Vikan


Vikan - 04.08.1977, Qupperneq 12

Vikan - 04.08.1977, Qupperneq 12
Síðasta hálmstráið EINAR ÞÓR EINARSSON, KÓPAVOGI: Ég kom fyrst í Línuna 21. mars s.l., og hef lést um 23 kíló síðan. Offitan hefur alla tíð verið vandamál hjá mér, aðallega þó frá 13-14 ára aldri, og háði mér mikið á unga aldri. Ég hef ekki orðið var við neina „pressu" í sambandi við þessa megrun. Ég las fyrst um Línuna í Dagblaðinu, hringdi og mætti strax og hef síðan farið vikulega á fundi. Fyrstu tveir dagarnir voru erfiðastir, en nú er þetta ekkert vandamál. Þegar matarlöngunin segir til sín, fæ ég Einar Þór Einarsson: ,,Fyrstu tveir dagarnir voru erfiðastir". Guðbjörg Theodórsdóttur fannst gott að fá sér aukabita, fór f ...ogernú farin að stafa þar! Hér s//7; Línuna.... fyrst í Línuna, þá 132 1/2 kg. Margir eiga við offitu að stríða og hafa af hennar völdum oft liðið sálarkvalir. Þess eru mörg dæmi, að fólk hafi hreinlega lokað sig inni vegna offitu og forðast að hitta fólk. Þetta fólk á allt við sama vandamálið að stríða, en ástæðurnar eru mismunandi. Sumir hafa einfaldlega ekki getað haldið í við sig, aðrir eiga viö efnaskiptasjúkdóma að stríða og margar konur hafa byrjað að fitna vegna barneigna. Þetta fólk hefur reynt margskonar aðferðir til að grenna sig, en í flestum tilfellum hefur verið um skammvinnan sigur að ræða — en þá kom LÍNAN. LÍNAN hóf starfsemi sína 1. júlí 1976 og frá þeim tíma hafa félagsmenn hennar á Stór-Reykjavíkursvæðinu losað sig við 12 tonn og 240 kíló. Stofnandi Línunnar er Helga Jónsdóttir Hutchinson, en ásamt henni reka Línuna þær Sigrún Aradóttir og Margrét Jónsdóttir. Helga og Sigrún hafa báðar átt við offituvandamál að stríða. Þegar Helga kom heim eftir búsetu erlendis, fór Sigrún þess á leit við hana, að hún hjálpaði sér að ná af sér aukakílóunum. Helgu fannst þetta til vinnandi, hafði kynnst klúbbum erlendis, sem reknir eru með svipuðu sniði og Línan er nú, og þær ákváðu að reyna. — Starfsemin hófst heima hjá Helgu, þarsem nokkrar konur, sem áttu við sama vandamál að glíma, hittust, og gaf þetta svo góða raun, að ákveðið var að hjálpa öðrum, og LÍNAN var stofnuð. Línan er nú orðinn umfangsmikill félagsskapur, auk deildarinnar í Reykjavík hefur hún útibú á 27 stöðum á landinu. Á skrá í Reykjavík eru um 1.600 félagar, en að staðaldri mæta vikulega um 500 félagar. Svo mikil vinna liggur að baki þessu, að Helga sjálf má ekki vera að því að sinna vigtunum lengur, nema á fimmtudögum, vinnur þess í stað við skýrslugerðir. Auk þess þarf að búa til sérstaka matarkúra fyrir þá, sem á þeim þurfa að halda. Konurnar, sem stjórna Línunni á hinum ýmsu stöðum á landinu, leggja, einnig gífurlega vinnu í þetta, og senda skýrslur til Reykjavíkur, þar sem Helga fylgist nákvæmlega með öllum félagsmönnum. . Aðferðir Línunnar byggjast aðallega upp á réttu mataræði og jákvæðum hugsunarhætti. Félagsmenn hittast vikulega, 12VIKAN 31.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.