Vikan - 13.09.1979, Page 38
>JA >
Hvernig skótau þú velur þér
og hvemig þú hirðir það er ekk-
ert einkamál hvers og eins, því
skófatnaðurinn segir til um
hvers konar manngerð þú ert!
Þó þú sjáir mann eða konu úti á
götu, þá er ekki svo gott að sjá
hvers konar persónuleiki þar er
á ferð. En littu þá beint niður,
því undan pilsföldum og buxna-
skálmum gægist hlutur sem er
gangandi sönnun á því, hvers
konar skapgerðareiginleikum
þessi persóna er gædd.
Skór með háum hælum:
Sumum konum líður best á há-
hæluðum, fínlegum skóm. Þær
eru yfirleitt mjög kvenlegar í fasi
og hafa engan áhuga á að vera
meðhöndlaðar eins og karl-
menn. En þó þær séu ljúfar á
yfirborðinu, þá leynist oft undir
niðri ákveðinn persónuleiki sem
ekki lætur vaða ofan i sig.
Þægilegir, lághælaðir skór:
Konur sem ganga í lághæluðum
skóm, sem sérstaklega eru hann-
aðir með velferð fótanna í huga,
eru skynsamar og framtakssam-
ar. Þeim finnst gaman að ganga
um í náttúrunni og eru frjálsleg-
ar og hreinskilnar í framkomu.
Opnir skór og sandalar:
Margir ganga í opnum skóm og
sandölum jafnt úti sem inni. Þeir
eru óframfærnir í fjölmenni, en
blómstra innan veggja heimilis-
ins og í fámennum vinahópi. Á
þetta fólk er yfirleitt mjög gott
að treysta.
Stígvél: Fólk sem gengur um
stigvélum er mjög ákveðið í
framkomu og talar oft án þess
að hugsa um hvað það er að
segja. Það er fljótt að skipta
skapi, en réttlátt og viðurkennir
strax, þegar það hefur rangt
fyrir sér.
íþróttaskór: Þó karlmönnum
líði yfirleitt betur í íþróttaskóm
en kvenfólki, þá eru aðdáendur
þeirrar tegundar skófatnaðar
yfirleitt sjálfstæðir og öruggir
með sig og leggja meiri áherslu á
skynsemi en tiskuútlit. Þessa
manngerð má oft finna meðal
rithöfunda, listamanna og ann-
arra í skapandi starfi.
Vel hirtir, sígildir skór:
Margir hugsa vel um skóna sína
og leggja meiri áherslu á að þeir
séu vandaðir en að þeir fylgi ein-
hverri tísku. Þetta fólk er skyn-
samt og hugsar sig vel um áður
en það segir eða framkvæmir
eitthvað. Það er samviskusamt
á vinnustað og skapgott, en oft
íhaldssamt.