Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 17
hafa komið er Jesús gaf upp
andann. Á föstudaginn langa og
páskadagsmorgun eru haldnar
margar guðsþjónustur í Grafar-
kirkjunni og komast færri
pílagrímar að en vilja.
Fyrir utan hina gömlu borgar-
múra er staður sem kallast
Gordons Golgata, forn grafar-
garður með klettagröf sem talin
er vera frá þvi á dögum Jesú og
margir álíta að sé gröf hans. í
þessum fagra garði, sem mikil
helgi hvílir yfir, hef ég ávallt
haft guðsþjónustur fyrir þá
ferðahópa sem ég hef verið
fararstjóri fyrir. Margir hafa
sagt mér að hvergi hafi þeir
komist í jafnnána snertingu við
píslarsöguna og páskaguðspjall-
ið sem segir frá því er Maria frá
Magdölum, María móðir Jakobs
og Salóme komu að gröfinni og
steininum hafði verið velt frá
því Jesús var upprisinn.
Rétttrúaður Gyðingur i Mea Sherim hverfinu f Jerúsalem.
Mannfjöldinn er
gífurlegur
Þegar páskar falla svo til alveg
saman hjá gyðingum og kristn-
um mönnum, eins og þeir gera í
ár, verður hvergi þverfótað fyrir
aðkomufólki. Þess má til
gamans geta að þó við séum ekki
komin lengra en að árinu 1980
eru gyðingar komnir að 5740.
Gyðingar miða sitt tímatal við
sköpunina sem þeir telja að hafi
verið 3760 árum áður en okkar
tímatal hefst.
ísraelski rithöfundurinn
Ephraim Kishon hefur sagt um
föðurland sitt að það sé svo litið
að ekki sé pláss fyrir það á
heimskortinu. Á páskum finnst
mörgum að þetta séu orð að
sönnu, ekkert er hægt að komast
áfram eftir öngstrætum
Jerúsalemborgar fyrir troðningi
og þrengslum. Alls staðar eru
langar biðraðir og lítið næði
gefst til að skoða merkar
byggingar og staði. Ég tel því
miklu heppilegra fyrir alla þá
sem vilja sjá sem mest að fara á
öðrum tíma og er hvítasunnan
mjög til þess fallin. Þá var
kirkjan stofnuð og heilögum
anda úthellt yfir postulana. í
maí og júní er hitastig afar
þægilegt og landið ennþá grænt
eftir vetrar- og vorrigningar. Að
mínu mati fá ferðamenn miklu
meira út úr hvitasunnuferð til
ísraels en páskaferð. Þá er meira
næði til að sjá og njóta hinna
helgu staða og unnt að gefa sér
tíma til að lesa frásögur
ritningarinnar á viðeigandi
stöðum, en það gerir ferð til
landsins helga öllum eftirminni-
legri.
Kjötkaupmaður
við
Via Dolorosa.
14. tbl. VIKan 17