Vikan


Vikan - 03.04.1980, Page 51

Vikan - 03.04.1980, Page 51
I Sandy að hann væri að fá slag. Hann hljóp til hans og hjálpaði honum að setjast. Loks náði hann sér það vel að hann gat stunið upp: — Ó, nei . . Guð hjálpi mér, gömlum og fátækum manninum. Allra dýrasti listmunurinn minn! Alveg einstakur Sévres-vasi. Pomapadúrrauði Sévres-vasinn minn frá tímum Napóleons keisara. Áritaður af Jacques Demy, frægasta postulínsmálara þeirra tíma. Ég hefði auðveld- lega fengið 500 pund fyrir þennan vasa. Ó, nei . . . Guð hjálpi mér... Sandy athugaði glerbrotin. — Er ekki hægt að líma hann? — Ómögulegt. — Já, en duglegur listaverka- viðgerðarmaður getur gert kraftaverk, sagði Sandy. — Ekki með svona brot. Vasinn verður aldrei samur og jafn. Aldrei, Nei, ég.má víst teljast heppinn ef einhver býður mér 50 pund fyrir brotin. Ó, nei ... þetta er mesti sorgardagurinn í öllu mínu langa og dapurlega lífi. Hector gamli McKechnie gróf andlitið í höndum sér. Hann var óhuggandi. En það kviknaði aldeilis á perunni hjá Sandy. Satt að segja fékk hann alveg afbragðs hugmynd. Og fái Skoti afbragðs hugmynd segir sig sjálft að þar er um hagnað eða sparnað að ræða. — Ég býð þér 40 pund fyrir vasann í því ástandi sem hann er núna, sagði hann slóttugur. — Þú mátt hirða brotin. En ég get fullvissað þig um það, Sandy McTavish, að hæfasti listaverkaviðgerðarmaðurinn í allri Aberdeen getur ekki einu sinni... — Það á ekki að líma vasann. Þú átt að senda brotin eins og þau eru til yfirmanns míns, Patricks McGregor, Craven House, Ballinluig Hills. — Já, en ... — Ekkert en með það. Þú gerir bara eins og ég segi. Þú pakkar brotunum í kassa og sendir hann síðan í pósti. Svo læturðu þetta kort fylgja með. — Ég skil ekki... — Þú þarft þess heldur ekki, minn kæri Hector McKechnie. Ég veit ekki annað en að vasinn hafi verið heill þegar ég keypti hann. Og þú veist ekki annað en að hann hafi verið heill þegar þú pakkaðir honum niður. Og viti maður yfirleitt eitthvað um postulín er augljóst að þetta var dýrmætur Sévres-vasi, ekki satt? Hector gamli kinkaði kolli. Já, það gat hvaða kunnáttumaður sem var séð með öðru auganu. Hann var nú farinn að botna dálítið í þessu. — Getum við nokkuð gert að því þótt hann hafi brotnað hjá póstinum? Og allir vita hvað þeir eru kærulausir með pakka á þeim vigstöðvum. Henda þeim til og frá, sagði Sandy. — He . . he. . . hneggjaði gamli listmunasalinn með slóttugan glampa i litlum nirfils- augunum. — Þú ert hreint ekki svo vitlaus. En hvað ef ég kjafta frá? — Það gerirðu ekki, sagði Sandy og stakk tíu punda seðli í lófann á gamla manninum. — Auðvitað. Ég er tilbúinn til að sverja t>ess dýran eið að vasinn var heill þegar við sendum hann. Þar með var málið útrætt og Sandy flýtti sér heim. Hector gamli McKechnie gaf aðstoðarmanni sinum skipun um að útvega kassa og bómull, pakka brotunum inn og senda þau í pósti til Patricks McGregor. Afmælisdagur Patricks rann upp og Sandy McTavish mætti með frú sinni til veislunnar. — Þakka þér fyrir vasann, sagði yfirmaður hans, en svipur hans var ískaldur. — Ekkert að þakka, tautaði Sandy: Svo bætti hann við: — Honum hefur vonandi verið pakkað vel inn. — Já, það má segja það, svaraði Patrick McGregor og rak kassann framan í hinn ráðvillta Sandy. Hverju einasta broti hafði verið vandlega pakkað í bleikan SÍlkÍpappír. ÞýO.:JÞ 14. tbl. Vikan SI

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.