Vikan


Vikan - 04.08.1977, Side 5

Vikan - 04.08.1977, Side 5
einna best á „stóru stöðunum" eins og á Akureyri og í Vest- mannaeyjum. — Undirbúningur fyrir svona hljómleikaferðalag og konserta tekur um einn mánuð, en þeir segja vinnuna vel þess virði, peningar skipta þá ekki máli, það er aðalatriðið að geta glatt fólkið. Þeir hafa áhuga á að fara í aðra slíka ferð einhverntíma. Þeir hafa í huga að senda frá sér aðra hljómplötu, — gátu ekki gefið upp nákvæma tímasetningu, — en hún kemur! Svo ætla þeir að fara úr landi, halda konsert í Winnipeg íKanada 10. septembern.k. — Þeir hrósuðu aðstoðarmönnum sínum mikið og sögðu að það munaði miklu að ná saman svona góðum mönnum, sem eru samhentir. Góðir menn ög gott samkomulag er aðalatriðið. Ólafi finnst skemmtilegra að skemmta núna en fyrr — sagðist vera hressari — og það eru orð að sönnu, því hann var með ein-' dæmum hress á sviðinu þetta kvqld! Markmiðið með hljómleika- ferðalaginu og konsertunum var að hitta fólk eins og nafnið bendir til — því eftir því sem Ágúst sagði, var þeim farið að ieiðast og tími til kominn að fara að hitta fólk. Það var auðheyrt á samkomu- gestum hússins þetta kvöld, að Ríó á enn vinsældum að fagna Óneitanlega eru þeirllka fallegir aftan frá séð. sem fyrr. Stemmningin í salnum var sérstaklega góð, mikið hlegið — og stundum einum of mikið klappað, því fólkið var svo yfir sig hrifið að það klappaði undir í svo til öllum lögum (nema einu sönnu nóttinni hans Helgal). Brandarar og blammeringar flugu milli félag- anna, og oft náðu áheyrendur ekki að draga andann milli hlátursgus- anna. — Svo var komið að hléinu. Ríó fór aftur niður í kjallara, — og við eltum. Þá var mikið fjör, svo mikið, að Ágúst lagði til að það yrði bara kallað á gestina, og hljómleikunum haldið áfram niðri! Þeir hafa greinilega gott af að koma fram piltarnir, því nú voru engin þreytumerki sjáanleg og þeir voru mun hressari en fyrir hljóm- leikana. Terry tók Limbó dans af mikilli innlifun, og Ríó-Tríó lék undir, Helgi meira að segja með bassann. Gamla, góða tríóið! Þessuhléilaukeinsog öllum öðrum hléum, og seinni hluti hljómleik- anna hófst. Þá var hlegið enn meira. Þeir eru nú óneitanlega sætir með skegg, í siðum kjólum.... Hver skyldi semja allt þetta sem kemur út úr þeim??? — Það skiptir kannski ekki máli — aðalatriðið er að Ríó eru góðir, stórkostlega góðir, og við eigum vonandi eftir að sjá og heyra meira í þeim í framtíðinni. akm Skyldi persónuleiki þeirra félaga komast best til ski/a á þessari mynd??!! Hvort skyldi það vera söngurinn eða útlit Rió-félaganna, sem vekur s/íka hrifningu hjá stúlkunum?

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.