Vikan - 05.04.1979, Page 18
A KROSSGOTUM
Elskendumir ungu, Emilía (Leslie Browne) og Yurí IMikhail Baryshnikov).
Hún snerti hann varlega með einum
fingri; kyssti léttilega á hár hans; fór úr
fötunum og hjúfraði sig í örmum hans.
Deedee hafði 'sett eina reglu. Þau urðu
öll að borða kvöldmat saman hjá Dahk-
arovu. Emilía og Ethan gátu boðið til sín
hverjum sem þau vildu (ef þau létu vita
með nægum fyrirvaral en þau urðu að
mæta í mat. Þau borðuðu snemma svo
Emilia gæti verið kornin tímanlega i leik-
húsið. Það var líka þægilegt fyrir Rosie
því hann vildi gjarnan vera mættur
snemma I Broadway leikhúsið þar sem
hann var hljómsveitarstjóri. Hann var
að verða einum of heimavanur svo
Deedee bauð líka Michael og Peter.
Dahkarovu til mikillar ánægju. Hún
vildi gjarnan að borðið væri þéttsetið
svo lengi sem hún þurfti hvorki að sjá
um matseld eða uppþvott.
„Lagðirðu ballettinn á hilluna til þess
eins að verða hljómsveitarstjóri á Broad-
way?" sagði Dahkarova við Rosie og það
var vorkunnsemi i rödd hennar. „Þú ert
gjörsamlega tilfinningalaus.”
„Og þú ert gjörsamlega vinlaus.”
Hann fyllti aftur glas hennar.
„Kom hann með þetta vín?” spurði
Dahkarova.
„Já,”sagði Deedee stolt.
„Jæja, hann hefur í það minnsta
góðan smekk.” Hún sneri sér síðan að
Michael og beindi spjótuni sinum að
honum. „Þú minn kæri hefur rikulegar
tilfinningar. . .”
„En fremur lélegan smekk.” bætti
Michael hlæjandi við.
„Einmitt.” sagði Dahkarova.
„Þið þurfið bæði að biðja mig afsök-
unar,” sagði Peter og um leið hringdi
síniinn.
„Ég skal svara!” sögðu Emilia og
Ethan bæði samtímis, hann var greini-
lega að striða henni. Hún hljóp fram án
þess að roðna. Allir hlógu nema Dahkar-
ova.
„Ethan.” Hún veifaði ógnvekjandi
fingrinum. „Þetta er mikill heiður fyrir
Emiliu
„Heiður?" sagði Deedee hneyksluð.
„Já. Yuri er sá besti dansari sem ég
hef séð árum saman.”
„Auðvitað min elskul^g,” sagði
Michael. „Hann er rússneksur.”
„Einmitt. Þegar ég var ung stúlka
„Heyrðu mig nú Dahkarova. svo
langt aftur geturðu ekki munað."
„Michael, elskan, sá tími stendur mér
Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum. Eins
lifandi og það hefði gerst i dag. Það sem
er þarna á milli er ekki eins Ijóslifandi.
Ja, þarna á milli á ég — ja ákaflega ann-
ríkt.” Hún brosti feimnislega. „Eins og
Deedee.”
Hvorki Deedee né Ethan hlógu.
„Ég skil ekki þennan brandara." sagði
Ethan. „Hvað er svona fyndið, Rosie?"
Rosie hermdi eftir rússneska hreimn-
um hennar Dahkarovu. „Það er ekki
hægt að útskýra það drengur minn."
Hann leit kviðafullu augnaráði á
Deedee.
Hún stökk á fætur og fór að bera fram
af borðinu eins og sannri húsmóður
sæmir. Dahkarova hafði aldrei verið
með slíka meinfyndni áður enda aldrei
verið neitt tilefni til slíks. En núna hafði
hún ástæðu og einhvern veginn vissi
hún það. En hvernig? Hvemig stóð á þvi
að fólk gat alltaf vitað eða fundið á sér
þegar samband tveggja einstaklinga var
orðið kynferðislegt. Það var alltof einfalt
að halda því fram að fólk hegðaði sér
öðruvisi fyrir og eftir enda var það
engan veginn svo. Deedee hafði vitað að
Michael og Peter væru kynferðislega
eins strax og hún sá þá en það var löngu
áður en hún vissi að þeir voru elskendur.
Hún hafði engar áhyggjur þó Dahkar-
ova, Peter eða Michael vissu um sam-
band þeirra. Eða Emma. Kvöldið sem
Emma hafði borðað með henni og Rosie
hafði hún greinilega skilið hvað um var
að vera og það var allt I lagi. Hún hafði
eiginlega bara verið fegin. Sennilega
hafði hún sjálf verið svona laus við að
hafa áhyggjur af þessu vegna þess að
hún hafði alist upp í heimi ballettsins þar
sem kynlíf var frjálslegt og auðvelt i
meðförum, kannski einum of frjálslegt.
Ja. Rosie var að minnsta kosti góður
maður og góður rekkjunautur. Eitt af
því sem hana hafði dreymt um i sam-
bandi við förina til New York, var að
lenda i ástarævintýri með manni eins og
Rosie. Draumur fertugrar konu sem
búin er að sofa hjá sama manninum i
tuttugu ár. í Oklahoma City.
En samt hafði hún farið mjög varlega.
Hún vildi ekki að Wayne vissi þetta eða
börnin. Þetta samband hennar við Rosie
hafði einungis þýðingu fyrir hana sjálfa.
