Vikan


Vikan - 04.08.1977, Side 38

Vikan - 04.08.1977, Side 38
ÖTEK ★ DISKÖTEK ★ DISKÖTEK ★ DIS KÓTEK ★ DISKÓTEK★ DISKÓTEK★ DISKÓTEK★ DISK FERÐA DISKÓTEK f OBELIX I w A O H m 7? ★ g UMBOÐSSlMI * 15699 ^ KL. 9-12,30 5 FYRIR HÁDEGI. * HSia^xBioxsia^xaioxsia^xaioxsia^xaioxsia eftirhinn fræga sakamálahöfund John Le Carré lO.hluti Það voru enn margir endar lausir og hann ákvað að rifja þetta upp fyrir sér á ný. Hvað er það, sem við vitum? Hann settist upp og svipaðist um eftir blýanti og blaði og strax tók höfuðverkurinn að gera vart við sig aftur. En þrjóskan rak hann framúr og hann sótti blýant í innri vasann á jakkanum sínum. í töskunni hans var skrifblokk. Hann fór aftur upp í rúm og hagræddi koddunum, en fékk sér síðan aspirín úr meðala- glasi, sem stóð á náttborðinu. Svo reyndi hann að láta fara vel um sig og teygði úr stuttum fótunum. Hann byrjaði að skrifa. Fyrst kom yfirskriftin, sem hann skrifaði snoturri, lærðri hendi. „Hvað vitum við?” Þvi næst fikraði hann sig áfram stig af stigi og reyndi að lýsa þvi á eins hlutlausan hátt og honum var framast unnt, hvað hafði gerst fram að þessu: „Mánudaginn 2. janúar sá Dieter Frey mig í skemmtigarðinum þar sem ég var að ræða við njósnara hana og hann komst að þeirri niðurstöðu....” Já, að hvaða niður- stöðu hafði Dieter komist? Það að Fennan hefði játað eða ætlaði sér að játa? Að Fennan væri minn njósnari?...” og komst að þeirri niðurstöðu að Fennan væri hættu- Legur af ástæðum, sem enn voru ókunnar. Næsta kvöld fyrsta þriðju- daginn i mánuðinum, fór Elsa Fennan með skýrslu eiginmanns •íns í fiðlukassa til Weybridgeleik- hússins eins og mælt hafði verið fyrir um og skildi kassann eftir í fatageymslunni og tók við geymslumiða. Mundt átti að koma með sinn eigin fiðlukassa og gera slikt hið sama. Elsa og Mundtl myndu síðan skiptast á miðum á meðan á sýningunni stóð. Mundt létekki sjá sig. Þá var það sem hún greip til neyðaráætlunarinnar og póstlagði miðann í fyrirfram ákveð- ið heimiliafang. Hún hafði yfirgefið leikhúsið snemma til þess að ná að póstleggja miðann fyrir síðustu bréfhirðingu. Því næst ók hún heim, þar sem hún hitti Mundt, en hann var þá þegar búinn að myrða Fennan, sennilega samkvæmt fyr- irskipun frá Dieter. Hann hafði skotið hann á mjög stuttu færi, í forstofunni þar sem þeir höfðu staðið. Ég þekki Dieter og þykist vita, að hann hafi haft vaðið fyrir neðan sig og átt nokkur eintök af auðum blöðum með undirskrift Samuels Fennan, falsaðri eða ófalsaðri, ef vera kynni að ástæða þætti til að koma upp um hann eða kúga á einhvern hátt. Sé þessu slegið föstu, þá hefur Mundt haft með sér blað, nú hóf hann að vélrita sjálfsmorðsbréfið fyrir ofan undir- skrift Fennans á ritvél Fennans sjálfs. Þegar svo Elsa kom heim hlýtur að hafa orðið hræðilegt uppistand. Mundt gerði sér grein fyrir þvi, að Dieter hafði rangtúlkað fund Fennans og Smiley, en hann treysti á Elsu Fennan, að hún myndi reyna að verja heiður hins látna eiginmanns sins og eins auðvitað gera allt til þess að leyna því, að sjálf var hún meðsek. Mundt gat þess vegna verið nokkuð öruggur um sig. Hann fékk Elsu til þess að vélrita bréfið, kannski vegna þess að hann treysti ekki um of enskukunnáttu sinni.” (Ath.: En hver var það sem skrifaði upp- ljóstrunarbréfið?) „Mundt hefur svo sennilega viljað fá fiðlukassann, sem hann gat ekki sótt, en Elsa sagt honum, að hún hefði gert eins og fyrir hana hafði verið lagt og póstlagt geymslumiðann í heimilisfang í Hamstead, en skilið fiðlukassann eftir í leikhúsinu. Mundt fékk hana þá til þess að hringja í leikhúsið og sjá til þess að hann gæti sótt fiðlukassann á leið sinni til London þetta sama kvöld. Þess vegna skipfi heimilisfangið. sem miðinn hafði verið sendur til ,ekki lengur neinu máli, eða Mundt hefur á þessu stigi ákveðið að fara heim snemma næsta morgun og viljað losna við að þurfa að sækja geymslumiðann. „Smiley fer til Walliston snemma morguns miðvikudaginn 4. janúar. 38VIKAN 31. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.