Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 31
Popp
The Police
Þetta er ein athyglisverðasta
popphljómsveitin sem fram kom í
Bretlandi á síðasta ári. Þarlend
popptímarit hafa síðustu misseri farið
lofsamlegum orðum um ágæti hljóm-
sveitarinnar sem þykir frumleg í laga-
smíðum og framkomu. Músik löggu
tríósins er einföld og stilhrein. Sjaldnast
er notast við fleiri hljóðfæri en gítar,
bassa og trommur og söngvarinn. Sting,
auðkennir lögin með hárri rödd sinni.
Þótt Police sé nýlega komin frani i
Þorgeir
Ástvaidsson
sviðsljósið er ekki eins og þær löggur séu
aðstlga sín fyrstu spor i hljómlistinni þvi
bæði Stewart Copeland, trommur, og
Andy Summers, bassi, hafa um árabil
fengist við ýmiss konar tónlist og þvi
þrautreyndir.
PJötur Police fram á þennan dag eru
tvær: Outlandos d'Amour og Regatta de
blanc, en sú síðarnefnda hefur náð
miklum vinsældum og álitin hornsteinn
að frekari velgengni hljómsveitarinnar á
komandi árum.
Innrás frá Mars
Innrás frá Mars? Nei. Þetta er heldur
ekki bandarisk eða rússnesk geimrann
sóknarstöð heldur tilheyrir ferlíkið
hljómsveitinni Electric Light Orchestra.
Ef myndin prentast vel má greina
meðlimi hljómsveitarinnar sem peð á
botni skálarinnar. Alls vegur búnaður
þessi rúmlega 7 tonn og hefur að geyma
mörg hundruð Ijóskastara sem I öllum
regnbogans litum lýsa upp hjúpinn og
allt sem innanborðs er. Fjölmargar
sprautur og blásarar spúa reyk í allar
áttir með tilheyrandi suði og skruðning-
um. Þegar svo hljómsveitin leikur
skelfur allt og nötrar og er ekki furða
þótt hljóðfæraleikararnir hafi kvartað
i fyrstu vegna hræðslu og óöryggis, en
tveir aflmiklir lyftarar bera hjúpinn sem
vegur 3 1/2 tonn. Það hlýtur að vera
óþægileg tilfinning að hafa þetta hlass
hangandi yfir höfði sér. Engu að siður
tilkomumikil sjón fyrir áhorfendur og til
þess er leikurinn gerður.
ELO kom fyrst fram I geimskipi þessu
á hljómleikum sem haldnir voru á
Wembley-leikvanginum I London i júní
1978. Sjónvarpað var frá hljómleik-
unum og hefur BBC þurft aðendursýna
þáttinn tvívegis vegna mikillar eftir
spurnar og mun það vera einsdæmi I
sögu þeirrar sjónvarpsstöðvar. Islenska
sjónvarpið sýndi þátt þennan á siðasta
ári.
Áðurlýstum tæknibúnaði hefur nú
verið lagt enda afar dýr i meðförum —
hann var í umsjá 15 manna og tók
uppsetningin a.m.k. 2 daga. Dýrt
uppátæki sem mikla athygli vakti en
margborgaði sig.
13. tbl. Vikan 31