Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 44
Algarve
Þetta suðvestur-horn Evrópu með sína
' 185 km strandlengju býður upp á
marga skemmtilega baðstrandarbæi.
Möguleikar á gistingu í hótelum, i
íbúðum, auk húsa (villas).
Flugfargjald: kr. 262.900.
Gisting á dag: 4 stjörnu hótel með
hálfu fæði kr. 15.000.
íbúðargisting án fæðis kr. 9.000.
Estoril
Einhver viðurkenndasti baðstaður
Evrópu, sem sameinar baðstrandalíf og
möguleika á að skoða og kynnast hinni
fallegu höfuðborg Portúgals, Lissabon.
Flugfargjald: kr. 258.800.
Gisting á dag: 4 stjörnu hótel með
hálfu fæði kr: 15.000.
Madeira
Blómaeyjan í Atlantshafinu með sitt
eilífa vor. Þetta er sólarbaðstaður allan
ársins hring.
Flugfargjald: kr. 335.800.
Gisting á dag: 4 stjörhu hótel með
hálfu fæði kr. 12.000.
Ferðaskrifstofan Úrval og Kínversk-
íslenska menningarfélagið, KÍM, efna
til tveggja hópferða til Kínverska
alþýðulýðveldisins á árinu 1980.
Fyrri ferðin verður farin 22. júní og
stendur til 7. júlí.
Farið verður um Kaupmannahöfn og
Moskvu og komið til Peking 24. júní.
Auk höfuðborgarinnar Peking eru
helstu staðir sem heimsóttir verða í
Kína: Nanjing (Nanking), Wuxi og
Shanghai.
Síðari ferðin verður farin 3. október
og stendur til 21. október.
Farið verður um London og Hong
Kong og komið til Canton 6. október.
Auk Canton eru helstu viðkomustaðir:
Guilin (Kweilin), Shanghai og
Hangzhou. í Canton verður hin
víðfræga vörusýning skoðuð, en þar
gefur að lita tæmandi úrval
útflutningsframleiðslu Kínverja.
Allar nánari upplýsingar um verð og
ferðatilhögun veitir Ferðaskrifstofan
Úrval.
Fáar borgir jafnast á við Rómaborg
fyrir þá sem vilja skoða og hugleiða
heimssöguna. Við mælum með þeim
möguleika að dvelja í 1 viku í Róm og
síðan 1-2 vikur niður við ströndina
nálægt Napoli (Sorrento eða Capri).
Frá sögulegu og náttúrufræðilegu
sjónarmiði er Split og umhverfið ein-
hver áhugaverðasti staður Júgóslavíu.
Hægt er að velja um dvöl i Split eða á
ströndum þar um kring, jafnvel úti á
lítilli eyju, þar sem friður og
einangrun hentar sumum nú á tímum.
Flugfargjald: kr. 295.900.
Gisting á 3 stjörnu hóteli með hálfu
fæði: kr. 14.000.
Það ber öllum saman um að
Dubrovnik sé baðstrandar- og
skemmtistaður Júgóslavíu númer eitt.
Auk þessa má fara í margar skoðunar-
og skemmtiferðir þaðan.
Flugfargjald: kr. 302.800.
Gisting á 3 stjörnu hóteli með hálfu
fæði: kr. 14.000.
Dubrovnik
Flugfargjald: kr. 303.600.
Gisting á 3 stjörnu hóteli með
morgunmat: kr. 14.000.
í sumar getum við í fyrsta skipti boðið
sérfargjald til frönsku rivierunnar. Ekki
þarf að telja upp hvaða möguleikar
þar eru fyrir hendi.
Flugfargjald: kr. 286.200.
Gisting á 3 stjörnu hóteli með morgun-
verði: kr. 14.000.
Tossa og Lloret eru vinalegar
sandvíkur fyrir norðan Barcelona, sem
eiga marga aðdáendur á íslandi.
Flugfargjald: kr. 226.400.
Gisting á 3 stjörnu hóteli með hálfu
fæði: kr. 14 /J0.