn-
herbergi eigi að sjálfsögðu að vera
vinnustaður á daginn, enda óþarfa
lúxus að nota svefnherbergi að-
eins sem svefnstaö. Litirnir eru
hlýlegir og notalegir. Hillan fyrir
ofan rúmið er einföld, og þægindi
að litlu skúffunum þremur.
Kommóðan er á hjólum, þannig
að hún getur einnig nýst sem borð
t.d. undir sjónvarp. Langa borðið
undir glugganum er fest I vegginn,
en stállappir að framan styrkja
þaö. Fallegt, dálítið gróft ullar-
teppi og fjörlegir púðar hafa sitt að
segja.
© © ©