Vikan


Vikan - 11.01.1979, Blaðsíða 56

Vikan - 11.01.1979, Blaðsíða 56
Spakmæli í draumi Kæri draumráöandi! Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa þér, en mig hefur lengi langað til þess. Það eru einkum tveir draumar sem mig langar að fá ráðna. Draumur I: Mér finnst ég sitja við skrifborð með feiknar mikinn doðrant, gamlan og virðulegan. Ég fetti bókinni hægt og á hverri blaðsíðu var mynd og málsháttur við (eða spakmæli). Ég var búinn að lesa lengi þegar ég vaknaði og man ég síðustu myndina og nokkurn veginn spakmælið. Það var svonœ Gamall virðulegur maður með mikið grátt skegg stóð I dyrum á húsi, en ungur maður fyrir utan, sýnilega ferðalangur með poka á baki. Myndin var einföld í uppbyggingu en lituð og fannst mér eins og unglingurinn væri að þiggja ráð af gamlingjanum. Við hlið myndarinnar stóð „sá á jörð er undir fæti hefur" eða eitthvað svipað. Ekki man ég eftir að hafa heyrt þessa setningu, hvorki fyrr né síðar. Drauminn dreymdi mig fyrir tveimur árum. Draumur 2: Þessi draumur var mjög raunverulegur og mig dreymdi hann nú í sumar. Ég var á bílnum hans föður míns og fannst ég þurfa að hraða mér með víxla og bleika nótu eða reikning í eitthvert fyrirtæki. Þegar þangað kom var ég I miklum vandræðum með að leggja bílnum, sem mér fannst slæmt því ég var á mikilli hraðferð. Skyndilega hverfur bíllinn og ég er staddur á reiðhjóli á sama stað með pappírana inni á mér. Það er slagveður, rigning og rok. Þetta er í porti bak við fyrirtækið og mér fannst ég verða að samþykkja víxlana áður en ég gæti farið inn. í þessu porti voru tveir menn við vinnu. Ég sá skot fullt af rusli, þar á meðal gamalt borð og ákvað að samþykkja víxlana á því. Rétt þegar ég er að byrja koma þarna menn og segja mér að færa mig, því þeir þurf að hreinsa úr skotinu. Ég fór og þegar ég er að ráfa um portið kem ég að tveimur mönnum, annar miðaldra, hinn nokkru yngri. Þeir virtust mjög vingjarnlegir og lánar sá yngri mér lítinn koll, sem hann sat á, til að skrifa á. Um leið og ég lauk við síðasta víxilinn (víxlarnir voru 5 eða 6) og rétti úr mér er komið blíðskapar- Mig dreymdi veður, kyrrt og sólskin. Yngri maður- inn klappar þá létt á öxlina á mér og bendir mér í þá átt er ég sneri baki. Birtist mér þá nýr sjóndeildarhringur, haf og stór höfn með heilum skóg af möstrum, innsiglingin beint fyrir framan mig. Það er mikil alda en hvítnaði þó hvergi. Tveir bátar sigla framhjá mér, annar nokkuð stór stálbátur, blár og hvítur, en hinn nokkuð minni trébátur, hvítur. Báðir skínandi fallegir og hlaðnir fski. Þeir sigldu samsíða framhjá mér og virtist mér sem ein aldan fleytti þeim saman inn í höfnina. Lauk draumnum þar með. Með von um ráðningu, því draumarnir hafa valdið mér heilabrotum lengi. Með kærri þökk. Nonni. Þessir draumar boða báðir nokkurn veginn það sama. Það mun verða róttæk breyting á högum þínum fljót- lega og lífsviðhorf þín yfirleitt breytast á óvæntan máta. Fyrra líferni þitt hefur sennilega verið nokkuð stormasamt og í fyrri draumnum felst ráðlegging til þín um að fara þér aðeins hægar og finna þér einhverja rótfestu í lífinu. Síðari draumurinn boðar þér nokkra erfiðleika við að ná settu marki. Það mun þér þó takast ef þú reynir af eigin rammleik en varpar ekki allri ábyrgð af eigin herðum yfir á aðra og skaltu þá sérstaklega hafa föður þinn í huga. Takist þér það mun framtið þín verða óvenju björt og þú verður líklega talsvert heppinn í vali á lífsförunaut. Fjölskyldumyndir Kæri draumráðandi. Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma. Að vísu eru tvö ár síðan mig dreymdi þá, en þeir eru oft í huga mér. Fyrri draumurinn er þannig: Mér fannst ég standa í forstofu eða á gangi í húsi, sem ég kannaðist ekki við, og ég sá inn I stórt herbergi, þar sem frekar lágt var til lofts. Ég sá sjálfa mig standa uppi á borði og vera að gera hreint loftið. Ég var klædd í dökkrauðan kjól, sem ég á, og með svuntu og skýlu bundna um hárið. / hinum enda herbergisins sá ég alla fjöl- skyldu mína, en ég var húsmóðir á þessu heimili. Mér fannst nýliðið hádegi, en ég hafði ekki mátt vera að því að elda mat vegna hreingerning- anna. Svo fannst mér einhverjir hafa gengið út, en koma síðan inn aftur. Það var sonur minn, tengdasonur og á eftir þeim kom maður, sem er góður vinur okkar. Við köllum hann G. Þegar ég sé hann, þá varð ég hissa og sagði: „Ef ég hefði átt von á þér, þá hefði ég reynt að hafa til einhvern mat. ” En hann svaraði: „Þetta er allt í lagi, það er gott það, sem er hérna." Síðan settust þeir mitt I fjölskyldu- hópinn og fóru að borða. Seinni draumurinn er á þessa leið: Mér fannst ég stödd í húsi því, sem G. bjó með sínu fólki. Þar hafði verið veisla og nú átti að taka til. G. var að sýna mér innrammaðar myndir af fjölskyldu sinni og segja mér frá því, og var það allt eldra fólk og látið. Þá kallar einhver til okkar og spyr hvort við séum að rekja ættir okkar. G. svarar þá: „Þess þarf ekki, fólkið hennar er hérna líka!" Þá skoðuðum við myndirnar aflur og sáum að það var komið fleira fólk á hverja mynd. Hólmfríður Báðir þessir draumar boða þér það sama, góða framtíð og batnandi fjárhag. Sennilega mun þjóðfélagsstaða þín batna, þér hlotnast einhver upphefð og kunningjar þínir styðja við bakið á þér í ákveðnu máli. Tengsl innan fjöl- skyldunnar treystast og ykkur bætist nýr fjölskyldumeðlimur og þó varla þannig að um bamsfæðingu sé að ræða. 56 Vikan 2. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.