Vikan


Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 20

Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 20
Framhaldssaga líta á mig sem óvin sinn. Mig langaði til að geta hitt Söru frænku í návist hennar og viðeðlilegar kringumstæður. Og fyrst og fremst vildi ég reyna að halda tengslum við eina fólkið í öllum heiminum, sem ég gat sagt að væru skyldmenni mín. Þegar við komum til Magna trúði ég frænku minni fyrir því að ég ætlaði að kaupa mér kjól og spurði hana hvar ég ætti helst að leita. Hún benti á þröngt sund milli tveggja búða og sagði: „Farðu þarna i gegn og svo til hægri. Ef þú heldur áfram smáspöl, kemurðu að lítilli búð, sem heitir Celeste, og þar kaupi ég flest mín föt.” „Ég ætla að hjálpa Vivien með innkaupin,” sagði Julien, „og svo getum við hist aftur hérna eftir svona fjörutíu mínútur og farið og fengið okkur te hjá Collets.” Ég fann skyrtublússukjól úr silki, svartan í grunninn með bleiku, bláu og fjólubláu í, með viðu pilsi og löngum, þröngum ermum. Ég keypti kjólinn og gekk aftur til baka eftir þröngu sundinu og út að torginu þar sem ég hafði skilið við þau. Ég hafði ekki búist við að finna svona dásamlegan kjól á svo stuttum tíma og því var ég þarna allt of snemrna. Ég leit í kringum mig og kom þá auga á tvo bogadregna glugga, og þegar ég leit svo áfram upp eftir húsinu sá ég að þar stóð með gylltum stöfum: Brown og Dempster, hæstaréttarlögmenn. Ég flýtti mér að halda áfram og fann um leið blóðið streyma fram í andlit mitt. Ég myndi skammast mín alveg hræðilega ef Alex yrði litið út um gluggann ogsæi rnig vera að glápa upp í gluggann til hans. Ég hafði enga ástæðu til að ætla að ég væri eins ofarlega í huga hans eins og hann var í mínum. Auðvitað gæti líka verið að hann væri ekki á skrifstofunni. Lögfræðingar þyrftu áreiðanlega að sinna erinda- gjörðum utan skrifstofunnar, svosem að gera erfðaskrár og annað því um líkt. Ég gaf ímyndunaraflinu lausan tauminn og í huganum sá ég Alex hraða sér að dánarbeði milljónamærings, eða að dánarbeði einhvers gamals sérvitrings sem svo segði honum, að hann hefði troðið mörg þúsund pundseðlum inn í dýnuna í rúminu sínu. Allt í einu heyrði ég hrópað: „Jo, i guðanna bænum hægðu aðeins á þér. Þú ert alveg að gera út af við mig.” Ég sneri mér við og kom auga á Alex sem kom hlaupandi á eftir mér með jakkann flaksandi á eftir sér og svart hár hans féll fram á ennið. Ég fann að kinnar mínar voru blóðrjóðar. Hann hlaut þá samt að hafa séð mig út úr glugganum á skrifstofunni. „Ég átti að bíða við torgið eftir frænda mínum og Vivien,” sagði ég alveg eins og kjáni. Ég fann hvað þetta var fáránlegt og hló og sagði: „Þau eru að versla svo ég ætlaði að gera slikt hið sama. Er klukkan orðin fjögur?” Hann leit óþolinmóður á klukkuna sína. „Hana vantar kortér í fjögur.” „Ó, ég ætla bara —” „Hvernig gekk, Jo? 1 gærkvöldi? Ég rogeR^Gallet PAR I S LÚXUS BAÐVÖRUR LOKSINS Á ÍSLANDI Síml82700 r I mánaskini reyndi að ná í þig í síma í morgun um leið og ég kom á skrifstofuna, en vinnukonan—eða ég held það hafi verið hún — sagði að þú værir ekki komin á fætur.” „Nei, ég svaf eins og steinn.” Alex leit í augu mín um leið og hann tók undir handlegg minn og teymdi mig til baka. „Hvernig gekk?” spurði hann aftur. „Ég sá Söru. Ó, hún er indæl. Það hefur svo margt gerst. Ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég segi þér þetta allt saman í kvöld.” „Segðu mér það núna. Ég hef verið að hugsa um þig í allan dag." Hann ýtti mér inn í smá dyraskot, hallaði sér upp að veggnum og krosslagði hendur á brjósti: „Svona nú.” Ég nefndi aðeins lítillega þátt Vivien í að senda föður mínum dúkkuna. Ég hafði áhyggjur af hvað Alex sýndi erfiðleikum frænku minnar litla samúð. Ég hlýt að hafa opinberað þessar áhyggjur mínar fyrir honum því hann lagði höndina á öxl mína og sagði brosandi: „Hún fær meira en næga samúð annars staðar frá, Jo. Hún þarf ekki á minni samúð að halda. Minn tími fer allur í að hafa áhyggjur af þér. Að mínu áliti skiptir ekki mestu hvers vegna einhver gerir eitthvað af tómri illgirni eða hefnigirni, heldur hitt, hvemig má binda enda á slíkt atferli. Maður sem er óþokki er ekkert minni óþokki þó hann hafi alist upp á slæmu heimili, vesalings maðurinn, og þegar hann svo beitir sinum óþokkabrögðum gegn einhverjum eldri manni sem aldrei hefur gert honum mein, þá er það alveg jafnslæmt fyrir gamla manninn. Það sem mestu rnált skiptir er að negla hann niður áður en hann beitir aftur sama bragði, en ekki að vera með einhverja tilfinningasemi. Ég álít, skilurðu, að Vivien geti verið hættuleg, annaðhvort sjálfri sér eða öðrum, og ég hef áhyggjur af að það geti orðið þú sem verður fyrir barðinu á henni. Skilurðu hvað ég meina?” Og þegar ég sagði honum frá vesalings stúlkunni, sem verið hafði móðir mín, og frá sektartilfinningu föður míns, þá jókst þrýstingurinn á öxl mína, svoég kveinkaði mér næstum. „Vesalings maðurinn,” sagði Alex loks. „Vesalings maðurinn.” „Hann lét mig heita í höfuðið á henni,” sagði ég, „en ég hafði aldrei hugmynd um það. Ég heiti Joanna Lesley. Ó, ef hann hefði bara treyst sér til að segja mér þetta, þá hefði allt verið í lagi, ég hefði skilið hann." Alex kreisti öxl mína enn einu sinni, í ÞESSARI GLÆSILEGU ÍSBÚÐ GETURÐU FENGIÐ KAFFI, KAKÓ, KÖKUR, SAMLOKUR, PIZZUR, HAMBORGARA, PYLSUR, PÆ MEÐ ÍS, BANANABÁTA, ÍS-MELBA OG ALLA OKKAR SÍVINSÆLU ÍSRÉTTI. Lítiö inn í isbúðina að Laugalæk 6, og fáið ykkur kaffi og hressingu, takið félagana meö. Opið frá kl. 9-23.30 Allir þekkja isinn frá Rjómaísgerðinni ÍSBÚDIN LAUGALÆK 6 SÍMI 34SSS 3 ZOVikan 14. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.