Vikan - 11.01.1979, Blaðsíða 29
Norðurlandameistarakeppni 1974.
Samkvæmisgreiðsla. Samkvæmis-
greiðsla f sfðasta skipti sem
keppnisgrein, eftir '74 kemur gala-
greiðsla I staðinn. Mödel: Ásgerður
Benedikz.
28 Vikan Z.tbl.
Islandsmeistarakeppni 19/b.
Galagreiðsla. Mikið lagt upp úr
hárskrauti og lausum toppum.
Austurrfsk lina. Módel: Ásgerður
Benedikz.
Spáni og brá mér þá að gamni
mínu í keppni í Barcelona. Ég
fékk að láni módel hjá vinum
mínum, Austurríkismönnum, og
tók þátt í keppni um daggreiðslu
og samkvæmisgreiðslu fyrir
útlendinga. Þarna voru tugir
þátttakenda og þetta var ein-
hvers konar liður í
heimsmeistarakeppninni.
Fyrsta keppnin hérlendis er
svo haldin á Loftleiðum 1973,
íslandsmeistarakeppni. Þar naut
ég svo sannarlega góðs af
reynslu minni frá fyrri keppnum
og vann 1. sæti bæði í dag- og
kvöldgreiðslu. 1974 tek ég
svo þátt í Norðurlanda-
meistarakeppninni í Kaup-
mannahöfn. Þá var línan
mikið að breytast og ég hafði
lítið sem ekkert getað þjálfað
þessar nýju greiðslur hér heima.
Ég fór því ákaflega óánægð til
þeirrar keppni.
1974 verða svo nokkurs
konar tímamót hjá mér. Mig
langaði til að halda áfram
þátttöku í keppnum, en fann að
ég gæti ekki haldið áfram með
svona hálfvelgju. Þeir sem
nokkrum árangri ná í stórum
keppnum taka venjulega svona
tveggja ára keppnistímabil, það
er að segja gera á þeim tíma lítið
annað en að þjálfa sig og taka
þátt í keppnum. Ég ákvað því að
fara til Austurríkis fyrir íslands-
meistarakeppnina 75 og þar
dvaldi ég við æfingar í hálfan
mánuð hjá frábærum
hárgreiðslumeistara sem ég
lærði mikið af. Þetta var erfiður
tími, strangari æfingar en ég
hafði nokkurn tímann áður
kynnst og sama greiðslan æfð
frá morgni til kvölds. Þarna var
líka um nýja línu að ræða því
hárgreiðslan fer aftur að
breytast upp úr 74. Nú var
Sasson búin að gera klippingu og
blástur heimsfrægan, lagningar
voru því nær úr sögunni og
klippingin aðalundirstaðan i
greiðslunni. Ég var því mjög vel
undir þessa keppni búin og
vann aftur fyrsta sæti.
1975 vinn ég svo annað sæti í
Norðurlandameistarakeppninni.
Það munaði aðeins fjórum
stigum á mér og þeirri fyrstu, en
hún var norsk. Þarna kom aftur
í ljós að það er þjálfunin sem allt
byggist á og það má eiginlega
segja að keppnir fari inn á hið
listræna svið hárgreiðslunnar.
Maður þarf að vinna allt svo
hreint og vel og eftir alveg
ákveðinni tækni. Það er
óskaplega erfitt að æfa sömu
línuna upp aftur og aftur, eini
mismunurinn er að þú reynir að
gera betur og betur í hvert
skipti. í keppnum verður hvert
hár að vera á sínum stað og hver
mínúta er dýrmæt. Þó þetta
reyni ákaflega á taugarnar er
fátt lærdómsríkara.
Tískan er duttlungafull
Satt að segja var ég búin að fá
alveg nóg af keppnum og fannst
ég eiginlega búin að ná því
takmarki sem ég hafði sett sjálfri
mér. Ég tók þó þátt í Norður-
landakeppninni 1977 og æfði
fyrir þá keppni á ítaliu. Mig
hafði alltaf langað til að tileinka
mér ítalska stílinn, og eins vissi
ég, að dómararnir 1 keppninni
áttu að vera frá Ítalíu, Bretlandi
og Frakklandi. En vegna ýmissa
Norðurlandameistarakeppni 1977. Blástur og klipping. Módel: Ásgerður
Benedikz.
Íslandsmeistarakeppni 1975. Blástur
og klipping.
