Vikan - 13.09.1979, Blaðsíða 7
Brynja og Jórunn hvíla lúin bein i griska hringleikahúsinu Epidauros.
Ögleymanlegt ævintýri
„Ekki hefði ég viljað missa af ferðinni til
Delfí fyrir nokkurn mun, þótt hún væri
erfið. Á leiðinni þangað sagði Sigurður
Magnússon okkur sögu Grikklands í tæp
fjórtán þúsund ár og það var ógleymanlegt
að hlusta á hann tala.
Við lauguðum okkur í hinni heilögu lind,
sem Grikkir trúðu að hefði lækningamátt og
ég fékk mér sopa af vatninu til þess að
missa nú ekki af neinu. Allar þessar
skoðunarferðir skildu mikið eftir sig i
minningunni og ég er sannfærð um að ég
hefði ekki séð Grikkland betur, þótt ég
hefði haft 100% sjón á báðum augum.
Þarna sameinast bæði sólarlandaferð og
skoðunarferð til fjarlægra lífshátta og ég
gæti haldið áfram að lýsa skoðunarferðum
lengi enn.
Mig langar að lokum að þakka Ingólfi
Guðbrandssyni, starfsfólki hans, þeim sem
gáfu mér gjaldeyri og öðrum, sem gerðu
þetta að veruleika, kærlega fyrir ógleyman-
legt ævintýri.” baj
Hann Krummi, Hrafn Þórðarson, var
aðeins fimm ára, en vildi allt fyrir
Brynju gera.
37. tbl. Vikan 7