Vikan - 27.03.1980, Qupperneq 25
Handavinnuhornið
VIKAN og Heimilis-
iðnaðarfélag íslands
Eitt vinsælasta efni blaðsins hefur löngum verið
talin handavinna. En því miður hefur ekki verið
hægt að sinna því efni sem skyldi vegna margvís-
legra örðugleika, þó svo að viljinn væri fyrir
hendi. En nú er vonandi ráðin bót á því vandamáli
og handavinnuunnendur geta horft fram á betri
tíma. Vikan hefur bundist samkomulagi við
Heimilisiðnaðarfélag íslands sem frá og með
þessu tölublaði ætlar að hafa hönd í bagga með
útvegun handavinnuefnis. Áhersla verður lögð á
innlent efni því eins og stendur í lögum félagsins
er tilgangur þess að vinna að verndun þjóðlegs
íslensks heimilisiðnaðar og vekja áhuga
landsmanna á þvi að framleiða fallega, nytsama
hluti, er hæfi kröfum nýs tíma, en hafi rót sína í
hinum gamla, þjóðlega menningararfi.
Fyrr á öldum þekktust ekki hin nýtisku-
legu vinnubrögð okkar tima. Þá fór öll
vinna fram á heimilunum og vekur það
oft furðu hve fagrir hlutir voru unnir
með frumstæðum vinnubrögðum og úr
litlum efnum. Fallegur vefnaður og
önnur handavinna ber ótviræðan vott
unt það. En timarnir breytast og það
sem fjölskyldan vann áður i samvinnu á
heimilunum er nú fjöldaframleitl i verk-
smiðjum og smám saman hurfu þessi
fornu handbrögð sem notuð voru svo að
segja á hverju heimili hér áður fyrr.
Ekki voru allir sem sættu sig við að
tapa niður arfleifð forfeðra vorra á
þennan hátt og sögðu að þó þetta væri
geymt þá væri það ekki gleymt. Og upp
^r aldamótunum og ekki sist eftir
hátiðahöldin 1911 i tilefni afmælis Jóns
Sigurðssonar gerðu æ fleiri sér grein
fyrir þjóðlegu gildi þessara verðmæta. í
framhaldi af stofnun Þjóðminjasafns var
siðan 1913 stofnað Hcimilisiðnaðarfélag
Íslands, sem hafði það að aðalmarkmiði
að endurreisa islenskan iðnað á þjóðleg
um grundvelli. framleiða fallega og
nytsama hluti er hæfðu kröfum
nútímans en eigi rót sína að rekja til hins
gamla þjóðlega menningararfs.
Í dag er þetta félag í fullum gangi og
vinnur að því að ná takmarki sinu á
ýmsan hátt og er verslunin Íslenskur
heimilisiðnaður undirstaða alls starfsins.
Allur ágóði af verslunarrekstrinum fer i
upplýsingastarfsemi því félagið nýtur
litilla sem engra styrkja. Verslunin var
stofnuð i samvinnu við Ferðaskrifstofu
ríkisins, á Laufásvegi 2 og i Hafnarstræti
3. Að Laufásvegi 2 er einnig til húsa
Heimilisiðnaðarskólinn sem býður upp á
margvísleg námskeið eins og vefnaðar
námskeið fyrir börn og fullorðna.
hnýtingarnámskeið og stutt framhalds
námskeið i ákveðnum vefnaðargreinum.
Bótasaumur er ný grein og afar vinsæl
og eins snælduspuni. þar sem þátt
takendum er kennt að búa til sitt eigið
band. Á spunanámskeiðum er kennt
hvemig á að vinna ullina og kniplnám-
skeið eru haldin öðru hvoru. Í vetur
voru haldin jólaföndurnámskeið og var
aðsóknin svo gifurleg að þau voru
haldin svo að segja allan sólarhringinn.
Einnig hefur verið boðið upp á námskeið
i spjaldvefnaði. útsaumi. útskurði og
prjóni. Öll þessi námskeið eru auglýst i
dagblöðum þegar vor- og haustmisseri
byrja og fer starfsemin að mestu leyti
fram á kvöldin.
Að sögn Sigríðar Halldórsdóttur,
skólastjóra Heimilisiðnaðarskólans, og
Stefáns Jónssonar. fornt. félagsins. nýtur
skólinn gífurlegra vinsælda og annar
engan veginn eftirspurn. Hann er rekinn
án nokkurra styrkja og verðtir jx'i að
standast samkeppnina við aðra skóla.
Aðalmarkmið skólans er að vekja áhuga
á gömlum vinnubrögðum. samræma
þau þörfum nútimans og stuðla þannig
að auknum gæðum handavinnunnar.
Kennarar við skólann eru allir stunda-
kennarar með réttindi og að loknu
hverju námskeiði fá þátttakendur
vottorð tim að jreir hafi stundað |xtta
nám.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands er aðili
að norrænunt samtökum
heimilisiðnaðarfélaga, Nordens
Husflidsforbund. Haldin eru þing 3ja
hvert ár, á íslandi var þingið haldið 1977
og nú í ár kemur það i hlut Noregs að
bjóða þátttakendum heim. ísland hefur
hug á að kynna refilsaum á þessu
komandi þingi og i þvi sambandi munu
verða haldin námskeið í þeirri grein á
næstunni.
A undanfömum árum hefur farið
fram ráðunautastarfsemi á veguni
Heimilisiðnaðarfélagsins og sá Sigríðúr
Halldórsdótlir lengst af um þá starfsemi.
Þá gátu kvenfélögin um land allt haft
samband við félagið um kennslu í
ákveðnum greinum. Síðan Sigriður lók
,við skólastjórastarfinu hefur ekki verið
unnt að halda |x;ssari þjónustu áfram.
en von stendur til að það horfi til bóta.
Einnig hefur félagið gefið út ársritið
Hiigur og hönd og gefið út nokkrar
munsturbækur.
Vikan lýsir vfir ánægju sinni með að
hafa komisl að samkomulagi við
Heimilisiðnaðarfélag Íslands og vonar
að |xnia samstarf eigi eftir að verða
lesendum til gagns og fróðleiks. Reynt
verður að hafa viðfangsefnin sem
fjölbreyltust svo allir geli fundið
eitthvað við sitt hæfi. Það er von
Vikunnar og Heimilisiðnaðarfélagsins
að þetla megi auka áhugann á islenskum
verðmætum og verða hvatning til þess
að handavinnuunnendur vinni úr
íslenskum efnum eftir íslenskum fyrir-
myndum.
I
HS
13. tbl. Vikan 2S