Vikan


Vikan - 04.08.1977, Page 39

Vikan - 04.08.1977, Page 39
 Af tilviljun tekur haun símann. Kl. er 8.30 og það er miðstöð að vekja Fennan. Á því leikur enginn vafi, að Fennan hafði beðið um að láta vekja sig og að hann hefur hringt i miðstöð kl. 7.55 kvöldið áður. En hvers vegna? „Seinna þennan sama morgun kemur Smiley til Elsu Fennan og spyr hana um þessa simhringingu kl. 8.30, sem hún vissi (eftir því sem hún sagði sjálf) að myndi „valda mér heilabrotum” (lýsing Mundts á hœfni minni hafði sjálfsagt haft sín ahrif). Eftir að hafa sagt Smiley einhverja fáránlega sögu hvað snerti minnisleysi hennar varð hún felmtri slegin og hringdi i Mundt.” „Mundt, sem hafði sennilega útvegað sér ljósmynd eða góða lýsingu frá Dieter, ákvað að ryðja Smiley úr vegi (að undirlagi Dieters?). Seinna þennan sama dag tókst honum það næstum þvi. (Athuga: Mundt skilaði ekki Scarr bilnum fyrr en um kvöldið þann fjórða. Þetta sannar þó engan veginn, að Mundt hafi ekki ætlað að komast úr landi fyrr um daginn. Ef hann hefur upphaflega ætlað að fljúga um morguninn, þá hefði hann vel getað komið með bilinn fyrr til Scarrs, en síðan tekið áætlunarbil út á flugvöll.) „Það virðist mjög sennilegt, að Mundt hafi breytt áætlun sinni eftir að Elsa hringdi í hann. Það er þó engan veginn öruggt, að hann hafi breytt henni vegna hringingarinn- ar.” Skyldi Elsa raunverulega hafa komið Mundt í svo mikið uppnám, að hann ákvað að drepa Adam Scarr? Suninn frammi í forstofu hringdi nú. „George, þetta er Peter. Það er víst ekkert upp úr heimilisfanginu né símanúmerinu að hafa.” „Hvað áttu við?” „Síminn er á sama stað og heimilisfangið, en það er ibúð með húsgögnum í Highgate.” „Nújá?” „Það var flugmaður frá Luft- europa, sem tók hana á ieigu. Hann greiddi tveggja mánaða leigu þann 5. janúar, en hefur ekki látið sjá sig síðan.” „Fjandinn hirði það.” „Konan, sem reaður þar húsum, man vel eftir Mundt, segir að hann sé vinur flugmannains. Hún lýsti honum sem elskulegum, kurteisum manni og segir að hann hafi verið mjög örlátur. Hann mun víst oft hafa gist þar.” „Guð minn góður.” „Ég kannaði herbergið nánast með stækkunargleri. í einu hominu stóð borð. Skúffumar vom allar tómar utan ein, en í henni voru fatageymslumiðar. Hvaðan skyldu þeir vera komnir.... Jæja, ef þig langar til að lyfta þér upp, komdu þá hingað á Hringtorgið. Hér er allt að verða vitlaust. Og á meðan ég man.” „Já?” „Eg kom við i ihúð Dieters. Hann fór 4. janúar, «n haföi ekki fyrir þvi að tilkynna rt\jólkursendl- inum það.” „En hvað um póetinn?” „Hann fékk aldrei neinn póst, nema þá einhverja reikninga. Eg svipaðist líka um i litla hreiðrinu hans Mundts, en það em tvö herbergi fyrir ofan þar sem Stál- iðjusambandið hafði aðsetur sitt. Þar var búið að fjarlægja húsgögn- in.” „Ég skil.” „Eitt, sem mér finnst dálítið furðulegt, þarf ég þó að segja þér George. Þú manst að ég hélt, að ég gæti fengið að skoða persónulega 31.TBL. V1KAN39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.