Vikan


Vikan - 04.08.1977, Side 13

Vikan - 04.08.1977, Side 13
mér ávöxt. Ég er á kolvetnakúr og borða því aðallega grillaðan mat. Það, sem ég hef orðið að neita mér um, eru gosdrykkir, mjólk, sykur, kökur og þessi ,,gamli matur" sem ég kalla svo, t.d. saltkjöt og svið. Á heimili mínu taka foreldrar mínir þátt í þessu með mér, þó þau þurfi ekki á því að halda, en mér finnst manni líða miklu betur af þessu fæði. Félagsskapurinn í Línunni hefur r hún okkur hvernig Unnur Pétursdóttir var þegar hún kom láta vigta sig og mæla, og rabba síðan saman yfir kaffibolla. VIKAN fór þess á leit við Helgu að fá að spjalla við nokkra félagsmenn og var þeirri beiðni góðfúslega tekið. — Þegar við komum í hin hlýlegu húsakynni Línunnar í Skipholti 9, biðu okkar þar8félagsmenn, reiðubúnirað segja frá reynslu sinni og þeirri hjálp.sem Línan hefur veitt þeim. Margt er sameiginlegt með þessu fólki, sem við spjölluðum við, en það sem helst vakti eftirtekt okkar var, að öll vilja þau líkja LlNUNNI við AA-samtökin, þar sem samhugurinn ræður ríkjum. Félagar í Línunni geta opnað hug sinn á fundum, og þeir finna, að þeir eru ekki einir. Öll voru þau búin að reyna ótal aðferðir á eigin spýtur, öll voru •orðin vonlaus um að þau gætu nokkurn tíma grennst. —. LÍNAN var síðasta hálmstráið — eittþúsundasti og FYRSTI megrunarkúrinn! * akm. mikið að segja, og svo er ég allt annar maður eftir að hafa losnað við þessi kíló. Ég vil gefa fólki, sem á við þetta vandamál að stríða, eina ráðleggingu: KOMIÐ I LÍNUNA! GUÐRUN VALTÝSDÓTTIR, AKRANESI: Ég byrjaði í Línunni 22. janúar s.l. Þá var ég 99 1/2 kíló, en hef lést um 25 kíló síðan. Ég byrjaði að stríða við þetta vandamál eftir að ég eignaðist fyrsta barnið, þá þyngdist ég mjög mikið, en náði því nokkuð fljótt niður aftur. Síðan liðu 6 ár þar til ég átti annað barnið — og þá fór offitan að segja til sín. Eftir að yngsta barnið mitt fæddist, veiktist ég mjög mikið og þurfti að taka annað brjóstiðaf. Ennfremur hef ég þurft að ganga í gegnum móðurlífsað- gerð. Ég varð þunglynd vegna þessarra veikinda, og þá leitaði ég í matinn, en sennilega hefur það bjargað mér, því ég hélt ró minni. Ég hef verið undir læknishendi síðastliðin fimm ár, og þurfti að fá lyfjagjöf í æð einu sinni í viku, en þarf nú aðeins að fara með sjö vikna millibili, og er þá í 5 daga; fæ Guðrún Valtýsdóttir: Læt það ekki eftir mér að koma þyngri en síðast... 5 sprautur. Ég er eiginlega alveg hissa á hvað mér fannst auðvelt að breyta mataræðinu eftir að ég kom í Línuna. Ef það er eitthvað sem mig langar í, sem ég má ekki borða, þá hugsa ég ósjálfrátt: ,,Þetta er bannvara og ég má ekki borða þetta", og snerti því ekki á þessu. Ef ég brýt af mér, þá líður mér ekki vel, mér finnst ég vera að stelast'. Nú er heilsan líka orðin allt önnur. Ég syndi daglega og fer í gufubað, oft þrisvar í viku. Það er langt í miðbæinn frá heimili mínu, og þegar ég fer þangað, hjóla ég stundum. Ég er eiginlega alveg hætt að nota bílinn eftir að ég byrjaði í Línunni. Mér finnst líka hafa óskaplega mikið að segja að ganga mikið. Ef ég fæ skyndilega mikla matarlöngun, þá fæ ég mér appelsínu, en kökur hef ég bókstaflega ekki snert. Fólk hefur alveg gapað yfir því þegar ég fer í veislu, þar sem kökur eru á boðstólum, að ég hef ekki látið eftir mér að fá mér kökubita! Þetta var erfitt fyrst, en svo kemst þetta í vana. Nú, en EF ég hef brotið af mér — þá er bara að svelta sig daginn eftir, það er ágætt ráðí Ég borða þrjár máltíðir á dag, morgunmat, hádegismat og kvöldmat, en sleppi öllu matar- kyns eftir kvöldmat, fæ mér þá f mesta lagi bara svart kaffi. Það er bara algjört skilyrði að fá sér ekki neitt milli mála, — en það getur verið erfitt fyrir fólk, sem ekki vinnur úti og hefur tækifæri til að vera að narta í eitthvað allan daginn! Þegarég byrjaði í Línunni fannst mér þetta einhvern veginn vera hálf vonlaust, ég var viss um að ég gæti ekki náð mér niður. Það lá við að ég væri farin að gefa góð föt,sem ég átti, en nú er þetta allt farið að verða of stórt á mig. Þegar Línan var stofnuð á Akranesi, komu þær með myndir af konum sem höfðu verið í þessu og þá sá ég að þetta var hægt. Það geta þetta allir, aðeins ef viljinn er fyrir hendi. Maður þarf að vera ákveðinn við sjálfan sig. — Ég hef alla tíð verið frekar feitlagin og hef alltaf átt í svolitlu stríði, og ég man eftir mér alveg hræðilegri, tíu ára gamalli. Það var alltaf verið að stríða mér og þessu var beitt óspart í rifrildum, eins og gerist og gengur hjá börnum. Ég hef alltaf þurft að halda f við mig og ef ég hefði alltaf borðaö allt sem ég vildi — þá er ég hrædd um að ég hefði veriö orðin ennþá feitari. — Það er ómetanlegur stuðningur að fara á þessa vikulegu fundi hjá Línunni. Það kemur líka metnaður upp í fólki. Það er kallað upp hvort fólk hafi lést eða þyngst.... og maður lætur það ekki eftir sér að koma þyngri en maður var á síðasta fundi! Ég matreiði sérstaklega fyrir mig, grilla t.d. þegar ég er með eitthvaö pönnusteikt fyrir heimilisfólkið. Mér finnst það borga sig, því annars er hætt við að ég færi að narta í eitthvað sem ég má ekki borða. Karlmennirnir mættu láta sjá sig meira, — ég held þeim finnist eitthvað héralegt við þetta. Það vantar líka meira af ungling- um, en það er líka ábyggilega erfitt fyrir unglinga að fara í þetta, því oft er þetta sælgætisfita á þeim. — Ég vil að endingu hvetja alla til að fara í Línuna.sem þurfa á því að halda að grenna sig. 31.TBL. VIKAN13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.