Vikan - 06.03.1980, Page 31
Stjörnur
Hvor er stærri?
Þaö byrjaði í samkvæmi í New
York. Söngkonurnar Barbra Streisand
og Donna Summer höfðu komið sér
fyrir uti í homi og ræddu saman af
miklum áhuga. Áður en samkvæminu
lauk höfðu þær komist að niðurstöðu:
Við syngjum saman á plötu. Og þær
stöliur voru ekkert að tvínóna við
hlutina heldur tilkynntu plötuutgáfum
' | sínum tafarlaust þessa ákvörðun. Og
það varð upphafið að stóru vandamáli.
j Hvor þeirra er meiri stjama? Hvernig
á að deila ágóðanum? Hvort nafnið á
að nefna á undan á plötunni? Loks
fannst lausn á málinu: Plötuútgáf-
urnar skipta upplaginu á milli sin og
hvor um sig greiðir sinni stjörnu hærra
kaup. Nafn Donnu Summer er á
undan nafni Streisand á plötunni en
aftur virkar hún aðeins hærri á mynd-
inni á albúminu. í raun og veru er hún
þó nærri höfði lægri en Donna. En
það vandamál var leyst með nokkrum
símaskrám. Þannig fæst ekkert raun-
verulegt svar við þeirri spurningu hvor
sé stærri.
Barbra og Donna: Saman á plötu.
Bo Derek. nýjasta sexbomban í
Hollywood, gefur þeim draum byr
undir báða vængi að enn sé unnt fyrir
ungar fegurðardísir að leggja land
undir fót til draumaborgarinnar og
j verða frægar á einni nóttu. Það hefur
þó þótt nokkuð dularfullt með Bo
Derek að I öllum auglýsingaherferðum
er aldur hennar talinn 23 ár. Miðað
við fortíð hennar hlýtur einhver að
hafa ruglast I talnafræðinni. Hún var
áður gift John Derek fyrrverandi
eiginmanni Ursulu Andress og hefur
nú lokið við að leika i nýjustu kvik
mynd Blake Edwards (Bleiki
pardusinn). Þessi ber heitið ,.10”.
Þetta er hresta einkunnin sem
Bo Derek:
Fræg á einni nóttu.
ÞJÓÐVEG
URTIL
KÍNA
amerískir karlmenn gefa konu fyrir
kynferðislegt aðdráttarafl og á ekkert
sameiginlegt með þeim 1000000
dollurum sem framleiðendur hafa eytt
til að auglýsa þessa nýju stjörnu sina.
Það er annars undarleg tilviljun að
Ursula Andress náði heldur engri
frægð fyrr en eftir að hún var skilin
við John Derek. Fyrir þetta fyrsta
aðalhlutverk sitt fékk Bo 35.000
dollara I sinn hlut — og jafnskjótt og
myndatöku var lokið hafði hún ráðið
sig I annað hlutverk fyrir 50.000
dollara. Leikstjóri hennar er enginn
annar en John Huston og myndin á að
heita Þjóðvegur til Kína.
Cliff Richard: Kristileg auömýkt.
Mein-
læta-
maður
Stjörnurnar virðast eiga eitt sameigin
legt með börnum og þroskaheftum. Fólk
er mun fúsara til að sjá i gegnum fingur
sér með ýmislegt sem betur mætti fara í
hegðun þcirra en annarra. Samt getum
við ekki orða bundist yfir þeini ofboðs-
lega tvískinnungi sern kemur fram í
viðtali við Cliff Richard i svissnesku
vikublaði. Og allt undir yfirskini kristi-
legrar auðmýktar. Spurning blaðsins var
þessi:
— Hvert er álil trúmannsins Cliffs
Richards á kynferðismálum?
— Ég er á móti kynmökum utan
hjónabands.
— Ertu giftur?
— Nei, ég hef aldrei veriðgiftur.
— Þýðir það þá að þú hafir aldrei
komið nálægt kvenmanni?
— Það eru ekki nema 14 ár síðan ég
frelsaðist.
— Laðastu kannski frcniur að eigin
kyni?
— Nei, alls ekki. Ég held mig bara við
Bibliuna sem fordæmir kynmök utan
hjónabands.
Og svo er það spurningin, hvort Cliff
lifir í raun og veru sem algjör meinlæta
maður eða á sér sinar unaðsstundir með
báðum kynjum eins og illgjarnar tungur
vilja halda fram.
10. tbl. Vikan 31