Vikan - 15.02.1979, Qupperneq 41
málið, og þú kemst að því, að auðvitað
er þetta alveg hárrétt. Gróft brauð í
staðinn fyrir hvítt, grænmeti og ávexti í
staðinn fyrir sælgæti. Ost, mjólk,
magurt kjöt og mikið af fiski. Ég þarf
víst áreiðanlega ekki að telja upp það,
sem þú ættir að láta vera að borða,
sjálfsagt eru margir búnir að því. Mitt
ráð er, að þú gætir hófs í sælgætisáti, því
alveg er ómögulegt að banna það með
öllu, og öllum finnst okkur gott að
smakka t.d. súkkulaði, bananastengur,
rjómatoffí, kókósbollur og allt þetta
nammi namm, sem fáanlegt er. Reyndu
bara að borða minna af því en þú ert
vön, og sannaðu til, bólurnar minnka
fyrr en varir, (ég trúi þér fyrir því, að
þessa dagana er ég alveg" óð í hrís með
súkkulaðihjúpi, en ég er nú eins og þú
getur kannski ímyndað þér löngu komin
yfir bólualdurinn).
Þvoðu hár þitt oft
Það er ekki rétt, sem margir halda, að
hárið verði feitara af að vera þvegið oft.
Núna erui á markaðnum mjög góð
hárþvottaefní,^em þér er óhætt að nota,
þegar þurfa þykir. Mundu bara að skola
hárið vandlega. Dálítið edik eða
sítrónusafi í síðasta skolvatnið frískar
hárið. Ef hár þitt er þurrt og endamir
klofnir, skaltu láta klippa endana, og
hárið hefir gott af olíupakkningu, þ.e. þú
nuddar olívuolíu inn í hársvörðinn og
vefur volgu handklæði utan um hárið.
Hafðu oliuna í hárinu i um klukkutíma
og þvoðu það siðan vandlega.
Eggjarauða hrærð út í volgu vatni er
líka ágætur hárkúr og kostar ekki mikið.
Skolaðu vel, en hafðu vatnið ekki of
heitt, því þá stífnar eggjarauðan, og
erfitt verður að ná henni úr.
Prófaöu andlitsmaska
Það er gaman að reyna andlitsmaska
einstaka sinnum. Það verkar hreinsandi
og róandi á húðina. Þú skalt leggj-
ast niður og slappa af við
Ef húðin er óhrein, bólótt, er áríðandi
að velja alveg ilmlaus efni. Margar
tegundir eru til af „make-up”, gerð sér-
staklega fyrir „vandræðahúð”, ef svo
mætti nefna hana. Einnig getur þú
fengið húðlitað stifti, sem hentar vel til
að fela með einstakar bólur og ójöfnur í
húðinni. Láttu svo ekki hugfallast, þó
húðin sé ekki fullkomin, hún á eftir að
jafna sig með árunum, og allflestir losna
algjörlega við bólurnar.
Borðaðu hollan mat
Þú hefur sjálfsagt heyrt þetta oft og
mörgum sinnum og ert kannski hundleið
á því. En hugsaðu dálítið nánar um
Hreinsaðu og hugsaðu
vel um andlits-
húðina
Ef þú ert byrjuð að nota „make-up”,
jafnvel þó örlitið sé, er afar nauðsynlegt
að hreinsa andlitið vel á kvöldin með
hreinsikremi. Til þess getur þú fengið
margar tegundir og góðar, og þurfa ekki
þær dýrustu að vera bestar fyrir þig.
Einnig í þessu atriði getur snyrtifræðing-
ur aðstoðað þig langbest.
Make-up fyrir óhreina
húð
Vel snyrtar neglur
Einu sinni í viku þarfnast neglumar
sérstakrar snyrtingar. Mótaðu fyrst
neglurnar með naglaþjöl. Láttu svo
fingurna liggja í volgu sápuvatni í
nokkrar minútur. Þerraðu fingurna og
smyrðu naglaböndin með feitu kremi
eða sérstöku naglabandakremi (fæst í
snyrtivöruverslunum), og ýttu þeim upp
með trépinna. Lakkir þú neglurnar,
þvoðu þær vel áður og þerraðu. Best er,
ef góð vinkona þín getur snyrt þínar
neglur og þú þá hennar, þegar þörf er.
Fegrunarbað
Er nokkuð eins gott og virkilega gott
bað með ilmandi baðolíum. Það eru til
margar góðar tegundir af ilmefnum í
bað, og þær eru ekki mjög dýrar. Láttu
fara vel um þig og hafðu nægan tíma,
þegar þú ferð i virkilegt ilmbað.
Gleymdu ekki að halda fótunum
mjúkum, þar sem húðin þar getur oft
orðið hörð.
uppáhaldsmúsíkina þlna. Láttu bómull,
vætta t heitu vatni eða kamillutei, á
augnlokin vá meðan maskinn er á.
Maskann getur þú sjálf búið til úr eggja-
rauðu, hrærðri í dálitlum rjóma og
hunangi, ef húðin er þurr, en sé hún feit,
er betra að nota eggjahvítu, sem þeytt er
með sitrónusafa. Að sjálfsögðu eru til
tilbúnir maskar í snyrtivöruverslunum,
en sért þú að spara, eru eggjamaskarnir
ágætir. Láttu maskann vera á húðinni í
10 mínútur og þvoðu hann siðan af með
volgu vatni.
Gufubað fyrir andlitið
Svörtu nabbamir, sem oft koma á nef
og höku, skaltu láta vera kyrra, en ekki
reyna að kreista þá út. í staðinn er betra
að fara í andlitsgufubað, en það útbýrðu
þannig: Þú sýður vatn og hellir þvi í fat
með nokkrum pokum af kamillute (fæst
i apótekum). Þú leggur handklæði yfir
höfuðið og vatnsfatið og gætir þess, að
gufan sleppi ekki út. Að 5-10 mínútum
liðnum hefir gufan mýkt húðina og þá er
auðvelt að þrýsta svörtu nöbbunum út.
Á eftir er gott að strjúka yfir húðina
með bómull, sem dýft hefir verið í
andlitsvatn (fæst í snyrtivöruverslun-
um).
7. tbl. Vikan 4<