Vikan


Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 19

Vikan - 03.04.1980, Blaðsíða 19
íi Þú getur rétt íntyndað þér hvaða áhrif það hefði getað haft á Vivien ef við hefð- um slegið fram þessari sögu eftir að Pamela dó. Hún hefur alltaf verið taugaveikluð. Við töluðum um að hún væri hástemmd og létum þar við sitja. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að ef hún hefði ekki orðið fyrir þessu hræðilega áfalli í Kenya hefði hún vaxið frá þessum skapgerðarbrestum sínum að mestu. Heldur þú það ekki lika?” Mér tókst að muldra eitthvað í samúðarskyni. Hann var búinn að snúa sér við þegar ég hélt áfram: „Julian, hvers vegna finnst Söru að hún beri ábyrgð á því að ég kom hingað til Priory Cross?” „Það er nokkuð um — ja, óstöðuglyndi — í Stoddartfjölskyldunni, en Sara vissi ekki um það fyrr en eftir að Vivien fæddist. Henni fannst ósanngjarnt að þú værir látin alast upp i þeirri trú að þú gætir hafa erft — hvað eigum við að segja, einhvers konar geðræn vandamál. Svo hún talaði um að skrifa Vernon og spyrja hann hvort hann væri búinn að segja Joanna sannleikann um móður sina — en þannig orðaði hún þetta ein- mitt og i sama mund gekk Vivien inn. Skilurðu nú?” Ég greip hendinni fyrir munninn. Hvort ég skildi. „Það var einmitt upp frá þessu sem Vivien fór að hraka,” hélt Julian áfram. „Hún var búin að vera svo ágæt i mörg ár. Hún hafði líka stofnað til kunnings- skapar við Paul Barton og —” Hann tók eftir svipnum á andliti mínu og flýtti sér að bæta við: „Við sögðum honum auðvitað undan og ofan af ævisögu Itennar. Hún hafði verið svo eðlileg og ' hamingjusöm. Eins og við héldum. þá tókst okkur að veita henni þá öryggis- tilfinningu sem hún þarfnaðist. En frænka þin var með hring Pamelu. Pantela var ekki með hann þegar hún dó og faðir þinn hafði slitið öll tengsl við okkur svo Sara hafði aldrei haft tækifæri til aðafhenda honum hann. Hún var vön að segja að ef einhver ætti að fá þennan hring þá værir það þú. og einhvern tíma skyldi hún sjá til þess að hann kæmist i þínar hendur. Vivien vissi auðvitað allt um þetta og að hringurinn hafði tilheyrt Pamelu. Án þess að við vissum hafði hún skorið út eina af þessum ólukkans dúkkum, sem samkvæmt afriskum venjum eiga að færa fólki óhamingju og hún setti hringinn um háls hennar og sendi dúkkuna svo til Vernons í einu af sinum æðisköstum ásamt illkvittnislegu bréfi þar sem hún skrifaði að það væri Pamela sem hefði dáið og það væri hennar eigin móðir — en ekki móðir Joanne — sem lifði. Algjörlega öfugt við það sem hún sjálf áleit, skilurðu." „Já,” sagði ég. „Faðir minn hefur auðvitað farið að velta þessu fyrir sér. Hann hafði verið við jarðarför móður minnar — stjúpmóður minnar — og áreiðanlega séð hana við kistulagninguna. Hann hefur sennilega ekki séðSöru frænku neitt?” „Það sá hana enginn nema ég sjálfur. Líf hennar hékk á bláþræði í margar vik- ureftir jarðarförina.” „Og þess vegna hefur föður minn farið að gruna margt. Og þar sem hann vissi líka að móðir — að Pamela — hafði verið —”. Ég þagnaði, því ég vissi ekki hvernig ég átti að halda áfram. „Að hún hafði verið ástfangin af mér?" sagði frændi minn þurrlega. „Já, hann fór að gruna að hann hefði jarðað Söru en ekki Pamelu. Hann sendi mér bréf fullt af beiskju. Eins og kringum- stæðurnar voru gat ég ekki áfellst hann. En geturðu áfellst mig fyrir að reyna að halda honum i burtu? Ef hann hefði birst hér fyrir framan Vivien og brennandi af reiði og slæmum grunsemdum farið að. . . Ég skrifaði honum —” Hann þagnaði um leið og ég teygði mig i töskuna mína og tók bréfið, sem hann hafði skrifað, og dúkkuna og rétti honum. „Þetta er orsök þess að ég kom,” sagði ég. „Faðir minn hafði vafið þessu blaði utan um — þetta." „Fyrirgefðu mér, Jo,” sagði Julian frændi, „en ég hafði alls ekki i huga að hleypa honum hingað fyrr en ég væri búinn að ræða við hann i einrúmi. Ég vissi að hann ætlaði sér alls ekki að draga þig inn í þetta, og ég gat ekki séð að það væri neitt sem bannaði mér að reyna að vernda mína dóttur. „Hún þarfnast mín svo miklu frekar en þú," hafði Sara frænka sagt. Það var líka satt. Ég hafði ekki getað játað fyrir sjálfri mér hve mjög orð hennar höfðu sært mig þá. En núna, þegar ég vissi að hún hafði sagt þetta i þeirri trú að ég gerði mér grein fyrir að hvort sem hún væri Pamela eða Sara, væri hún ekki raunveruleg móðir min, þá fannst mér það gjörbreyta öllu. Orð hennar særðu mig ekki lengur. Ég fann ekki lengur til samúðar nteð sjálfri mér, heldur gat ég nú einungis vorkennt þeim. Ég rétti frænda minum höndina og hann tók hana í báðar sinar og sagði einfaldlega: „Þú ert góð stúlka og Vernon til sóma." Ég fór hjá ntér og sótti töskuna mína og tautaði eitthvað um að ég þyrfti að laga tij i herberginu mínu um leið og ég lagði af stað til dyra. Þegar Vivien, sent enn var lilýleg og vinsamleg, spurði mig hvort ég vildi fara með henni og frænda hennar til Boulting Magna eftir hádegisverð. lók ég boðinu fegins hendi. Sannleikurinn var sá að mig langaði til að kaupa nýjan kjól, svo ég liti sem best út, þegar Alex Robertson kæmi. Mér var léttara um hjartað en verið hafði undanfarna mánuði, enda fjótt undangengnir klukkutímar hefðu verið erfiðir, en ég gat ekki annað en álitið þennan nýja vingjarnleika Vivien góðar. fyrirþoða. Mér var mikið í mun að hún hætti að 14. tbl. Vikan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.