Vikan


Vikan - 15.02.1979, Side 40

Vikan - 15.02.1979, Side 40
Og svona getur þú orðið enn fallegri Nokkur orð, til þín, mín kæra unga stúlka, sem ert á leið inn i eitt skemmtilegasta tímabil ævi þinnar, þ.e.a.s. ef þú vilt sjálf, að það verði skemmtilegt. Flest getum við nokkuð sjálf ráðið um það, hvernig ævi okkar verður, þó ekki ráðum við við alla hluti. Auðvelt er að eyðileggja þetta aldurstímabil með slæmum lifnaðarháttum, svo sem drykkjuskap og alls kyns ólifnaði, sem alls staðar blasir við unglingnum i nútimaþjóðfélagi. Kannski finnst þér þú vera alveg fullorðin og þurfir ekki að fara eftir ráðum pabba og mömmu, sem þér finnst kannski oft vera of ströng, en mundu það, að enginn vill þér eins vel og einmitt þau, því þeim þykir allra manna vænst um þig. Hlýddu því á þeirra ráð til þín, það verður þér ávallt til góðs. Oft er talað um, að stelpan hangi bara alltaf fyrir framan spegilinn á þessum árum og jafnvel oft gert grín að henni fyrir. Mér finnst það ekkert grín, heldur góð viðleitni, Það sýnir, að stúlkan hefur áhuga á að líta vel út og sýnir sjálfri sér virðingu með því að hugsa um útlit sitt, og ætti því enginn að gera grín að henni fyrir það spor í rétta átt. Hér eru nokkur létt ráð til að halda útlitinu í lagi, þó auðvitað sé mér ljóst, að margar ykkar vita þetta allt saman nú þegar. Á næstunni mun Blái fuglinn eiga viðtal við snyrtifræðing, þar sem fjallað verður sérstaklega um hirðingu húðarinnar á unglingsárunum og kynntar þær snyrtivörur, sem henta vel viðkvæmri húð, svo fylgstu með! kólna hægt og hægt. Notaðu milda sápu, helst barnasápu, og það er alls ekki nauðsynlegt aö sápuþvo allan likamann daglega, því sápan þurrkar húðina um of, sé hún notuð mikið. Þurrkaðu líkamann vel og hressilega. Áður en þú klæðir þig — mundu eftir, þ.e.a.s. ef þú þarft, svitalyktareyðinum. Fátt er eins óaðlaðandi og ungar stúlkur, sem anga af svitalykt, og þvi miður er það mjög algengt. Oft er það vegna þess, að stúlkurnar eru hirðulausar um líkama sinn, en það þarf þó ekki alltaf að vera svo. Stafi svitalyktin ekki af hirðuleysi, skaltu drífa þig til læknis og fá hjá honum góð ráð. Einnig eru snyrti- fræðingar fúsir til ráða í þessum efnum. 4« Vlk«« 7. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.