Norðurlandameistarakeppni 1975.
Galagreiðsla. Frönsk lina. Að mlnu
mati er galagreiðsla sú greiðsla, sem
fer mest inn á hið listræna svið
hárgreiðslunnar. Módel: Valgerður
Matthiasdóttir.
óhappa varð ekkert úr því. Það
endaði með því, að þarna voru
bara tveir dómarar, annar
breskur og hinn bandarískur,
þann þriðja vantaði alveg. Og
minn stíll var auðvitað alltof
suðrænn fyrir þeirra smekk. Það
er töluverður smekkmunur á
milli þeirra landa, sem hvað
fremst eru í tískunni. Norður-
löndin hafa einnig unnið sér
nokkra hefð hvað tísku snertir,
en þar eigum við þó nokkuð
langt í land. En við erum á góðri
leið. Það hefur orðið stökk-
breyting á hárgreiðslu hér á
landi síðastliðin 15 ár og sé
haldið áfram á sömu braut
ættum við að geta skapað okkar
eigin stíl ekki síður en hinar
þjóðirnar. En til þess þarf
auðvitað mikið átak, bæði af
hálfu hárgreiðslufólks og
! viðskiptavina.
íslendingar eru nýjunga-
; gjarnir, jafnvel einum of mikið
fyrir breytingar. Það er ekki nóg
að fá nýja línu í hárgreiðsluna ef
ekkert annað er í stíl. Mér finnst
að íslenskar konur eigi að leita
| meira eftir eigin stíl og samræma
| hann því sem hentugast er í
| okkar landi. Annars hefur ríkt
mikil fjölbreytni í hárgreiðslunni
á síðastliðnu ári og
j andstæðurnar aldrei verið meiri.
I Og vissulega breytist útlitið með
I, nýrri greiðslu. Greiðslur hafa að
undanförnu færst mjög yfir í þá
tísku sem ríkjandi var á árunum
1930-40, hversu lengi sem það
nú helst. Tískan er duttlungafull
og nútímakona hugsar mikið um
að hafa hárið sem þægilegast.
Hún vill njóta sömu réttinda til
hentugrar hárgreiðslu og
karlmennirnir hvað sem allri
tísku líður.
Ég fer að meðaltali 4-5
sinnum á ári til útlanda, bæði til
að fylgjast með nýjungum og
taka þátt í mótum. Það er alveg
nauðsynlegt ef maður á ekki að
dragast aftur úr. Ég held líka
hálfsmánaðarlegar æfingar með
starfsfólki mínu, þar sem við
tökum fyrir nýjustu greiðsl-
urnar. En ég held að ég taki ekki
þátt í fleiri keppnum. Þær
ströngu æfingar sem nauðsyn-
legar eru fyrir keppni
samræmast illa stofurekstri,
heimilishaldi og barnauppeldi.
Þetta var ákaflega skemmtilegt
og lærdómsríkt tímabil, en nú
langar mig til að reyna eitthvað
nýtt, vil heldur geta sinnt meira
því sem snertir kennslu og
sýningar. Góð kennsla og
tæknileg þjálfun er mikil-
vægasta undirstaðan fyrir
hárgreiðslunema. Sá sem ætlar
sér út í hárgreiðslu verður líka að
hafa gaman af því að skapa
eitthvað nýtt. Sé sköpunargleðin
ekki fyrir hendi er þetta litið
annað en þreytandi og erfitt
t starf.
J.Þ.
Norðurlandameistarakeppni 1977.
Daggreiðsla. Lótiaus og einföld.
Módel: Ásgerður Benedikz.
Elsa Haraldsdóttir með árangurinn
af þátttöku sinni i hárgreiðslu-
keppnum — og einnig make-up
keppni.
Æft á Italíu fyrir Norðurlanda-
meistarakeppnina 1977. Gala-
greiðsla. ítölsk lína. Módel:
Ásgerður Benedikz.
Sýningargreiðsla 1977. Galagreiðsla.
Hárið er fléttað og vafið. Grisk áhrif.
Módel: Ágerður Benedikz.
Sýningargreiðsla 1978. Samkvæmis-
greiðsla. Engin lagning, engin
túpering. Hárið er unnið og greitt
með vatni. Haldið saman með
böndum og skrautpinnum. Módel:
Björg Benediktsdóttir.
2. tbl. Vikan 29