Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 47
hefðu verið klofnir ur vitundarlifi
miðilsins, höfðu furðulega lítil áhrif.
Hins vegar verkuðu lyf, sem búist var
við að hefðu lítil áhrif, miklu meira á
stjórnendurna en vænst hafði verið.
Nú notaði frú Garrett mikið
adrenalín. Ef stjórnendurnir voru
klofningar úr vitundarlifi hennar mátti
gera ráð fyrir að þeir væru jafnvanir
þessu lyfi og miðillinn. En það reyndist
hafa nákvæmlega sömu áhrif á Uvani.
eins og vænta mátti um mann, sem er að
fá inntöku af þessu lyfi i fyrsta sinn.
Abdul Latif varð einnig fyrir miklum
áhrifum af þessu lyfi, og hjartastarf-
semin breyttist til muna. En þegar
morfíni var spýtt inn í líkama miðilsins
hafði það miklu minni áhrif á
stjórnendurna en búist hafði verið við.
Þá reyndu rannsóknarmennirnir
belladonna. Þeim til mikillar furðu hafði
þetta lyf hressandi áhrif á Abdul Latif,
en mjög litil á Uvani. En þegar frú
Garrett fékk þetta lyf i vökuástandi
hafði það þau áhrif á hana sem venjulegt
er.
Við rannsókn á vöðvum og taugum
kom það í ljós, að þegar Uvani var
stjórnandinn varð líkami miðilsins nærri
því lamaður, einkum fæturnir. Þegar
Abdul Latif tók við stjórninni varð
hægra hnéð lamað og fóturinn fyrir
neðan það. En þegar sömu tilraunir voru
gerðar á frú Garrett vakandi var allt í
lagi. eins og á heilbrigðu fólki.
Eins og lesendur hafa lesið höfðu
þessar rannsóknir i för með sér
óskaplega meðferð á miðlinum. frú
Garrett. Enda fór svo að þær gepgu svo
nærri henni, að hún varð veik um þrjá
mánuði eftir þær. Hún var í þeirri hættu
að missa miðilsgáfu sina, eins og að
minnsta kosti einn læknirinn benti á.
Auk þess var heilsa hennar einnig í
hættu með þessari hroðalegu meðferð.
En frú Garrett lét ekkert á sig fá.
Ástríða hennar til þess að leggja sinn
skerf til vísindanna i þessu máli var
óbilandi.
Og árangurinn af þessu mikla starfi
hefur orðið meiri en svo, að séð verði
út fyrir hann i skjótu bragði. Hún hafði
ekki einungis fengið það sannað með
vísindalegum hætti, að stjórnendur
hennar væru sjálfstæðar, ósýnilegar
verur. Hún hafði líka sannað það, að því
fer svo fjarri, að það sé rétt sem
efnishyggjan heldur fram, að likaminn
framleiði sálina, að það er þvert á móti
undir þeirri sál komið sem í líkamanum
býr hver einkenni líkamans verða. Þetta
kom greinilega fram i þvi i tilraununum,
að líkami frú Garrett varð allt öðruvisi
þegar Uvani réð yfir honum en þegar
Abdul Latif gerði það. Og honum er á
allt annan veg háttað, þegar sál miðilsins
notaði hann sjálf.
Og svo halda menn þvi fram, að
kenningar spiritismans séu ekki sann-
aðar! Þetta er aðeins ein af ótal mörgum
öðrum. ★
Tilboðsverð: 410.000,- þús. kr.
Áður: 574.000,- þús. kr.
164 þúsund
krónaverðlækkim
á Electrotux kæliskápum
í takmaikaðan túna!
Við höfum fengið eina sendingu af hinum afarvinsælu
Electrolux kæliskápum með sérstökum kjörum. Þess vegna getum við
boðið kæliskápa á lægra verði en áður.
Ath. Tilboðsverðið á aðeins við kæliskápa úr þessari
einu sendingu.
Electrolux heimilitæki fást á þessum útsölustöðum:
Akranes: Þórður Hjálmsson,
Borgarnes: Kf. Borgfirðinga,
Patreksfj.: Baldvin Kristjánsson,
ísafjörður: Straumur hf„
Bolungarvík: Jón Fr. Einarsson,
Blönduós: Kf. Húnvetninga,
Sauðárkrókur Hegri sf.,
Siglufjörður: Gestur Fanndal,
Ólafsfjörður: Raftækjavinnustofan sf„
Akureyri: K.E.A.,
Húsavík: Grímur & Árni,
Vopnafjörður Kf. Vopnfirðinga,
Egilsstaðir: K.H.B.,
Seyðisfjörður: Stálbúðin,
Eskifjörður: Pöntunarf. Eskfirðinga,
Neskaupsstaður: Kr. Lundberg,
Höfn: K.A.S.K.,
Þykkvibær: Fr. Friöriksson,
Vestmanneyjar: Kjarni sf„
Keflavlk: Stapafell hf.
Vorumarkaöurinn hí.
JÁRMÚLÁIa
S:86117
i