Vikan - 11.01.1979, Síða 43
Nú f dag er þetta gamla Inkn-
ingameflal ekki talifl hundi bjóðandi,
þótt einn og einn reyki ennþá.
Það var akki fyrr en hvfti maðurinn
fann Amerfku afl hann komst f kynni
vifl tóbak.
þotualdar var þannig komið að
nær hver einasti fullþroska ein-
staklingur neytti tóbaks í óhófi,
meira að segja konur voru
farnar að reykja. Bakslagið lét
ekki á sér standa. Svokall-
aðir menningarsjúkdómar,
kransæðastífla, krabbamein og
hvað þeir nú allir heita, tröllriðu
Vesturálfu og þá tókst vísinda-
mönnum loksins að sanna með
óyggjandi rökum að helsta
undirrót þessara vágesta væri
tóbaksneysla. Kom þetta
mörgum á óvart og enn í dag
fyrirfinnast þeir menn sem af
þrjósku einni saman neita að
viðurkenna að þannig sé í
pottinn búið. Má ætla að
margur Indíáninn glotti nú í gröf
sinni og hugsi sem svo að nú sé
kynstofns sins brátt fullhefnt.
Tóbak er lélegt eitur
Eitt það merkilegasta við mál
þetta er, hversu mikilli
útbreiðslu jafn lélegt eitur og
tóbak hefur náð. Enginn kemst í
vímu af tóbaki og það eina sem
hann uppsker er vond lykt og
banvænir sjúkdómar. Það er
alveg furðulegt hvað
mannskepnan getur verið
vitlaus. En það verður þó að
játast að gegn minniháttar
taugaveiklun er tóbak eilítið ráð.
Það er vafalaust ein megin-
ástæðan fyrir því að táningar
hefja reykingar og þeir hætta
ekki þó að þeim vitrari menn
bendi þeim á að áframhaldandi
reykingar leiði eingöngu til sjúk-
dóma og jafnvel dauða. Fyrir
óþroskaða táninga eru hugtök
eins og sjúkdómar og dauði
afstæð hugtök, og þar af
leiðandi er þeim alveg sama. En
baráttan gegn tóbaksdjöflinum
hlýtur að bera árangur fyrr en
síðar, því tóbakið hefur sér
ekkert til málsbóta, og af tvennu
illu er betra að drepa sig á góðu
eitri en slæmu.
E.J.
— Jæja, maöur minn, en hafiö þér
reynslu af einhverju ööru en skipu-
lagningu verkfalla?
— Ég skil ekki, hvers vegna þú vilt
endilega horfa á þessa hrvllingsmynd í
stað þess að sitja og horfa á mig.
— Auðvitað gct cg dregið fram lífið á
tckjum þinum, en hvernig ætlar þú að
fara að?
— Vá! Ef við værum ekki gift, þá gæti
ég hugsað mér aö fá þig til við mig.
2. tbl. Vikan 43