Vikan - 27.03.1980, Qupperneq 48
Páskaföndur
Nú skreytum
við fyrir páskana
Póskalilja á svörtum grunni
Agla Marta Marteinsdóttir, vinnur
við innanhússarkitektúr.
Agla Marta valdi að mála hið
hefðbundna tákn páskanna, páska-
lilju, á sitt egg. En f stað páskalit-
anna sem hvað vinseelsstir eru í
skreytingar, guh, grænt og rautt,
ákvað hún að breyta út af venjunni
og nota uppáhaldslitina sfna, svart
og hvht, í staðinn. Og eins og sést
á myndinni minnir eggið einna
helst á graffk-listaverk fyrir
bragðið. Agla Marta málaði með
tússlitum og lakkaði sfðan yfir, því
tússlitirnir vilja renna til.
Nú líður senn að páskum
og eflaust eru margar fjöl-
skyldur komnar á fulla
ferð með páskaundir-
búninginn. Sumir skreyta
húsin í hólf og gólf með
gulum ungum og öðru
páskaskrauti, en aðrir láta
sér nægja að mála nokkur
egg til skreytingar á
hátíðarborðið. — En það
er hægt að skreyta hænu-
egg á marga mismunandi
vegu, og eftir aðgerðina
eiga mörg þeirra heima í
glerkössum á stáss-
hillunni. Því til sönnunar
báðum við f jórar hagleiks-
manneskjur: Tryggva
Árnason, Ragnhildi
Stefánsdóttur, Öglu Mörtu
Marteinsdóttur og Svein
Kaaber, um að mála eitt
egg handa Vikunni. Og
eins og að líkum lætur
varð árangurinn
f jölbreyttur.
En þegar við fengum
eggin í hendurnar fannst
okkur ómögulegt annað en
að búa til fallega
skreytingu utan um lista-
verkin. Við leituðum á
náðir Hendriks Berndsen,
blómaskreytingamannsins
kunna í Blómum og
ávöxtum, og báðum hann
liðsinnis. Hann bjó til
handa okkur fallega og
einfalda skreytingu og lét
eggin hanga á greinunum.
Ef farið er eftir skýringar-
myndunum ættu allir að
geta útfært þessa
hugmynd eftir efnum og
smekk.
HS
48 VíKan 13. tbl.