Vikan - 15.02.1979, Page 15
foreldrarnir — móðirin og barnið verða
áfram alltof háð hvort öðru, líka eftir að
barnið stækkar.
Að skynja sjálfan sig öðruvísi
í flestum bókum sem fjalla um félags-
sálfræði má lesa, að minnihlutahópar
tileinki sér skoðanir meirihlutans um sig.
Það merkir t.d. að þeir sem eru afbrigðilegir
skynja sjálfa sig og tala um sjálfa sig
samkvæmt þeim skoðunum sem
meirihlutahópurinn, „hinir eðlilegu” hafa
um þá. Það er þessvegna ekki svo undarlegt
að t.d. þroskaheft börn skynji sig öðruvísi,
mjög afbrigðileg o.s.frv. Það er einnig
vandamál fyrir þetta fólk hvemig það á að
vekja athygli umheimsins á því, að það þarf
ekki að fá neina sérstaka meðhöndlun,
enda þótt það sé frábrugðið að ýmsu leyti.
Ef þroskaheftir eiga að fá einhverja veru-
lega bót á þeim vandamálum sem þeim
sjálfum finnst sér erfið, er ekki nægjanlegt
að vinna með fötlun þeirra. Það þarf lika
að vinna að afstöðubreytingum hjá þeim
sem kalla sig eðilega.
Dœmi um börn sem skynja
sjálf sig á neikvæðan hátt
Eftirfarandi dæmi eru tengd bókinni
„Svona eru hinir” eftir Jacques Blum og
Marianne Melchior. Þau endurspegla
hvemig þroskaheftir tileinka sér neikvæða
afstöðu umhverfisins gagnvart þeim.
„Ég er fæddur gallaður"
Þannig svaraði lítill 10 ára flogaveikur
drengur þegar hann var spurður að því af
hverju hann væri fatlaður. Margir gætu
álitið að drengurinn hefði meint, að hann
hefði fæðingargalla. En vísindamennir'nir
tveir þóttust hafa komist að því að drengn-
um hafi sjálfum fundist að hann væri
fæddur gallaður og væri þessvegna
„vitlaus”. Hann skynjar sig með öðrum
orðum ekki sem „réttan” heldur sem undar-
legan. Þessi afstaða kom reyndar líka fram
seinna i athuguninni þegar drengurinn
segir að allir séu „réttir” sem hafa vald á
útlimunum en hinir séu „vitlausir”.
„Það er enginn munur"
í viðræðum við blindan 13 ára dreng
segir hann að það sé enginn munur á
þeim sem sjái og þeim sem séu blindir.
Ennfremur að það megi ekki gera meira úr
fötlun sinni en efni standa til og það eigi að
gera eins lítið úr henni eins og mögulegt er.
Það kom greinilega í ljós að drengurinn
reyndi á örvæntingarfullan hátt að komast
hjá því að fá sérstaka meðhöndlun með þvi
að reyna að vera eins og aðrir. Blum og
Melchior benda á, að slík upplifun geti
verið mjög erfið fyrir börn, þar sem þau
geta ekki leyft sér að viðurkenna það á
eðlilegan hátt, að það séu til hlutir sem þau
geta ekki.
Óréttlát stimplun umheimsins á
drengnum sem öðruvísi veldur því að hann
reynir að breyta því hvernig hann skynjar
sjálfan sig með því að neita því að það sé
munur á honum og öðrum.
„Það er mér að kenna"
Börn með hegðunarvandkvæði eru
yfirleitt ekki öðruvísi en önnur börn, nema
að þvi leyti að mörg þeirra eru flokkuð sem
afbrigðileg, af því að þau eru órólegri,
árásargjarnari eða rólegri eða innhverfari
en önnur börn.
Einn drengur sem talað var við í
rannsókninni var ekki í nokkrum vafa um
hver ætti sök á vandræðum hans. Það var
hann sjálfur. Hann hefur lært það af
viðbrögðum umheimsins, að hegðun hans
er ekki viðurkennd. Það breytir engu að
honum finnist það óréttlátt, því hegning-
arnar sem hann fær frá umhverfinu styrkja
hann sifellt í þeirri trú að hann sé sá seki.
Þrátt fyrir óréttlætið sem honum er sýnt,
þá verður hann að læra að óréttlætis-
tilfinning hans sé „röng” og það sé hann
sem sé öðruvísi, hann sem eigi sökina en
ekki ómannúðlegt árásargjarnt umhverfi.
Fólk þarf að breyta um afstöðu
Niðurstaða bókar Jacques Blum og
Marianne Melchior er að fötluð börn
tileinki sér stimplanir umheimsins og geri
þær að sínum eigin. Það valdi því að miklu
leyti að þau skynji sig afbrigðileg, öðruvísi.
Þau benda á að þetta þurfi í sjálfu sér
ekki að vera vandamál, þar sem allir séu
meira og minna öðruvísi og þar með
afbrigðilegir. En að vandamálið liggi miklu
fremur í því, að meirihluti samfélagsins
neyði fatlaða til að skynja sig öðruvísi, til
þess að uppfylla þær kröfur sem samfélagið
hefur um hvernig „normalt” fólk eigi að
vera. Það á að hafa ákveðið útlit, hegða sér
á ákveðinn hátt, hugsa á ákveðinn hátt.
Heildarniðurstaða bókarinnar er sú, að
mikið af vandamálum fatlaðra myndu
minnka ef afstaða samfélagsins til
meðbræðranna breyttist og yrði sveigjan-
legri og leyfði frávik frá því almenna.
7. tbl. Vlkan X5