Vikan - 04.08.1977, Side 43
Taxi
Driver
Loksins er hin umtaiaða mynd,
,,Taxi Driver", væntanleg í ís-
lenskt kvikmyndahús og mun
Stjörnubíó sýna hana mjög bráö-
lega
í myndinni er tekið mið af sjón-
arhorni ósköp venjulegs leigubíl-
stjóra í New York. Travis Bickle
ekur leigubíl um nætur vegna þess
að hann getur ekki sofið og þá er
eins gott að vinna fyrir kaupi.
Hann hefur mesta ánægju af þvf
að aka um hin hættulegu skugga-
hverfi, því líf sitt telur hann einskis
virði. Helstu áhugamál hans eru
líka klámmyndir og byssur. Tvær
ungar stúlkur vekja áhuga hans og
leiða til þess að hann ákveður að
gera eitthvað mikilvægt og spenn-
andi.
Myndin er tekin í New York,
sem einhver hefur nefnt dýrasta
kvikmyndaver heimsins, og það á
sinn þátt í aö gera ýmsa þætti
hennar trúverðuga.
Leigubílstjórinn er leikinn af
Robert De Niro, sem nú er mjög
umtalaður leikari. Hann fékk Ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn f „God-
father II" og hefur leikið mörg at-
hyglisverð hlutverk í öðrum mynd-
um t.d. „Bloody Mama", ,,The
Gang That Couldn't Shoot
straight", ,,The Last Tycoon" og
,,1900". Annað athyglisvert hlut-
verk í myndinni er leikið af ungri
og efnilegri leikkonu, Jodie
Foster. Hún lék m.a. f „Paper
Moon" (sjónvarpsþáttunum) og
„Bugzy Malone". Með önnur
hlutverk f myndinni fara: Cybill
Shepherd, Albert Brooks, Harvey
Keitel, Leonard Harris og Peter
Boyle.
Leikstjóri er Martin Scorsese,
sem hefur getið sér góðan orðstír f
kvikmyndaheiminum. Fyrst með
myndinni „Mean Street", en í
henni lék einmitt Robert De Niro.
Scorsese stjórnaöi einnig „Alice
Doesn't Live Here Anymore",
sem vakti mikla athygli á sfnum
tíma. Framleiðendur „Taxi Driv-
er" eru Julia og Michael Phillips,
sem eru frægust fyrir „The Sting"
Handritið er eftir Paul Schrader,
en hann hefur samið nokkur góð
kvikmyndahandrit t.d. „The
Yakusa" og „Deja Vu". Þá er
ónefndur einn maður, sem stóð
að gerð myndarinnar, en þaö er
tónskáldið Bernard Herrmann.
„Taxi Driver" var sfðasta myndin,
sem hann geröi tónlist við. Herr-
mann var mjög þekktur fyrir kvik-
myndatónlist sfna m.a. við mynd-
irnar „Citizen Kane", „All That
Money Can Buy", „Jane Eyre",
„Anna and the King of Siam" og
„Journey to the Center of the
Earth". Einnig starfaði Herrmann
um árabil með Alfred Hitchcok og
gerði tónlist við margar af mynd-
um hans. Herrmann var fæddur
1911, en lést í desember 1976.