Vikan


Vikan - 04.08.1977, Page 41

Vikan - 04.08.1977, Page 41
l*i PRJÓNASTOFAN IMILOM hringdi síðan í Walliston 2944. Síminn hringdi og tólið var tekið upp, en síðan heyrði hann rödd Elsu Fennan. „Halló...Halló...Halló?” Hann lagði tólið varlega á. Hún var á lifi. En hvers vegna í ósköpunum fór Mundt heim einmitt núna, fimm vikum eftir að hafa my rt Fennan og þremur vikum eftir að hann myrti Scarr. Og hvers vegna hafði hann rutt Scarr ’ úr vegi, en látið Elsu Fennan sléppa, þessa taugaóstyrku og bitru konu, sem var vís til þess á hverri stundu að fórna sinu eigin öryggi og leysa fró skjóðunni? Það var ómögulegt að sjá fyrir endann á því, hvaða óhrif þessi hryllilega nótt hafði haft á hana. Hvernig gat Dieter treyst konu, sem var svona lauslega tengd honum? Ekki hafði hún lengur hins góða ólits eigin- manns síns að gæta. Gæti ekki hugsast, að hún myndi á veikleika- auganabliki segja allan sannleik- ann? Vitaskuld varð að líða dálítill tími á milli morðsins á Fennan og morðsins ó konu hans, en hvaða atburður, upplýsingar eða hætta, hafði orðið til þess að Mundt ákvað að snúa heim aftur? Miskunnarlaus og vandlega undirbúin áætlun um að leyna sviksemi Fennans hafði nú greinilega verið lögð til hliðar. Hvað gæti hafa gerst í gær, sem Mundt hafði frétt af? Eða var það, að hann skyldi einmitt fara þetta kvöld einungis tilviljun? Smiley neitaði að trúa því, að svo væri. Ef Mundt hafði verið í Englandi eftir morðin tvö og árásina á Smiley, þá var það áreiðanlega gegn hans eigin vilja og hann einungis að bíða eftir því að geta losnað úr klipunni. Hann kærði sig áreiðanlega ekki um að dvelja hér mínútu lengur en nauðsynlegt var. En hvað hafði hann aðhafst eftir að Scarr hafði verið myrtur? Jú, hann hafði falið sig í einhverju ömurlegu herbergi, þangað sem fréttir hlutu að berast strjált. En hvers vegna flaug hann heim svona skyndilega? Og hvers konar njósnari var Fennan eiginlega fyrst hann kaus að mata húsbændur sína á einskis- nýtum uþþlýsingum, þegar hann hafði aðgang að heilli námu mikil- vægra staðretnda. Og hvers vegna sagði hann ekki konu sinni frá þessu, en glæpur hans hafði einmitt verið stöðug mar- tröð fyrir hana og fróhvarf hans hefði verið henni mikið gleðiefni? Það virtist ljóst núna að Fennan hafði aldrei verið sólginn í mikilvæg leyniskjöl og það sem hann hafði tekið heim með sér hafði verið valið af hálfgerðu handahófi. Þessi hálf- velgja gæti vissulega verið skýring á því, hvers vegna Dieter hélt að Fennan hefði svikið hann. En hver Hann stóð þarna á tröppunum og lét frá sér ferðatöskuna, en seildist siðan eftir útidyralyklinum. Þegar hann opnaði dyrnar kom honum í hug hvernig Mundt hafði staðið þarna og horft á hann þessum fölbláu, undirförulu augum sínum. Það var erfitt að hugsa sér Mundt sem lærisvein Dieters. Mundt hafði starfað af ósveigjanleika hins þjálfaða atvinnumanns, fær ó- kveðinn en takmarkaður. Tækni hans hafði verið ófrumleg og hann var í einu og öllu einungis skuggi meistara síns. Það var engu likara en að hinum margslungnu og bráðsnjöllu hugmyndum Dieters hefði verið komið fyrir í litlum bæklingi, sem Mundt hafði síðan lært utan að og einungis kryddað með sínum eigin ruddaskap. Af ráðnum hug hafði Smiley ekki látið vúta um dvalarstað sinn og á mottunni lá heill haugur af bréfum. Hann týndi þau saman og setti þau á borðið í forstofunni, en fór síðan að svipast um í íbúðinni. Hann var ráðvilltur og utan við sig. Húsið virtist honum framandi og það var bæði kalt þarna og óvistlegt. Er hann gekk hægt úr einu herberhgi í annað rann það upp fyrir honum, hversu líf hans var i raun og veru snautt og marklaust. Hann leitaði að eldspýtum til þess að kveikja upp í arninum, en fannengar. Hann settist í hæginda- stól inni í dagstofu og renndi augunum yfir kilina á bókum sínum. Þama blöstu við honum var það, sem skrifaði nafnlausa bréfið? Það var erfitt að fá nokkum botn í þetta. Fennan, þessi frábærlega hæfi og viðkunnanlegi maður, sem hafði farist sviksemin svo vel úr hendi. Smiley hafði raunverulega kunnað mjög vel við hann. En af hverju hafði þessi samviskulausi svikari, verið svo mikill auli að skrifa nafn Dieters í vasabók sína og sýnt slíkt dómgreindarleysi í vali sínu á upplýsingum? Smiley fór upp á loft og pakkaði niður því litla af dóti sínu, sem Mendel hafði sótt í Bywater Street. Þessu var öllu lokið. 14. kafli. GLERSTYTTURNAR FRÁ DRESDEN. 31.TBL. VIKAN41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.