Það gaf henni fullvissu um að hún væri
enn í fullu fjöri og eftirsóknarverð; það
gaf henni stolt og ánægju; gerði hana að
betri manneskju, betri fyrir Wayne og
börnin. Þetta var hennar sannfæring en
samt vildi hún ekki sofa hjá Rosie um
kvöldið. Og við morgunverðarborðið
næsta morgun og seinna um daginn í
skólanum fylgdist hún með F.than til að
komast að þvi hvort hann hagaði sér
eitthvað öðruvisi en vant var gagnvart
henni, hvort hann grunaði eitthvað,
hvort hann vissi eitthvað.
Hún var með hugann fullan af
þessum þönkum meðan hún var
að kenna og henni eiginlega hálf brá
þegar hún áttaði sig á að hún var ekki
laus við sektarkennd. Var það vegna
þess sem beið hennar í Oklahoma City?
Eða var sektarkennd eitthvað sem var
óhjákvæmilegt, eitthvað sem tilheyrði?
Það var ekkert óeðlilegt við samband
hennar og Rosie. Áðan þegar hún hafði
verið að horfa á Ethan hafði hún heyrt
hann blóta þegar hann hrasaði. Það var
eðlilegt. En svo hafði annar eldri dreng-
ur — fimmtán ára! — hjálpað honum á
fætur og þrýst honum að sér. Var það
eðlilegt? Átti hún að leyfa Ethan að
halda áfram i ballett og ef hún gerði það
hvernig myndi hann þá þroskast kyn-
ferðislega, yrði hægt að kalla hann eðli-
legan að þessu leyti?
Ethan mátti ekki komast að þessu.
Það var alveg augljóst og ákaflega mikil-
vægt. Emilía var alltof upptekin af Yuri
til að taka eftir þessu. Jafnvel þó hún
gerði það gæti Deedee útskýrt málið
fyrir henni og hún myndi skilja þetta.
Sérstaklega núna þegar þessu alltof nána
sambandi hennar við föður sinn var
lokið. Og Wayne, ja hvernig ætli henni
liði ef Wayne héldi fram hjá henni í
Oklahoma City? Ekki þó með Ken Fern-
bacher, það myndi hann aldrei gera.
Hann myndi sennilega ekki heldur falla
fyrir neinni af þessum hungruðu mæðr-
um þó hún vonaði það nú samt. Var
það vegna þess að hún var með Rosie?
Wayne mundi vita hvers vegna, Wayne
mundi skilja hana. Allt í einu skalf hún
af ákafri þrá eftir honum. Hún var
kvíðin, henni fannst hún óörugg. Þetta
samband hennar við Rosie, þetta ævin-
týri — því þetta var ævintýri — orsak-
aði tóm vandræði. Að þurfa að vera með
þetta laumuspil var henni ekki að skapi.
Þetta samband þeirra var rotið, það varð
að taka enda. Hún varð að losa sig við
elskuna hann Rosie.
Yuri hefði skilið Deedee og Rosie til
fulls. En hann hefði aftur á móti ekki
getað skilið Deedee og Wayne. Tuttugu
ára tryggð. Hvers vegna? Slíkt var bæði
þrautleiðinlegt, ómögulegt og alveg
ótrúlegt.
Hann sat á gólfinu í búningsherbergi
Carolyn og nuddaði á henni ökklann.
Hún hafði dottið á æfingu. Einn af
sviðsmönnunum hraðaði sér fram hjá
opnum dyrunum en nam svo staðar og
spurði hvernig Carolyn liði. Ef hún gæti
ekki dansað á sýningunni í kvöld þá vildi
hann helst fá að vita það núna. Þegar
leið á sýningartímabilið vildi það alltaf
bera við að nokkuð margir dansarar
heltust úr lestinni vegna ýmiss konar
meiðsla.
„Henni líður betur,” sagði Yuri.
„Miklu betur,” sagði Carolyn. „Láttu
vita að ég muni dansa í kvöld.”
„Þakka þér fyrir.” Hann flýtti sér í
burtu.
Yuri hélt áfram að nudda ökkla
Carolyn.
„Þetta er dásamlegt,” sagði hún.
„Þetta var allt sjálfri mér að kenna.”
„Nei.”
„Jú, ég var svo taugaóstyrk.” Hún
hækkaði róminn eins og krakki.
„Af hverju?”
„Þú ert svo stórkostlegur og ég er svo
hávaxin.”
„Ég er hrifinn af hávöxnum
stúlkum.” Yuri færði hendurnar ofar og
nuddaði kálfann.
„Þú ert hrifinn af kvenfólki í heild.”
Hann hló. „Mjög mikið. Er nokkuð
að því?”
„Nei, nei! Ég held persónulega að allir
ættu að fá leyfi til þess að velja og hafna
að eigin vild,” sagði Carolyn hin örlát-
asta. Hún hallaði sér fram á við. „Ég
virði val þitt.”
„Mitt hvað?”
„Val þitt.”
Hann vissi greinilega ekkert hvað hún
var að meina. „Ég tala svo vitlaust
ensku.”
„Nei, það er ég sem geri það. Ég á svo
erfitt með.„.”
„Carolyn.” Hendur hans voru á
hraðri leið upp fótlegg hennar.
„Stundum er betra að sleppa þvi að
tala.”
„Ó, ég er alveg sammála,” sagði hún
áköf. „Fólk blaðrar bara endalaust og
enginnskilur...”
„Carolyn.” Hann kyssti hné hennar
og leit upp.
Hún hallaði sér aftur á bak. Augn-
svipur hennar breyttist og þegar hún
svaraði var rödd hennar orðin hás.
„Já.”
Hann opnaði sloppinn hennar og
kyssti hana á lærið um leið og hann
18 Vikan 14. tbl