Vikan


Vikan - 03.04.1980, Page 24

Vikan - 03.04.1980, Page 24
Þau hölluðu sér bæði fram á brúar- handriðið. Brúin var enn styrk þó hún hefði verið i tuttugu ár í kafi í vatni nýja uppistöðulónsins. Kate leit í kringum sig og svipur hennar lýsti undrun og efa. Hún horfði á þverrandi vatnið, þurra leðjuna og trén sem héngu niður þar sem áður hafði verið brún uppistöðulónsins. Landið var alveg komið i ljós undan vatninu og farið að sjá í græna sprota. Brúin, sem hún og Ronald stóðu á, lá yfir lítinn læk sem rann frá heiðinni. Þurrkurinn mikli hafði ekki náð að afmá litla tæra sprænu sem hjalaði milli bakkanna og steyptist í örlitlum fossum fram af granítsteinunum. Þarna sem hún stóð varð henni hugsað til fortiðarinnar, hennar eigin fortíðar þegar hún var barn og fór í skógarferðir í þennan fagra dal áður en hann var gerður að uppistöðulóni. Og hún hugsaði lengra aftur í tímann, þegar dalurinn var fjarlægur og framandi. Þá höfðu verið hér aðeins tvö eða þrjú býli sem hve'r'r um sig átti fjölskyldu og þar var byggt á ást, von og atorku. Hún leit við, á vatnið sem fór minnk- andi og það glampaði á það í sólskininu. Hún andvarpaði. Maðurinn við hlið hennar leit framan í hana, gáfuleg augu hans horfðu í augu hennar. „Ertu að hugsa um hvernig það var, Kate?” Hún kinkaði kolli. „Ég á bágt með að trúa því, ég á við að sjá þetta allt saman aftur — alveg eins og það var. Þetta er eins og að fara aftur í tímann.” Hún leit yfir þurran jarðveginn að hólnum fyrir neðan þétt trén á norður- bakkanum. Hún kom auga á húsarústir, hlaða af gráum steinum innan um hávaxna stör, gras og ung tré. Þarna var Fernworthy-býlið,” sagði hún. „Það elsta þeirra þriggja í dalnum. „Einmitt,” samsinnti Ronald. „Síðan á sautjándu öld. Lightfoot bóndi, sem bjó hér fyrstur, lét höggva ártalið — 1610 — fyrir ofan innganginn.” Ákafinn og viskan lýstu sér í rödd hans. Þú og þínar sagnfræðilegu staðreyndir, hugsaði Kate með sér. Þú ert með þetta allt á reiðum höndum, er það ekki? Allt staðreyndir, enginn skáld- skapur. Ekkert hjarta, engin rómantík. Nú, jæja, þú varst alltaf þannig — jarð- bundinn piltur þegar ég kynntist þér fyrst og þú hefur ekkert breyst. Þú munt aldrei breytast. Hún leit snöggt á hann, virti fyrir sér hárið, þykkt og fallegt, rétt farið að grána. Hún sá ekki nein merki hnign- unar á háum og sterklegum líkama hans. Hann er án aldurs, hugsaði hún með sér. Og hún hugsaði til þess að hún var nú farin að nálgast miðjan aldur og það settist fita á óæskilega staði. Hún and- varpaði aftur. Snögg og hvöss, ákveðin augu Ronalds sáu hvað hún hugsaði og Kate roðnaði. Hann virtist alltaf vita hvað hún varaðhugsa. „Það er mikið á mér að græða, eða hvað?" sagði hann blátt áfram, bros- viprur sáust í munnvikjum hans. „Ég var aldrei sá myndarlegi, ha, Kate?” Hún leit undan, hálfrugluð, og greip í brúarhandriðið. „Útlitið skiptir ekki máli, Ronald.” „Það gerði það einu sinni. Þú valdir Derek og hann var jú nógu myndar- legur.” „Já....” Rödd hennar fjaraði út. Hún mundi vel eftir því þegar hún valdi Derek Skinner. Reyndar var það hérna, við brúna, í sunnudagaskólaferðalagi fyrir tuttugu og einu ári. Árið áður en Femworthy-dalur var gerður að uppi- stöðulóni. Derek og Ronald höfðu lengi verið vinir og skólafélagar. Þeir höfðu keppt um athygli hennar allan daginn og hún var upp með sér. Hún var þá dreymandi og rómantísk- ur táningur, sem lifði í dagdraumum, hún gaf báðum jöfn tækifæri. Hún sat við hliðina á Derek í bílnum frá Chag- ford og gekk með Ronald að áningar- staðnum og hlustaði á þurra umfjöllun hans um sögu staðarins. En svo allt I einu hafði hún neyðst til þess að taka ákvörðun. Rjóðir af hita og brennandi af tilfinningum unglingsins höfðu þeir barist um hana. Hrædd hafði Kate horft á þá með hinum stúlkunum. Þeir slöguðu, riðuðu og duttu, stóðu upp aftur og böðuðu út handleggjunum, hvítu skyrturnar voru rifnar og skitugar. Einhver sagði áköf: „Segið þeim að hætta! Hr. Hannaford er að koma — hann verður bálreiður!” Hún vissi varla 24 Vikan 14. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.