Vikan


Vikan - 13.09.1979, Síða 13

Vikan - 13.09.1979, Síða 13
KEFTEÐÖ, ARNI JUVETSI og ARNI FRIKASSE, grískt sveitasalat og ágætis rauðvin, Port Karras 1976, melónu og kirsuber á eftir. Allt var þetta mjðg gott, einkum þrir fyrstu réttirnir, sem voru forréttir. Mússakan var hin besta, sem ég fékk f Grikklandi. Þegar ég heimsæki Xinú næst, ætla ég að sleppa aðalréttum og fá mér þeim mun fleiri forrétti. Það gera heimamenn. Mússaka er kjöthakk i eins konar lag- kökuformi. Neðst er venjulega eggaldin. Siðan kemur hakkið, blandað tómötum, papriku, olífuolíu og ýmsu kryddi. Efst trónir svo lag úr osti, eggjum og brauð- mylsnu. Þetta er bakaö í ofni í stórum skúffum og síðan sneitt í rétthyrndar kökur. Ðolmaðes eru hrísgrjón og kjöthakk vafið í vinblöð. Kjöthakk, laukur og margvíslegt krydd er steikt í olífuolíu á pönnu. Þessu er síðan rúllað ásamt hrís- grjónum inn í vinviðarblöð. Næst er botn grunnrar pönnu þakinn vínviðar- blöðum og rúllurnar lagðar ofan á. A þetta er úðað sítrónusafa, olifuolíu og heitu vatni. Allt er svo látið sjóða í klukkustund undir léttu fargi (diski). Kefteðes er þriðja útgáfan af kjöt- hakki, framreidd eins og kjötbollur. Blandað er saman vættu brauði, soðnum lauk, hakki og ýmsu kryddi. Ur þessu eru gerðar bollur, sem velt er lauslega upp úr hveiti og síðan olíusteiktar. Arni Juvetsi er lambakjöt, skoriö í bita, bakað í kastarhoiu i ofni í klukku- QrainarMfundur og rft*tjóri Vikunnar aru hér afl araaflingi á Xinú, akta tavamu, aam einkum ar mótt af Aþeningum og takur akki inn stóra hópa farflamanna. stund ásamt smjöri, lauk, tómötum og kryddi. Síðan er vatni hellt á og látið sjóða áfram í hálftíma. Síðast má rífa ost ofan á. Arni Frikasse er einnig lambakjöt, en smjörsteikt með lauk. Síðan er hellt á vatni, hveiti og kryddi og látið sjóða í klukkustund. Algengt er að hafa eggja- og sitrónusósu með þessu. Öll ættín hjálpast að Xinú er ættarstaður. Þar hjálpast öll fjölskyldan að, afar og ömmur, foreldrar og börn, frænkur og frændur. Þjónustan var einkar góð og snör, enda stóðu jafnan einn eða tveir með árvökul augu og fylgdust með bendingum gestanna. Veisla sú, sem hér hefur verið lýst, kostaði 3.000 krónur á mann eða aðeins einn þriðja hluta tavernu, sem túristar eru dregnir á. Einföld leiðsögn um Plaka Nú kann sumum að finnast þetta of friðsæit næturlíf í Aþenu. Okkur hafði verið bent á hávaðatavernu, sem talin var hafa betri söng og dans og minna svindlbrask en aðrar tavernur af þvi tagi. Þetta var Taverna Kalokerinu við Kekropos 10, einnig i Plaka-hverfinu. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum, þvi svindlið var hið sama og annars staðar. Þeim, sem vilja hringiðu næturlífsins, ráðlegg ég því annað. Farið þangað, sem lætin eru mest, gangið upp götuna Flessa, siðan Lissíu (Lissiou), uns þið komið að Mnisikleús (Mnisikleous), sem er brött göngugata upp af Lissíú. Setjist þar niður við borð á gangstétt, pantið vínflösku eða ouzo á tiltölulega vægu verði, horfið á iðandi mann- fjöldann í kring og hlustið á rafvæddan hávaðann úr húsunum í kring. Kannski hittið þið þar á ungan og myndarlegan vert, sem gaf okkur ókeypis i glös, af því að hann sagðist vera vinur Valdísar. Hann er hægra megin við götuna ofanverða. Jónas Kristjánsson t útsýni af AkrópóRs nlflur f Plaka, skammtanahvarfl Aþanu. MArg veitingahúsin aru á húsþökum og clœla kilówöttum af rafmagns- tónlst út i húmið. 1 næstu Viku: Aþena nútímans er best á kaffihúsum

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.