Vikan


Vikan - 03.04.1980, Qupperneq 34

Vikan - 03.04.1980, Qupperneq 34
Draumar Olíubíllinn var med mótorhjóls- vél og konan vinstrisinnuö 77/ draumrádningamanm Vikunnar! Mig, erþetta bréf ritar, langar góðfúslega til að biðja ykkur um að birta eftirfarandi draum og ráða hann. Draumur inn var mjög skýr og var sem ég tceki allverulegan þátt í honum. Ég var að keyra olíubíl frá BP eins og notaðir voru til að flytja olíu til húshitunar í borginni. I draumnum var ég ' staddur á bílnum í nýbyggðu hverfi í austurhluta borgar- Skop innar, þó ekki endilega Breið- holtinu. Húsin voru öll ómáluð, aðeins grá stein- steypan, en göturnar malbikaðar. Lítið gekk að losa olíuna, bíllinn stoppaði við hverja strætisvagnastöð án þess þó að bíða eftir farþegum enda voru engir þar. En er ég kom að einu nýbyggðu húsi (3-hæða) og ætlaði að handleika slöngurnar og losa olíuna kom húsfrúin út á tröppurnar og lét heldur betur móðan mása en ekki man ég orðaskil. Hún var mjög reið ásýndum og klædd í fnan ballkjól úr vínrauðu silki með ívöfðum glitperlum á brjóstinu. Ég kannaðist strax við konuna og veit að hún er I samtökum vinstrisinnaðra kvenna. Érá húsi hennar sneri ég án þess að losa olíudropa. Næst I draumnum er ég að aka niður Háteigsveg og á móts við Einholtið verð ég þess var að olíubíllinn er bremsulaus. Ég reyni að pumpa pedalann en án árangurs. Ég vissi að hand- bremsan dugði ekki til að stöðva svo þungan bíl og með því að aka beint áfram myndi ég lenda framan á íbúðarhús- unum við Rauðarárstíg. Þrátt fyrir ískyggilegt útlit var ég mjög rólegur. „Þetta bjargast allt, ” hugsaði ég, „með því að beygja til hægri inn Rauðarár- stíginn. Það er skárra að hvolfa bílnum í beygjunni en lenda beint á húsinu. ” En í draumnum tókst mér að ná beygjunni og bíllinn rann svo eftir Rauðarárstígn- um. ViðHlemmtorg tókst mér að fara einn hring fyrir framan Búnaðarbankann og beygja svo aftur inn Rauðarárstíg og þá stöðvaðist bíllinn loksins. Þá kom til mín skólafélagi minn frá liðnum dögum (hann var oft á tíðum ansi óþægilegur) og í draumn- um bauðst hann til að aðstoða mig. Við opnuðum vélarhúsið á olíubílnum en okkur til undr- unar reyndist mótorinn í bílnum vera úr minni gerð af mótorhjóli. Svona lítur draumurinn út sem mig dreymdi og mig langar til að spyrja draumráðninga- meistara Vikunnar hvort hann geti ráðið drauminn. Ég hef reynt að rita hann niður sem skilmerkilegast til að gera ráðninguna auðveldari. Með fyrirfram þökk. Aqua. Flest tákn í draumnum boða undirferli og fláræði sem gæti orðið þér til mikils tjóns. Þessi tákn tengjast svo öðru sem bendir til erfiðleikatímabils og vandræða af ýmsu tagi. Nafn þessa fyrrum skólafélaga þíns undirstrikar svo að ekki er allt sem sýnist og þér mun vissara að fara varlega í samskiptum við samferðafólkið á næstunni. Óhreinskilni af þinni hálfu gæti komið þér óþægilega í koll og þú skalt eindregið varast að taka þátt í einhverju sem þú treystir þér ekki til að taka afleiðingum af síðar. Flest í draumnum bendir til að þú standir af þér erfiðleikana og undirrótin reynist minni en ætlað var í upphafi. Vildi ekki festína vegna skrautsins Kæri draumráðandi. Síðastliðna nótt dreymdi vinkonu mína draum sem hún vildi gjarnan fá ráðningu á. Hann yar um hvíta perlufesti sem hana langaði í en var ekki til, nema með einhverju skrauti í miðjunni. Hún vildi ekki fá þá festi vegna skrautsins. Draumurinn var reglulega ruglingslegur en henni fannst hún vera heima hjá kærastan- um sínum og fullt af öðrum krökkum var þar sem hún vissi ekki nein deili á. Með fyrirfram þökk. J.G.Á. Ýmsir óvæntir atburðir verða til þess að hindra ákveðnar áætlanir og jafnvel koma í veg fyrir þær í náinni framtið. Þó er ekki mögulegt að segja til um það með nokkurri vissu, nema fá frekari vitneskju um ýmis smáatriði draumsins. Draumurinn vísar til sambands hennar við verðandi maka en því miður er of margt óljóst til þess að draumráðandi treysti sér til að segja af eða á um frekari atvik þvi samfara. Ekki horfa svona á mig Kæri draumráðandi. Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi nýlega. Hann er eftir þvi sem ég best man svona: Ég var með krökkunum í mínum bekk og ákveðnum kennara mínum. Ég horfðifast á hann (kennarann) þvi hann var með þau fallegustu augu sem ég hef séð. Augun voru fagurblá. Hann leit á mig með skrítnum svip. mér fannst að ég gœti lesið úr honum: Ekki horfa svoria á mig. Ég vil taka það fram að þessi kennari minn er alls ekki með svona falleg augu. alla vega hef ég aldrei veitt þeim neina sérstaka athygli. Og hann hefur atdrei horft á mig með þessum svip. Kœrar þakkir. KSM Við ráðningu þessa draums hefði verið tii mikilla bóta að vita nafn kennarans. Hann snertir ekki ráðninguna persónu- lega en nafn hans veldur miklu um loka- ráðningu. Það má þó telja nokkuð öruggt að draumur þessi boði þér að ein- hverjar fyrirætlanir þinar ntæti mótstöðu i upphafi en verði þér síðar til gleði og ánægju. Þessu tengist svo ástarævintýri, sem líklega er nú um það bil að hefjast, en þar ættirðu að fara varlega til þess að verða ekki fyrir slæmum vonbrigðum i þeim efnum. Ég veit nú ekki hvort ég get framfleytt henni en ég get kannski útvegað henni betur borgaða vinnu en hún hefur núna' 34 Vikan 14- tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.